Logi segir Katrínu hafna umbótamálum til að geta unnið með Sjálfstæðisflokknum

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir ljóst að sitj­andi rík­is­stjórn­ar­flokkar ætli að halda sam­starfi sínu áfram geti þeir það. Hann gagn­rýnir for­mann Vinstri grænna fyrir ummæli hennar í við­tali við mbl.is og segir hana hafna umbóta­málum.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, hafna hverju umbóta­máli á eftir öðru „til þess eins að geta áfram starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum.“ Það sé orðið nokkuð ljóst að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír ætli að gera hvað sem er til að halda sam­starfi sínu áfram.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Logi birti á Facebook í dag. Hann spyr hvort Vinstri græn ætli að hunsa þjóð­ar­vilj­ann í stóru mál­unum á næstu fjórum árum fyrir nokkra stóla og segir að þeir sem vilji „raun­veru­legar umbætur, réttlátara skatt­kerfi, betri heil­brigð­is­þjón­ustu og alvöru aðgerðir í́ lofts­lagsmálum“ sé Sam­fylk­ingin eini val­kost­ur­inn í þessum kosn­ingum.

Í stöðu­upp­færsl­unni er hann að bregð­ast við ýmsum ummælum sem Katrín lét falla í þætt­inum Dagmál á mbl.is þar sem hún sagði meðal ann­ars að það væri „ í meira lagi ein­kenni­legt“ ef Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur ræddu ekki saman um áfram­hald­andi stjórn ef flokk­arnir þrír fengu meiri­hluta til þess.

Ekki stefna Vinstri grænna að taka upp stóreignaskatt

Í við­tal­inu við Katrínu kom einnig fram að það væri ekki á stefnu­skrá Vinstri grænna að taka upp stór­eigna­skatt, sem er eitt helsta stefnu­mál Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir kom­andi kosn­ingar, heldur að skoða frekar mögu­lega þrepa­skipt­ingu fjár­magnstekju­skatt.

[adspot]Þá var Katrín einnig spurð út í veiði­gjöld og sagð­ist þá telja að þær breyt­ingar sem gerðar hefðu verið á fyr­ir­komu­lagi á inn­heimtu þeirra á kjör­tíma­bil­inu hafi verið til góða og að aðferða­fræðin á bak­við inn­heimtu þeirra, að gjaldið sé 33 pró­sent af afkomu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, sé góð. Katrín sagði einnig að þau orku­skipti sem hún og flokkur hennar kalli á í sjáv­ar­út­vegi muni kalla á auknar fjár­fest­ingar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og því þurfi þau að hafa bol­magn til fjár­fest­ingar.

Logi segir í stöðu­upp­færsl­unni að Katrín hafni herju umbóta­mál­inu á eftir öðru til að geta starfað áfram með Sjálf­stæð­is­flokknum. „Katrín segir stóreigna­skatt ekki á dag­skrá, í nýju við­tali við Morg­un­blaðið. Og er ánægð með óbreytt veiði­gjöld. En fyrir hvað stendur VG, hvert er erindi þeirra í pólitík, ef þau vilja ekki jafna kjörin í land­inu?

Þá segir Logi Katrínu opna á að gefa Sjálf­stæð­is­flokknum heil­brigð­is­ráðu­neytið í næstu ríkis­stjórn.

Í við­tal­inu var hún spurð hvort hún geri kröfu á að fá það ráðu­neyti og svar­aði: „„Það liggur ekk­ert fyrir um það hvaða ráðu­neyti við myndum gera kröfu um. Og það hangir auð­vitað bara líka á hvernig rík­is­stjórn verður mynduð.“ For­sæt­is­ráð­herra sagði aldrei með sér­tækum hætti að hún myndi ekki gera kröfu um að fá að stýra heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár