Ríkisstjórnin segist hafa lokið 138 af 189 aðgerðum sem hún lofaði í stjórnarsáttmála

Formenn stjórn­ar­flokk­anna eru allir sam­mála um að mikið verk hafi verið unnið á þessu kjör­tíma­bili. Bjarni Bene­dikts­son segir það hafa verið lær­dóms­ríkt að fá nýjan sam­starfs­flokk og að það hafi „þétt sam­starfið að fá krefj­andi verk­efni í fangið.“

Formenn stjórnarflokkanna á blaðamannafundinum fyrr í dag.
Formenn stjórn­ar­flokk­anna á blaða­manna­fund­inum fyrr í dag. Mynd: RÚV/Skjáskot

Rík­is­stjórnin seg­ist hafa náð að ljúka 138 af 189 aðgerðum sem settar voru fram í stjórn­ar­sátt­mála hennar þegar Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur mynd­uðu rík­is­stjórn undir lok árs 2017. Auk þess hafi verið unnar stefnur í 73 málum því til við­bótar.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi sem rík­is­stjórnin hélt í Grinda­vík í dag, meðal ann­ars vegna þess að Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, kynnti til­lögu um þing­rof þann 12. ágúst á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag. Kosið verður til Alþingis 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Þar sagði Katrín að á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins hafi farið tölu­verð vinna í sam­tal við vinnu­mark­að­inn og aðgerðir til að tryggja frið á honum, sem lauk að ein­hverju leyti með gerð lífs­kjara­samn­ing­anna vorið 2019, og í að leggja grunn­inn að inn­viða­upp­bygg­ingu.

Seinni hluti kjör­tíma­bils­ins hafi farið öðru­vísi en búist var við, fyrst vegna nátt­úru­ham­fara og svo vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. „Það hefur mikið verk verið unnið á þessu kjör­tíma­bili,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra á fund­inum í dag.

Lærdómsríkt að vinna með Vinstri grænum

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði rík­is­stjórn­ar­sam­starfið hefði gengið vel, sér­stak­lega sú áhersla að fjár­festa í innviðum. „Við höfum náð að klára flest þau verk­efni sem við settum okkur fyrir.“

[adspot]Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði að sú óvenju­lega sam­setta rík­is­stjórn sem mynduð hafði verið hefði skilað góðu verki. Rétt ára­tug eftir efna­hags­hrunið hafi verið byggðar stoðir undir rík­is­fjár­málin sem gerðu rík­is­sjóði kleift að taka á sig gríð­ar­legan skell þegar áföll dundu yfir vegna heims­far­ald­urs­ins, og styðja þannig atvinnu­líf og heim­ili í gegnum ástandið. Á kjör­tíma­bil­inu hafi verið leiddir fram lægstu hús­næð­is­vextir í sög­unni, lægstu stýri­vextir Seðla­banka Íslands í sög­unni og stöð­ug­leiki, í þeim skiln­ingi að verð­bólga hafi verið nokkuð stöðug í ólgu­sjó áfalla, miðað við það sem hún hefur verið áður þegar gefið hefur á. Þessu lýsti Bjarni sem „ofboðs­lega miklum árangri.“

Hann taldi það líka rík­is­stjórn­inni til tekna að hafa staðið við það að lækka skatta þrátt fyrir þessar aðstæður og mærði sölu rík­is­eigna, en þar átti hann sýni­lega við sölu á 35 pró­sent hlut í Íslands­banka í sumar. Bjarni sagði að í sínum huga væri aug­ljós­lega hægt að treysta rík­is­fjár­málin á kom­andi kjör­tíma­bili með því að halda áfram á þeirri braut, og selja meira í bank­anum. „Þetta hefur verð lær­dóms­ríkt líka, bæði per­sónu­lega vil ég segja, undir lok kjör­tíma­bils, að eiga nýjan sam­starfs­flokk, og það hefur þétt sam­starfið að fá krefj­andi verk­efni í fangið,“ sagði Bjarni að lokum og vís­aði þar til fyrsta stjórn­ar­sam­starfs Sjálf­stæð­is­flokks við Vinstri græn.

Stjórnarskrá og Miðhálendisþjóðgarður út undan

Á meðal þeirra 51 aðgerða sem til­teknar voru í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem ekki tókst að ljúka á kjör­tíma­bil­inu eru til að mynda breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, en frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um nokkrar breyt­ingar á henni var ekki afgreitt úr nefnd. Því munu breyt­ingar á stjórn­ar­skrá ekki ná fram að ganga á næsta kjör­tíma­bili.

[links]Annað stórt mál sem komst ekki til fram­kvæmda, að uppi­stöðu vegna ósættis innan stjórn­ar­heim­il­is­ins, var stofnun Mið­há­lend­is­þjóð­garðs.

Önnur mál sem ekki tókst að ljúka eru meðal ann­ars þau að móta eig­enda­stefnu fyrir Lands­virkjun, vinna veg­vísi að kolefn­is­hlut­lausu Íslandi 2040, finna lausn á hús­næð­is­málum Lista­há­skóla Íslands, stuðla að bættu aðgengi lands­manna að öruggu hús­næði, tryggja sam­fellu í þjón­ustu og aðstoð við þá sem fá alþjóð­lega vernd, tryggja að Ísland nái með­al­tali Norð­ur­land­anna er varðar fjár­mögnun háskóla­stigs­ins árið 2025, inn­leiða keðju­á­byrgð í ólíkum atvinnu­greinum, stofna Þjóð­ar­sjóð, hækka kolefn­is­gjald um 50 pró­sent, efla heil­brigð­is­þjón­ustu í fram­halds­skólum með áherslu á geð­heil­brigði, vinna gegn félags­legum und­ir­boðum, man­sali og kenni­tölu­flakki, styrkja stöðu kærenda í kyn­ferð­is­brota­málum með því rýna lagaum­hverfið, færa tekjur af gistin­átta­gjaldi yfir til sveit­ar­fé­laga, skipu­leggja fram­boð hluta­starfa hjá hinu opin­bera fyrir fólk með skerta starfs­getu, vinna með Reykja­vík­ur­borg og íþrótta­hreyf­ing­unni að upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs í Laug­ar­dal, að end­ur­skoða útlend­inga­lög, gera úttekt á kjörum þeirra tekju­lægstu í sam­fé­lag­inu og leggja fram til­lögur til úrbóta, styrkja rekstr­ar­grund­völl hjúkr­un­ar­heim­ila, afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum og koma í veg fyrir nei­kvæð áhrif lofts­lags­breyt­inga á líf­ríki hafs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár