Vonandi verður lagagrundvöllur tryggður „áður en heilsufarslegur skaði hlýst af“

Þórólfur Guðnason segir nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms „óheppi­lega“ og geta sett sótt­varnir hér á landi í upp­nám. Hún gæti orðið til þess að auka líkur á að smit kom­ist út í sam­fé­lagið, „mögu­lega með alvar­legum afleið­ingum fyrir okkur Íslend­inga“.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur í sam­ráði við heil­brigð­is­ráðu­neytið ákveðið að vísa úrskurði hér­aðs­dóms Reykja­víkur, um að ekki megi skikka fólk í sótt­varna­hús, til Lands­réttar. Þetta mun ekki breyta því að nið­ur­staða hér­aðs­dóms mun standa þangað til og henni er nú þegar fram­fylgt. Sagði sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að svo virt­ist sem nið­ur­staða hér­aðs­dóms byggði á því að skil­grein­ing á sótt­varn­ar­húsi í sótt­varna­lögum væri ekki full­nægj­andi. Því væri ekki hægt að byggja reglu­gerð heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins frá 1. apríl, þar sem fólki frá áhættu­löndum er gert að vera í sótt­kví í sótt­varna­húsum, á því.

Í gær var öllum sem dvelja í sótt­varn­ar­húsi boðið að fara annað í sína sótt­kví. Um fimmtán manns af vel yfir hund­rað gerðu það í gær og sagði Þórólfur að mögu­lega myndu fleiri yfir­gefa sótt­varna­hús í dag.

[adspot]

Þórólfur sagði nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms „óheppi­lega“ út frá sótt­varn­ar­sjón­ar­miðum og geta sett ýmsar sótt­varnir hér á landi í upp­nám „ef hann fær að standa“. Þetta gæti orðið til þess að auka líkur á því að smit kom­ist út í sam­fé­lagið „mögu­lega með alvar­legum afleið­ingum fyrir okkur Íslend­inga“ og að síður yrði hægt að slaka á tak­mörk­unum inn­an­lands.

[links]„Ég tel mik­il­vægt að laga­grund­völlur verði tryggður svo hægt verði að vernda heilsu þjóð­ar­innar sem mest,“ sagði Þórólfur sem hefur skorað á stjórn­völd að tryggja hann. „Vonandi verður það gert áður en að heilsu­fars­legur skaði hlýst af.“

Spurður hversu bjart­sýnn hann væri á að Land­réttur myndi snúa nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms við sagð­ist hann vona það besta. „Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að við fáum laga­grund­völl undir þær aðgerðir sem við erum að grípa til. Ef það er ekki svo þá munum við alveg örugg­lega ekki geta haft eins góð tök á þessu eins og við vildum. Við vitum öll hverjar afleið­ingar af því gætu orðið.“

Margar ástæður til að beita ýtrustu aðgerðum á landamærum

Alma Möller land­læknir ítrek­aði það sem yfir­völd hafa oft­sinnis sagt að það eigi, að þeirra mati, að við­hafa áfram ýtr­ustu aðgát á landa­mær­unum. Fyrir því væru nokkrar ástæður. Sú fyrsta er sú að ekki er enn búið að bólu­setja nægi­lega hátt hlut­fall þjóð­ar­innar þó að það standi til bóta „sem betur fer“.

Í öðru lagi vegna þess að far­ald­ur­inn er á mik­illi sigl­ingu erlendis m.a. í nágranna­löndum „og það þrátt fyrir umtals­verðar aðgerðir víða“.

Í þriðja lagi er enn margt á huldu varð­andi ný afbrigði veirunnar. Ekki er enn ljóst hvort þau valdi alvar­legri veik­indum, svo dæmi sé tekið.

Alma sagði að glufur hefðu komið upp á landa­mær­unum sem reynt hefði verið að bregð­ast við. „En nú eru þau mál í ákveðnu upp­námi og verið er að skoða hvernig brugð­ist verður við.“

Fjórir greindust með veiruna inn­an­lands í gær og voru þeir allir í sótt­kví. „Auðvitað er maður smeykur um það að það séu fleiri smit þarna úti,“ sagði Þórólfur.

Á síð­ustu sjö dögum hafa 64 greinst inn­an­lands. Um 70 pró­sent voru í sótt­kví. Í nokkrum til­vikum hefur reynst erfitt að rekja smit þeirra sem greinst hafa utan sótt­kvíar. Öll smit sem greinst hafa bæði inn­an­lands og á landa­mær­unum síð­ustu daga hafa verið vegna hins breska afbrigðis veirunnar.

Af þessum sökum telur Þórólfur þörf á því að halda áfram aðgerðum inn­an­lands til að minnsta kosti 15. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár