Biðla til gesta að ljúka sóttkví á sóttkvíarhótelum

Heil­brigð­is­ráðu­neytið og sótt­varn­ar­læknir fara nú yfir úrskurð dóm­stóla frá þvi fyrr í dag, þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að laga­stoð skorti fyrir því að skikka fólk til veru í sótt­varn­ar­húsi.

Þórólfur Guðnason er sóttvarnalæknir og Svandís Svavarsdóttir er heilbrigðisráðherra.
Þórólfur Guðnason er sótt­varna­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir er heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

[links]Í ljósi úrskurðs Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í dag, þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að laga­stoð skorti fyrir því að skylda alla far­þega sem koma frá háhættu­svæðum í sótt­kví á sótt­kví­ar­hól­teli, verður þeim sem úrskurð­ur­inn nær til gerð grein fyrir því að þeim sé frjálst að ljúka sótt­kví ann­ars staðar, hafi þeir við­und­andi aðstöðu til þess. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni og heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Þar segir enn fremur að sótt­varna­yf­ir­völd biðli „til gesta um að ljúka sótt­kví á sótt­kví­ar­hót­el­inu, enda er það besta leiðin til að draga úr útbreiðslu Covid 19-sjúk­dóms­ins.“

Verið er að fara yfir úrskurð­inn í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og hjá emb­ætti sótt­varn­ar­læknis. „Í fram­hald­inu mun heil­brigð­is­ráð­herra, í sam­ráði við sótt­varna­lækni, skoða hvaða leið verður farin til að lág­marka áhættu á að smit ber­ist inn í landið. Greint verður frá við­brögðum á næstum dögum.“

[adspot]Þrír ein­stak­ling­ar, sem kærðu ákvörðun rík­is­ins um að skikka þá í sótt­kví í sótt­varn­ar­húsi, hefðu mátt fara í sótt­kví heima hjá sér, sam­kvæmt úrskurði Hér­aðs­dóms sem kveð­inn var upp fyrr í dag. Frá þessu greindi RÚV fyrst.

[links]Sam­kvæmt frétt­inni voru kær­urnar lagðar fram á þeim grund­velli að um ólög­lega frels­is­svipt­ingu væri að ræða. Sam­kvæmt Ómari Valdi­mars­syni, lög­manni sem rak eitt mál­anna, er reglu­gerð stjórn­valda um skyldu­dvöl komu­far­þega frá áhættu­svæðum á sótt­varn­ar­húsum ónýt.

Ómar sagði þó að úrskurð­irnir sem kveðnir voru upp fyrr í dag séu bundnir við þá ein­stak­linga sem sóttu málin og gildi ekki endi­lega fyrir alla.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um mál­ið, en alls lögðu fimm fram kæru til rík­is­ins vegna skyldu­dval­ar­inn­ar. Allir eiga þeir heim­ili hér á landi. Ómar, ásamt Jóni Magn­ús­syni, öðrum lög­manni kær­anda, hafa sagt að málin gætu haft for­dæm­is­gildi fyrir aðra sem dvelja í sótt­varn­ar­húsi. Í við­tali við RÚV fyrr í dag ítrek­aði Ómar að þetta kunni að hafa for­dæm­is­gildi fyrir aðra, en vildi þó ekki full­yrða það með óyggj­andi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár