Ríkið mátti ekki skikka fólkið í sóttvarnarhús

Fyrsti úrskurður Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um ákvörðun rík­is­ins að skikka komu­far­þegum frá áhættu­svæðum í sótt­kví í sótt­varn­ar­hús var kveð­inn upp í dag, en sam­kvæmt honum mátti ríkið ekki skikka þrjá ein­stak­linga í sótt­varn­ar­hús.

Nýja Fosshótelið í miðbænum er notað sem sóttvarnarhús.
Nýja Foss­hót­elið í mið­bænum er notað sem sótt­varn­ar­hús. Mynd: EPA

Þrír ein­stak­lingar, sem kærðu ákvörðun rík­is­ins um að skikka þá í sótt­kví í sótt­varn­ar­húsi, hefðu mátt fara í sótt­kví heima hjá sér, sam­kvæmt úrskurði Hér­aðs­dóms sem kveð­inn var upp fyrr í dag. Frá þessu greindi RÚV fyrst.

Samkvæmt frétt­inni voru kær­urnar lagðar fram á þeim grund­velli að um ólög­lega frels­is­svipt­ingu væri að ræða. Samkvæmt Ómari Valdi­mars­syni, lög­manni sem rak eitt mál­anna, er reglu­gerð stjórn­valda um skyldu­dvöl komu­far­þega frá áhættu­svæðum á sótt­varn­ar­húsum ónýt.

Ómar sagði þó að úrskurð­irnir sem kveðnir voru upp fyrr í dag séu bundnir við þá ein­stak­linga sem sóttu málin og gildi ekki endi­lega fyrir alla.

Kjarninn hefur áður fjallað um málið, en alls lögðu fimm fram kæru til rík­is­ins vegna skyldu­dval­ar­innar. Allir eiga þeir heim­ili hér á landi. Ómar, ásamt Jóni Magn­ús­syni, öðrum lög­manni kær­anda, hafa sagt að málin gætu haft for­dæm­is­gildi fyrir aðra sem dvelja í sótt­varn­ar­húsi. Í við­tali við RÚV fyrr í dag ítrek­aði Ómar að þetta kunni að hafa for­dæm­is­gildi fyrir aðra, en vildi þó ekki full­yrða það með óyggj­andi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár