Þórólfur: „Tryggjum lagastoðina“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að ef hann fengi að ráða myndi Alþingi koma saman og tryggja að laga­stoð yrði fyrir því að skylda komu­far­þega frá ákveðnum svæðum í sótt­varna­hús.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, um að rík­inu sé óheim­ilt að skikka þá sem hafa við­un­andi aðstæður til þess að vera í sótt­kví á eigin vegum í sótt­varna­hús, séu von­brigði að hans mati, fyrir þjóð­ina alla. Hann myndi vilja sjá Alþingi breyta lögum til þess að skjóta laga­stoð undir aðgerð­irnar.

„Tryggjum laga­stoð­ina, höldum áfram með þessa örugg­ustu leið sem við getum haft þar til við höfum náð meiri útbreiðslu í bólu­setn­ingar og getum farið að slaka meira á, eins og við höfum verið að tala um,“ sagði Þórólfur í Bítinu á Bylgj­unni í morgun.[links]

Hann og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hafa boðað komu sína á fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis kl. 10 í dag til þess að ræða nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur. Sótt­varna­læknir seg­ist einnig eiga von á því að málið verði rætt á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar. Verið sé að skoða hvaða leiðir séu færar.

Heil­brigð­is­ráð­herra hafði lýst því yfir að und­an­förnu að hún og ráðu­neytið teldu laga­stoð fyrir því að skipa öllum sem kæmu frá ákveðnum háá­hættu­svæðum í sótt­varn­ar­hús. Efa­semdir höfðu verið uppi um það, sem fengu stað­fest­ingu með úrskurði hér­aðs­dóms í gær.

Þórólfur segir að hann telji skyldu­sótt­kví í sótt­varn­ar­húsum fyrir þá sem koma frá þeim svæðum þar sem veiru­far­ald­ur­inn er í hæstu hæðum hafi verið „lang­besta og „langör­ugg­asta“ leiðin til þess að koma í veg fyrir að ný bylgja far­ald­urs­ins fari af stað inn­an­lands.

[adspot]

„Auðvitað er hún ekki 100 pró­sent frekar en annað sem við erum að gera. En þetta held ég að hafi verið skásta leiðin. Ég held að það þurfi að skoða mjög vel, en auð­vitað þarf laga­grund­völl­ur­inn að vera í lagi. Það segir sig sjálft,“ sagði Þórólfur.

„Vonlaust“ að herða eftirlit með fólki heima hjá því

Hann sagði einnig í við­tal­inu að hann teldi það „alveg von­laust“ að herða eft­ir­lit með fólki í sótt­kví á sínu eigin heim­ili, mörg hund­ruð manns á hverjum tíma. Einnig væri von­laust að tékka á því hvort fólk myndi búa við við­un­andi aðstæður fyr­ir­fram.

Sótt­varna­læknir sagði stöð­una aðra en áður þar sem nú væri um að ræða meira smit­andi afbrigði kór­ónu­veirunnar en áður. Minna þyrfti að fara úrskeiðis til þess að smit næði út í sam­fé­lagið.

„Ef þetta fær að standa svona þá held ég að hættan sé mjög mikil að við fáum meiri útbreiðslu,“ sagði Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár