Ögurstund hjá Icelandair nálgast

Icelandair Group á að vera búið að ljúka gerð sam­komu­lags við lán­veit­endur, leigu­sala, íslenska ríkið og Boeing um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu sína fyrir lok dags í dag. Ljúka þarf öllum þeim skrefum til að hægt sé að fara í hluta­fjár­út­boð.

Icelandair Group þarf að vera búið að ná sam­komu­lagi við íslenska ríkið, lán­veit­endur, leigu­sala og aðra hag­að­ila fyrir lok dags í dag, 29. júní, um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér 15. júní síð­ast­lið­inn.

Sú til­kynn­ing var send í þeim til­gangi að upp­lýsa um að fyrri áætl­anir, settar fram á hluta­hafa­fundi Icelandair 22. maí síð­ast­lið­inn, um að ljúka gerð þeirra samn­inga 15. júní hefði frest­ast um tvær vikur. Þau eru for­senda þess að Icelandair geti ráð­ist í hluta­fjár­út­boð til að safna vel á þriðja tug millj­arða króna, en sam­kvæmt upp­haf­legri áætlun félags­ins átti það útboð að hefj­ast í dag.

Í til­kynn­ing­unni 15. júní til­greindi Icelandair að greint yrði frá nýrri tíma­línu atburða þegar við­ræður við hag­að­ila um end­ur­skipu­lagn­ingu væru á loka­metr­unum.

Engin slík tíma­lína hefur verið birt í til­kynn­inga­kerfi Kaup­hallar Íslands á síð­ast­liðnum tveimur vikum. Að óbreyttu þarf Icelandair því að hand­sala sam­komu­lag við alla ofan­greinda hag­að­ila í dag, eða fresta enn frekar áformum sínum um að ljúka fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu með hluta­fjár­út­boði.

Uppfært klukkan 9:07:

Rúmum klukku­tíma eftir að frétta­skýr­ingin birt­ist á Kjarn­anum sendi Icelandair frá sér til­kynn­ingu í Kauphöll þar sem brugð­ist var við því að frest­ur­inn væri runn­inn út. Hægt er að lesa frétt Kjarnans um nýja stöðu Icelandair hér.

Kapphlaup við tímann

Það nær algjöra stopp sem varð á flug­um­ferð í heim­inum sam­hliða útbreiðslu COVID-19 og sú mikla óvissa sem er uppi um ferða­þjón­ustu vegna þessa hefur haft gríð­ar­leg áhrif á Icelandair. Félagið hefur notið fjöl­margra úrræða stjórn­valda eins og hluta­bóta­leið­ar­innar og styrkja til að segja fólki upp í mæra mæli en nokk­urt annað fyr­ir­tæki.

[adspot]Samt hefur blasað við lengi að Icelandair þarf að ná sér í nýtt fé til að lifa af. Og það ætlar fyr­ir­tækið að gera í hluta­fjár­út­boði sem á að hefj­ast í lok mán­að­ar. Þar ætlar það sér að sækja allt að 200 millj­ónir dali, um 28 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag.

Lyk­il­breyta í því að geta sótt það fé var að semja upp á nýtt lyk­il­starfs­fólk. Samn­ingar þeirra þóttu óhag­stæðir í augum fjár­festa og draga úr sam­keppn­is­hæfni Icelandair.

Þar hefur náðst árangur. Aðfara­nótt síð­ast­lið­ins föstu­dags var skrifað undir nýjan lang­tíma­samn­ing við Flug­freyju­fé­lag Íslands (FFÍ). Félags­menn FFÍ eiga þó enn eftir að sam­þykkja samn­ing­inn.

Flug­menn og flug­virkjar Icelandair voru þegar búnir að semja um lang­tíma­kjara­samn­inga. Því stóðu flug­freyjur og -þjónar fyr­ir­tæk­is­ins einir eftir af lyk­il­stéttum sem þurfti að ná nýju sam­komu­lagi við, sem gæti liðkað fyrir fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair.

Eiga eftir að semja við lánveitendur, leigusala, ríkið og Boeing

Á hlut­hafa­fundi Icelandair þann 22. maí síð­ast­lið­inn, þar sem veitt var heim­ild til að auka hlutafé félags­ins svo mikið að núver­andi hlut­hafar gætu þynnst niður í 15,3 pró­sent eign­ar­hlut, var kynnt áætlun um hvernig hin fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ing myndi fara fram. Samkvæmt henni átti að und­ir­rita sam­komu­lag við alla hag­að­ila 15. júní, birta átti lýs­ingu á hluta­fjár­út­boð­inu og kynn­ingu til vænt­an­legra hlut­hafa 16-22. júní og útboðið sjálft átti svo að hefj­ast 29. júní, eða í dag, og standa fram á fimmtu­dag. Sú tíma­lína hefur ekki stað­ist og 15. júní síð­ast­lið­inn var greint frá því að sam­komu­lag við hag­að­ila væri ekki í höfn. Ný tíma­lína gerði ráð fyrir að það myndi klár­ast fyrir lok dags 29. júní. Öll önnur skref frest­ast í sam­ræmi við það.

Enn er ansi margt annað eftir sem þarf að ganga upp til að hluta­fjár­út­boðið fari fram og geti mögu­lega skilað til­ætl­uðum árangri. Í fyrsta lagi þarf að semja við lán­veit­endur og leigu­sala. Icelandair þarf að ljúka þeim samn­ingum fyrir lok dags í dag ef upp­gefin tíma­lína, sam­kvæmt til­kynn­ingum til Kaup­hallar Íslands, á að halda.

[links]Stærstu lán­veit­endur Icelandair eru rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­bank­inn, og banda­ríski bank­inn CIT Bank.

Við­mæl­endur Kjarn­ans telja borð­leggj­andi að þessir kröfu­hafar þurfi að breyta kröfum í hlutafé til að hægt verði að ná í nýtt hlutafé í rekst­ur­inn. Ekki sé til­hlýði­legt að kröfu­hafar sitji einir eftir með að fá allt sitt, þegar allir aðrir sem tengj­ast Icelandair þurfa að taka á sig aðlögun vegna aðstæðna. Hið minnsta þurfi að veita félag­inu langt greiðslu­hlé og breyta ýmsum skil­málum í lána­samn­ingum, mögu­lega á þann veg að um verði að ræða breyti­lega samn­inga sem verði ein­fald­lega breytt í hlutafé náist ekki ákveð­inn árangur í rekstr­ar­við­snún­ing­i.

Það á einnig eftir að ganga frá sam­komu­lagi við íslenska ríkið um fyr­ir­greiðslu, en það hefur þegar gefið óljóst vil­yrði um að eiga sam­tal um veit­ingu lána­línu eða ábyrgð á lánum til félags­ins. Sú fyr­ir­greiðsla er hins vegar bundin við að hag­stæð nið­ur­staða liggi fyrir í samn­inga­við­ræðum við lán­veit­end­ur, leigu­sala og birgja og að hluta­fjár­út­boðið gangi vel.

Gangi allt ofan­greint eftir er því verk­efni ólokið að semja við flug­véla­fram­leið­and­ann Boeing um að losna undan kaup­samn­ingum á þeim Boeing 737 Max vélum sem Icelandair hefur enn ekki fengið afhend­ar, og um frek­ari skaða­bætur vegna þeirra sem félagið hefur þegar keypt en getur ekki notað vegna kyrr­setn­ingar á vél­un­um. Þær við­ræður hafa verið skil­greindar „í gangi“ af Icelandair.

Klárist þetta allt saman í dag þarf að sann­færa fjár­festa um að setja tugi millj­arða króna inn í Icelandair í hluta­fjár­út­boði sem færi fram í kjöl­farið.

Þar er helst horft til íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár