Nefndarmenn í velferðarnefnd ekki sammála um hvað skuli eða þurfi að gera

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks telur að vinna eigi með sótt­varna­lögin eins og þau eru og mögu­lega herða eft­ir­lit með fólki í sótt­kví, ef þörf krefji. Þing­maður Sam­fylk­ingar segir eðli­legt að skjóta laga­stoð undir skyldu­sótt­kví í far­sótt­ar­húsum.

Vilhjálmur Árnason, hér til hægri, segir að hann telji rétt að vinna með lögin eins og þau eru og mögulega auka lögreglueftirlit með þeim sem eru í sóttkví.
Vil­hjálmur Árnason, hér til hægri, segir að hann telji rétt að vinna með lögin eins og þau eru og mögu­lega auka lög­reglu­eft­ir­lit með þeim sem eru í sótt­kví. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ólík sjón­ar­mið eru uppi innan vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, um þá stöðu sem upp er komin vegna úrskurðar Hér­aðs­dóms Reykja­víkur. Dóm­stóll­inn komst í gær að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri laga­stoð fyrir því að skylda þá sem geta verið í sótt­kví heima hjá sér til þess að fara í sótt­varna­hús við kom­una til lands­ins.

Nefndin sat á fundi í rúmar fjórar klukku­stundir í dag og fékk til sín bæði Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra og Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni. Kjarninn ræddi við tvo nefnd­ar­menn, Helgu Völu Helga­dóttur þing­mann Sam­fylk­ingar og Vilhjálm Árnason þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks, að fund­inum loknum.

Þau eru ekki sam­mála um hvernig takast skuli á við málið. Helga Vala vill að farið verði að ráðum sótt­varna­læknis og lögum verði breytt til þess að sú aðgerð sem heil­brigð­is­ráð­herra hefur verið gerð aft­ur­reka með, að skylda alla frá skil­greindum há-áhættu­svæðum í sótt­kví á hót­eli, öðlist laga­stoð.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur verið afdrátt­ar­laus um að það telji hann far­sæl­ast, en lítið hefur heyrst úr ranni rík­is­stjórn­ar­innar frá því að úrskurður hér­aðs­dóms lá fyrir í gær. Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu ráðu­neytis og sótt­varna­læknis í gær­kvöldi var biðlað til fólks um að vera áfram á sótt­varna­hót­el­inu, þrátt fyrir úrskurð­inn.

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði við mbl.is í dag að nið­ur­stöðu Lands­réttar í mál­inu yrði beðið og tjáði sig ekk­ert um hvort farið yrði fram með frum­varp. Málið hefði ekki verið rætt form­lega í rík­is­stjórn.

Helga Vala segir fyrir þrjár leiðir til þess að leggja fram slíkt frum­varp. Í fyrsta lagi geti heil­brigð­is­ráð­herra gert það og þá sé hægt að „afgreiða það hratt og vel“, í annan stað gæti vel­ferð­ar­nefnd lagt fram slíkt frum­varp ef sam­staða væri um það innan nefnd­ar­innar og í þriðja lagi gætu þing­menn tekið sig saman og lagt fram þing­manna­mál um breyt­ingar á sótt­varna­lög­unum.[links]

Helga Vala seg­ist þó efast um að sam­staða sé um hvernig taka skuli á mál­inu á meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og vísar til við­tals á Vísi við sjálf­stæð­is­mann­inn Brynjar Níelsson, sem staddur er á Spáni um þessar mundir. Þar kom fram að hann myndi aldrei taka þátt í því að breyta lög­unum við þær aðstæður sem nú ríktu.

Ætti að vinna með lögin eins og þau eru, að mati Vilhjálms

Annan kost­inn sem Helga Vala nefndi er svo gott sem hægt að slá út af borð­inu, því Vil­hjálmur segir að hann sjálfur sé ekki fylgj­andi því að breyta lög­unum.

„Mér finnst það eigi bara að reyna að vinna með lögin eins og þau eru,“ segir Vil­hjálmur, sem er mót­fall­inn því að íbúar hér á landi séu skikk­aðir í sótt­varn­ar­hús við kom­una til lands­ins, ef þeir geti sýnt fram á að hafa aðstæður til að halda sótt­kví.

[adspot]

Hann telur að hægt væri að auka eft­ir­lit lög­reglu með þeim sem eru í sótt­kví og segir til dæmis að hægt væri að til­kynna komu­far­þegum að farið yrði í handa­hófs­kenndar heim­sóknir á þann stað sem það gefur upp sem dval­ar­stað sinn í sótt­kví.

Auk þess segir hann að þrátt fyrir að laga­heim­ild væri skotið undir aðgerðir heil­brigð­is­ráð­herra í snatri ætti eftir að kljást við þær spurn­ingar sem lúti að því hvort aðgerðin stand­ist jafn­ræði, með­al­hóf og þau rétt­indi sem fólki séu tryggð í stjórn­ar­skrá. Þeim spurn­ingum hafi ekki verið svarað í úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár