Færri eiga húsnæði en fleiri vilja kaupa

Fast­eigna­eig­endum á Íslandi hefur fækkað um 10% á tæpum tíu árum. Næstum öllum finnst óhag­stætt að vera á leigu­mark­aði.

Una Jónsdóttir hjá Íbúðalánasjóði.
Una Jóns­dóttir hjá Íbúða­lána­sjóði.

Fast­eigna­eig­endum á Íslandi hefur fækkað hratt á und­an­förnum árum og ríf­lega 10% færri búa í eigin íbúð í dag en í lok árs 2008. Þetta kemur fram í nýrri könnun Íbúða­lána­sjóðs, sem verður kynnt í hádeg­inu. Aftur á móti vilja fleiri nú kaupa hús­næði en áður.

Í des­em­ber 2008 sögð­ust 77,6 pró­sent svar­enda búa í eigin hús­næði. Árið 2013 var hlut­fallið 73,2% en nú eru það 70,1% svar­enda sem segj­ast eiga hús­næðið sem þeir búa í.

Tæplega 93 pró­sent svar­enda í könn­un­inni telja að það sé óhag­stætt að vera á leigu­mark­aði, sem er gríð­ar­leg fjölgun frá árinu 2011, þegar hlut­fallið var 55,4%.

Um 15 pró­sent Íslend­inga segj­ast vera að hug­leiða að kaupa fast­eign á næsta árinu, en þetta hlut­fall breyt­ist ekki mikið þegar litið er til eigna- og skulda­stöðu fólks. Hjá þeim sem geta safnað tals­verðu sparifé er þetta hlut­fall þó hæst, 21 pró­sent þess fólks seg­ist öruggt eða lík­legt að það muni huga að fast­eigna­kaupum á næstu 12 mán­uðum. Hjá fólki sem safnar skuldum eða notar sparifé til að ná endum saman er þetta hlut­fall 15 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár