Svandís: „Við höfum ekki slegið stóreignaskatt út af borðinu“

„Þegar að Morg­un­blaðið hefur [eitt­hvað] eftir Katrínu Jak­obs­dóttur þá mæli ég með því að hlusta á Katrínu Jak­obs­dóttur frekar en það sem Morg­un­blaðið segir að hún hafi sagt,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir um skatta­stefnu VG.

Svandís Svavarsdóttir (VG) og Magnús Norðdahl (Pírötum) tókust á um skattamál í Silfrinu í dag.
Svandís Svav­ars­dóttir (VG) og Magnús Norðdahl (Pírötum) tók­ust á um skatta­mál í Silfrinu í dag.

„Spilling kostar mjög mikið og allir flokkar gætu staðið við öll sín lof­orð ef við myndum losna við spill­ing­una,“ sagði Guð­mundur Franklín Jónsson, for­maður Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins, í stjórn­mála­um­ræðu í Silfrinu á RÚV í morgun. Full­trúar Sex flokka sátu fyrir svörum í þætti dags­ins og spill­ing og stór­eigna­skattur voru meðal þess sem tek­ist var á um.

„Hvar finnur þú alla þessa spill­ingu, Guð­mundur?“ spurði Egill Helgason, stjórn­andi Silf­urs­ins. „Hún byrjar hjá stjórn­mála­mönnum,“ svar­aði Guð­mundur. „Hún byrjar hjá kjörnum full­trúum sem starfa við það að útdeila sam­eig­in­legum verð­mætum.“ Þar var Guð­mundur að vísa til sjáv­ar­út­vegs­ins. „Það er verið að gefa hund­ruð millj­arða á hverju ein­asta ári til nokk­urra fyr­ir­tækja.“

[adspot]

Magnús Norðdahl, fram­bjóð­andi Pírata, hafði einnig orð á því sama. „Ef að við tökum á spill­ingu þá að sjálf­sögðu spörum við fjár­muni.“

Ásta Lóa Þórs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, tók sömu­leiðis í sama streng og sagði spill­ing­una á Íslandi „gríð­ar­lega“. Það hafi hún upp­lifað á eigin skinni. Hún einnig fundið fyrir henni vegna for­manns­starfa sinna fyrir Hags­muna­sam­tök heim­il­anna síð­ustu fjögur ár. „Þar höfum við verið að berj­ast við mestu spill­ingu sem fyr­ir­finnst á Íslandi sem er í sam­bandi við fjár­mála­kerfið.“ Sagði hún það kerfi hafa „fitnað eins og púk­inn á fjós­bit­anum“ frá hruni. Þrátt fyrir að bank­arnir væru í dag að stórum hluta í eigu rík­is­ins sagði Ásta þá „ekk­ert skárri fyrir vikið, því miður“.

Frá hruni hafi bank­arnir fengið um 900 millj­arða króna í arð. „Í arð,“ end­ur­tók hún. „Við erum að tala um eftir allan kostnað og allt.“

Í hrun­inu hafi fjár­mála­fyr­ir­tækin verið sett í for­gang. Nú verði að fara að setja fólkið fremst í for­gangs­röð­ina. Hefði það verið gert í hrun­inu hefðu fimmtán þús­und fjöl­skyldur ekki misst heim­ili sín. „Þetta sýnir það að það er til fullt af pen­ingum í þessu sam­fé­lagi. Þeim er bara öllum beint til fárra útval­inna.“

Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra og full­trúi Vinstri grænna í Silfri dags­ins, var spurð hvort þetta væri rétt. Eru pen­ing­arnir til?

„Já, þeir eru það,“ svar­aði hún um hæl. „Ég er alveg sann­færð um það. Hluti af þessu eru auð­vitað pen­ingar sem eru ann­ars [staðar] í kerf­inu heldur en í dags­birt­unni. Það vitum við.“ Áður fyrr hafi verið talað um að Ísland væri laust við spill­ingu, „að við værum heil­agri og betri en aðrar þjóðir en við erum svo langt frá því“. Mögulega vegna smæð­ar­innar væri hér of mikið af kunn­ingja­sam­skiptum sem færu „undir radar“.

Spurð hvort nóg hefði verið að gert á kjör­tíma­bil­inu að sækja meiri fjár­muni sagði Svandís meðal ann­ars að hug­sjónin um jöfnuð snú­ist m.a. um að „nýta skatt­kerfið þannig að það sé ekki bara tekju­jöfn­un­ar­kerfi fyrir rík­is­sjóð heldur leið til að jafna kjör. Og þess vegna höfum við inn­leitt aftur þrepa­skipt skatt­kerfi.“

Magnús minnti á að búið væri að leggja niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra. „Það er verið að minnka eft­ir­litið þar sem það helst ætti að vera. Þessu þarf að breyta. Verk þurfa að ganga orðum framar í stjórn­málum.“

[links]Dýpra var svo farið í skatta­málin í beinu fram­haldi af spill­ing­ar­um­ræð­unni. Magnús sagði Pírata vilja skatt­leggja þá sem „breið­ust hafa bökin“ og að flokk­ur­inn væri hlynntur stór­eigna­skatti. En hjá VG færi ekki saman hljóð og mynd, eins og hann orð­aði það. „Nú talar VG um að það þurfi að nýta skatt­kerfið til að búa til meiri jöfnuð en á sama tíma vilja þau ekki taka upp stór­eigna­skatt.“

Svandís sagð­ist heyra „að Magnús hefur lesið Morg­un­blaðið. Sem er ákveðið afl í íslenskum stjórn­málum og hefur ákveðnar skoð­anir og ákveð­inn vilja til að láta hluti ger­ast í póli­tík. Og hefur alltaf verið þannig. Þegar að Morg­un­blaðið hefur [eitt­hvað] eftir Katrínu Jak­obs­dóttur þá mæli ég með því að hlusta á Katrínu Jak­obs­dóttur frekar heldur en það sem Morg­un­blaðið segir að hún hafi sagt.“

Hún sagði VG hafa talað fyrir þrepa­skiptum fjár­magnstekju­skatti og að það sé næsta skref þegar komi að því að beita skatt­kerf­inu til auk­ins jöfn­uðar. „Við höfum ekki slegið stór­eigna­skatt út af borð­inu. Við höfum sagt að það væri líka partur af þess­ari heild­ar­mynd.“

Magnús hélt þessum bolta áfram á lofti. Sagði VG hafa setið í stjórn í fjögur ár og stór­eigna­skatti hefði ekki enn verið komið á. Þegar hann sagði að ekki hefði verið ráð­ist í breyt­ingar á skatt­kerf­inu til að auka hér jöfnuð, mót­mælti Svandís því og benti á þrepa­skipta tekju­skatts­kerfið.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra og full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í umræðu­þætt­inum, bætti við að sér­stakt þrep í skatt­kerf­inu hefði verið hluti af lífs­kjara­samn­ingnum – til að létta sér­stak­lega á tekju­lægri hópum. „En það er alveg rétt að það var ekki sett á hátekju­skatt­þrep.“

Spurður hvort að honum þætti koma til greina að setja á hátekju­skatt sagð­ist hann „per­sónu­lega alltaf verið þeirrar skoð­unar að það sé skyn­sam­legt að setja á hátekju­skatt og tal­aði fyrir því. En það varð nið­ur­staðan að það var tekið skref sem fólst í því að bæta við skatt­þrepi neðst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár