Icelandair lækkað um 42 prósent í morgun – Verðið nú við vænt útboðsgengi

Virði hluta­bréfa í Icelandair hefur hríð­fallið í morgun í kjöl­far þess að félagið opin­ber­aði að það ætl­aði sér að selja nýtt hlutafé á eina krónu á hlut, eða langt undir gengi sínu við lok dags í gær.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot/RÚV

Virði bréfa í Icelandair Group hefur hríð­fallið í mjög litlum við­skiptum í morgun. Alls hafa átt sér stað við­skipti fyrir fimm millj­ónir króna og virði bréf­anna lækkað um alls 42,07 pró­sent í þeim. Gengi bréfa í félag­inu við lokun mark­aða í gær var 1,64 krónur á hlut en er nú 0,95 krónur á hlut. Þetta er í fyrsta sinn frá því að Icelandair Group var skráð á markað að gengi bréfa í félag­inu fer undir eina krónu á hlut. Mark­aðsvirði Icelandair Group er, sam­kvæmt núver­andi gengi, 5,2 millj­arðar króna.

[links]Hin mikla lækkun var við­búin í ljósi þess að Icelandair sendi frá sér til­kynn­ingu seint í gær­kvöldi þar sem félagið til­kynnti um að fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði þess hefði verið frestað fram í sept­em­ber. Auk þess var þar gefið upp að ákveðið hefði verið að lækka þá tölu sem sóst yrði eftir í hluta­fjár­út­boð­inu, en hún var upp­haf­lega allt að 200 millj­ónir dala, um 27,5 millj­arðar króna. Nú er hins vegar stefnt að því að selja nýja hluti fyrir allt að 20 millj­arða króna, með heim­ild til að auka hlutafé um þrjá millj­arða króna í við­bót ef umfram­eft­ir­spurn skap­ast. Við­mæl­endur Kjarnans segja að það bendi til þess að vænt­ingar um að selja allt hluta­féð sem upp­haf­lega átti að safna, hefðu verið óraun­hæfar, og því hafi verið ákveðið að minnka útgáf­una.

[adspot]Til við­bótar greindi Icelandair frá því að stefnt væri að selja hið nýja hlutafé í kom­andi útboði á eina krónu á hlut, eða umtals­vert undir þáver­andi mark­aðs­gengi. Með því að opin­bera það varð borð­leggj­andi að hluta­bréf í Icelandair myndu hrapa í átt að, og jafn­vel niður fyrir, það verð sem verður í útboð­inu. Viðbúið er að núver­andi hlut­hafar, að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sem eru að mörgu leyti sami hópur og reynt verður að fá til að kaupa nýja hluta­féð, munu þynn­ast veru­lega niður gangi áform um hluta­fjár­aukn­ing­una eftir.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um ávöxtun af fjár­fest­ingu fjög­urra stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins í Icelandair í frétta­skýr­ingu nýverið. Þar kom fram að aðkoma að Icelandair hafi ekki skilað mik­illi arð­semi, og í tveimur til­fellum miklu tapi.

Lagt lokahönd á lánalínu með ríkisábyrgð

Hlut­hafar í Icelandair þurfa að sam­þykkja að fram­lengja heim­ild félags­ins til hluta­fjár­aukn­ing­ar, en hún var veitt 22. maí síð­ast­lið­inn og rennur út 1. sept­em­ber. Vegna þessa mun Icelandair boða til nýs hlut­hafa­fundar á næstu dög­um.

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í kvöld segir að til við­bótar sé gert ráð fyrir því að til­laga verði lögð fyrir hlut­hafa­fund sem felur í sér að stjórn félags­ins verði heim­ilt að ákveða að hinum nýju hlutum í félag­inu fylgi áskrift­ar­rétt­indi sem sam­svari allt að 25 pró­sent af skrán­ingu nýrra hluta í fyr­ir­hug­uðu útboði. „Heim­ilt yrði að nýta þau í einu lagi eða í skrefum á allt að tveggja ára tíma­bili frá útgáfu sam­kvæmt nán­ari skil­málum sem stjórn ákveð­ur.“

Icelandair Group til­kynnti fyrir sex dögum að félagið væri búið að und­ir­­ritað samn­inga við alla kröf­u­hafa sína og væri auk þess búið að ná end­an­­legu sam­komu­lagi við banda­ríska flug­­­véla­fram­­leið­and­ann Boeing vegna kyrr­­setn­ingar MAX flug­­­véla.

Í til­kynn­ing­unni í gær sagði enn fremur að við­ræður við íslensk stjórn­völd um lána­línu með rík­is­á­byrgð, í sam­vinnu við Íslands­banka og Lands­bank­ann séu á loka­stigi. „Með fyr­ir­vara um sam­þykki stjórn­valda fyrir lána­lín­unni, gerir félagið ráð fyrir að birta fjár­festa­kynn­ingu með ítar­legum upp­lýs­ingum fyrir fjár­festa og þátt­tak­endur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði á næstu dög­um.“

Markaðsvirðið hrunið

Mark­aðsvirði Icelandair er nú, líkt og áður sagði um 5,2 millj­arðar króna.

Hæst fór það í apríl 2016 þegar það var 191,5 millj­arðar króna. mark­aðsvirðið í dag er því undir þrjú pró­sent af því sem það var vorið 2016.

Við þá tölu verður að bæta að í apríl 2019 var hlutafé í Icelandair aukið um 11,5 pró­sent og það selt til banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins PAR Capital Mana­gement á 5,6 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár