Tekjur RÚV stóðu í stað milli ára – Fengu 4,9 milljarða króna úr ríkissjóði

RÚV skil­aði tapi á síð­asta ári í fyrsta sinn síðan 2014 þrátt fyrir að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið þær sömu og 2019. RÚV hefur á síð­ustu árum selt bygg­inga­rétt og lengt í skulda­bréfa­flokki til að auka veru­lega á fjár­hags­legt svig­rúm til skamms tíma.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

RÚV tap­aði 209 millj­ónir króna í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2014 sem RÚV skil­aði tapi. Rekstr­ar­tekjur voru tæp­lega 6,9 millj­arðar króna og nán­ast þær sömu í krónum talið og árið áður. Rekstr­ar­gjöld voru tæp­lega 6,8 millj­arðar króna og juk­ust um 174 millj­ónir króna milli ára. Fjár­magns­gjöld, aðal­lega vegna skulda­bréfa­út­gáfu, voru svo 353,2 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi RÚV sem birtur var í gær.

Þess má þó geta að afkoma RÚV á árunum 2013 til 2019, sem var sam­tals jákvæð um 1,5 millj­­arða króna, skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­­ins við Efsta­­leiti. Ef litið er á afkomu félags­­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­­ar­af­koma félags­­ins á þessu tíma­bili var hún nei­­kvæð um rúm­lega 50 millj­ónir króna. Án lóða­­söl­unnar hefði RÚV ohf. því verið ógjald­­fært.

Auk þess samdi RÚV í maí 2019 við Líf­eyr­is­­­­sjóð starfs­­­­manna rík­­­­is­ins (LSR) um að breyta skil­­­­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­­­­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­­­lega var lengt í greiðslu­­­­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða var höf­uð­­­­stóll hækk­­­­aður og vextir lækk­­­­aðir úr fimm pró­­­­sentum í 3,5 pró­­­­sent. Þetta gerði það að verkum að greiðsla skuld­­­ar­innar mun teygja sig til nýrra kyn­slóða en fjár­­­­­magns­­­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru, líkt og áður sagði, 353,2 millj­­­ónir króna í fyrra.

Auglýsingatekjur voru 1,6 milljarðar króna

Sér­stak­lega er fjallað um áhrif COVID-19 heims­far­ald­urs­ins á rekstur RÚV í árs­reikn­ingnum. Þar segir að aug­lýs­inga­tekjur hafi minnkað í sam­ræmi við sam­drátt í atvinnu­líf­inu, alls um tæp­lega 200 millj­ónir króna, tekju­tapið í heild sinni er metið á tæp­lega 300 millj­ónir króna. Alls námu tekjur af sam­keppn­is­rekstri á árinu 2020 1.946 millj­ónum króna. Þar af námu tekjur af aug­lýs­ingum 1.624 millj­ónum króna.

[adspot]Tekjur af almanna­þjón­ustu, sem koma að öllu leyti úr rík­is­sjóði, 4,9 millj­örðum króna. Þess má geta að til að mæta þessu tekju­tapi voru fram­lög úr rík­is­sjóði aukin um 140 millj­ónir króna milli umræðna um fjár­lög á Alþingi í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Í árs­reikn­ingnum er sagt að áætlum fyrir árið 2021 geri ráð „fyrir meiri tekju­sam­drætti, bæði vegna minni aug­lýs­inga­tekna og minni þjón­ustu­tekna og því nauð­syn­legt að sýna áfram aðhald í rekstri til að mark­mið um halla­lausan rekstur á árinu náist.“

Í umsögn Stef­áns Eiríks­sonar útvarps­stjóra RÚV um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyrir árið 2021 kom fram að það myndi vanta um 600 millj­ónir króna í fjár­mögnun RÚV. „Fyr­ir­sjá­an­legt er að mæta þurfi þessu með breyt­ingum og sam­drætti í dag­skrár­gerð og frétta­þjón­ustu RÚV,“ sagði enn fremur í umsögn­inni.

Síðan þá hefur verið skrifað undir nýjan þjón­ustu­samn­ing RÚV við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, en hann gildir aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2020 til og með 31. des­em­ber 2023. Í árs­reikn­ingnum segir: „Með samn­ingnum er RÚV tryggður nauð­syn­legur stöð­ug­leiki sem gerir félag­inu kleift að gera áætl­anir til lengri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár