Katrín lítur ekki svo á að löggjafinn hafi gert mistök við setningu sóttvarnalaga

For­sæt­is­ráð­herra segir að reglu­gerð sem skikk­aði ferða­langa til veru í sótt­varn­ar­húsi, en reynd­ist síðar skorta laga­stoð, hafi verið rædd í rík­is­stjórn án ágrein­ings.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég vil ekki líta svo á að lög­gjaf­inn hafi gert mis­tök,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra um setn­ingu nýrra sótt­varna­laga sem sam­þykkt voru sam­hljóða á Alþingi í byrjun febr­úar síð­ast­liðnum. Þetta kom fram í við­tali við Katrínu í Kast­ljósi á RÚV í kvöld.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu í gær að laga­stoð skorti fyrir því að skylda alla far­þega sem koma frá háhættu­svæðum í sótt­kví á sótt­kví­ar­hól­teli. Reglu­gerð hafði verið sett til að koma hinu ólög­mæta fyr­ir­komu­lagi á. Í kjöl­farið bauðst öllum að þeim sem úrskurð­ur­inn náði til ljúka sótt­kví ann­ars stað­ar, hafi þeir við­und­andi aðstöðu til þess. Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hefur í sam­ráði við heil­brigð­is­ráðu­neytið ákveðið að vísa úrskurði hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur, um að ekki megi skikka fólk í sótt­varna­hús, til Lands­rétt­ar.

[adspot]Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði Þórólfur að svo virt­ist sem nið­ur­staða hér­aðs­dóms byggði á því að skil­grein­ing á sótt­varn­ar­húsi í sótt­varna­lögum væri ekki full­nægj­andi. Því væri ekki hægt að byggja reglu­gerð heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins frá 1. apr­íl, þar sem fólki frá áhættu­löndum er gert að vera í sótt­kví í sótt­varna­hús­um, á því.

[links]„Ég tel mik­il­vægt að laga­grund­völlur verði tryggður svo hægt verði að vernda heilsu þjóð­ar­innar sem mest,“ sagði Þórólfur sem hefur skorað á stjórn­völd að tryggja hann. Ekki reynd­ist sam­staða innan vel­ferð­ar­nefndar um hvað gera skuli vegna þeirrar stöðu sem upp er komin.

Katrín sagði í Kast­ljósi að nið­ur­staða hér­aðs­dóms væri von­brigði. Markmið stjórn­valda væri skýrt, að verja líf og heilsu lands­manna á meðan á far­aldr­inum stæði. Það hefði verið mjög góð sam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar um aðgerðir und­an­farið ár. Reglu­gerðin sem skikk­aði fólk í sótt­kví í sótt­varn­ar­húsi hafi verið tekið fyrir í rík­is­stjórn og í ráð­herra­nefndum með emb­ætt­is­mönnum. Ekki hafi verið uppi ágrein­ingur í rík­is­stjórn um setn­ingu reglu­gerð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár