Ár óverðtryggðu lánanna

Íslend­ingar eru að sækja meira í óverð­tryggð lán en nokkru sinni áður, sam­hliða vaxta­lækkun Seðla­banka Íslands. Hratt lækk­andi verð­bólga gerir það þó að verkum að verð­tryggðu lánin er enn í mörgum til­fellum hag­stæð­ari.

Allir þurfa helst að eiga heima einhversstaðar. Og flestir þurfa að taka lán til þess að geta keypt sér heimili.
Allir þurfa helst að eiga heima ein­hvers­staðar. Og flestir þurfa að taka lán til þess að geta keypt sér heim­ili. Mynd: Pexels.com

Óverð­tryggð lán sem íslenskir bankar veittu með veði í hús­næði juk­ust um 80 millj­arða króna í fyrra. Alls fór heild­ar­um­fang þeirra úr því að vera 289 millj­arðar króna í 369 millj­arðar króna. Það er aukn­ing upp á tæp 28 pró­sent.

Á sama tíma dróg­ust verð­tryggð lán sem bank­arnir eiga saman um 27,3 millj­arða króna. Ástæðan fyrir því er meðal ann­ars að finna í að Íbúða­lána­sjóður ákvað að kaupa 50 millj­arða króna safn af verð­tryggðum lánum af Arion banka og átti sú sala sér stað í sept­em­ber 2019. Ef lána­safnið hefði ekki verið selt til Íbúða­lána­sjóðs, sem hefur dregið sig mjög saman á útlána­mark­aði á und­an­förnum árum og lánar ein­ungis verð­tryggt, hefði verið aukn­ing á verð­tryggðum lánum íslensku bank­anna.

Hlut­fallið á útlánum banka til hús­næð­is­kaupa fór því úr að vera 69 pró­sent verð­tryggð lán og 31 pró­sent óverð­tryggð í árs­lok 2018 í að vera 62 pró­sent verð­tryggð og 38 pró­sent óverð­tryggð.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Seðla­banka Íslands um stöðu banka­kerf­is­ins á Íslandi.

Aukning í óvertryggðu hjá lífeyrissjóðum

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru hinn stóri aðil­inn á útlána­mark­aði. Þeir bjóða upp á mun betri vaxta­kjör en bank­arnir en á móti eru mun færri sem upp­fylla lán­töku­skil­yrði hjá þeim. Á manna­máli þýðir það að líf­eyr­is­sjóð­irnir lána lægra láns­hlut­fall, lægri hámarks­upp­hæð og setja þrengri skorður gagn­vart hverjum þeir lána. Lægstu vext­irnir sem eru í boði hjá líf­eyr­is­sjóðum eru hjá Birtu, sem lánar verð­tryggt á 1,69 pró­­sent breyti­legum vöxtum, en þar er hámarks­­lánið reyndar 65 pró­­sent af kaup­verð­i. Til sam­an­burðar býður Lands­bank­inn best í þeim lána­flokki af öllum bönk­unum, 3,2 pró­sent vexti upp að 70 pró­sent af kaup­verði. Vextir þess banka sem býður best eru því næstum tvisvar sinnum hærri en vextir þess líf­eyr­is­sjóðs sem er með lægstu vext­ina.

[adspot]Þeir juku útlán sín veru­lega á síð­asta ári. Alls lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irn­ir 92,4 millj­arða króna í sjóðs­fé­laga­lán á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs. Mest hafa þeir lánað 99,2 millj­arða króna á einu ári, en það gerð­ist árið 2017. Allt bendir til þess að 100 millj­arða króna útlána­m­úr­inn hafi verið rof­inn í fyrra og að það ár verði þar með metár.

Í lok nóv­em­ber 2019 höfði þeir lánað 409 millj­arða króna í verð­tryggð lán til sjóðs­fé­laga en um 110 millj­arða króna í óverð­tryggðu. Hlut­fallið hjá þeim var því þannig að 21 pró­sent útlána líf­eyr­is­sjóð­anna til sjóðs­fé­laga voru óverð­tryggð en 79 pró­sent verð­tryggð.

Alls juk­ust óverð­tryggð lán líf­eyr­is­sjóða um 37,5 pró­sent á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins í fyrra en verð­tryggðu lánin um 15,8 pró­sent. Þótt verð­tryggðu lánin séu enn mik­ill meiri­hluti útlán­anna þá er ljóst að þau óverð­tryggðu sóttu í sig veðrið.

Athyglisverð þróun

Útlána­aukn­ing líf­eyr­is­sjóð­anna er athygl­is­verð af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að það hægði veru­lega á hækkun hús­næð­is­verðs í fyrra, en vísi­tala kaup­verðs alls íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 2,2 pró­sent á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2019. Til sam­an­burðar hækk­aði hús­næði­verðið um 13,6 pró­sent á árinu 2017 og 5,8 pró­sent á árinu 2018.

Í öðru lagi þá var umtals­verð verð­bólga í lok árs 2018 og í byrjun árs 2019 og reis hæst í des­em­ber 2018 þegar hún var 3,7 pró­sent. Verð­bólga hefur veru­leg áhrif á lána­kjör fjölda Íslend­inga þar sem flestir þeirra eru með verð­tryggð lán. Þegar leið á árið í fyrra lækk­aði verð­bólgan hins vegar skarpt og í des­em­ber 2019 mæld­ist hún tvö pró­sent, vel undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands.

Í þriðja lagi hafa stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi allir reynt að draga úr eft­ir­spurn eftir sjóðs­fé­laga­lánum hjá sér með því að þrengja lána­skil­yrði og hækka vexti hjá sér.

Lán­tak­endur sjóða að leita aftur í verð­tryggt

Í októ­ber 2019 gerð­ist það í þriðja sinn í sögu íslenska líf­eyr­is­­sjóða­­kerf­is­ins að sjóðs­fé­lagar tóku meira að láni óverð­­tryggt en verð­­tryggt. Í hin tvö skipt­in, í des­em­ber 2018 og í jan­úar 2019, hafði verð­­bólga hækkað nokkuð skarpt og var á bil­inu 3,4 til 3,7 pró­­sent, eftir að hafa verið að mestu undir 2,5 pró­­sent verð­­bólg­u­­mark­miði Seðla­­bank­ans frá því í febr­­úar 2014. Í októ­ber var hún hins vegar 2,8 pró­­sent og spár gerðu ráð fyrir að verð­­bólgan myndi fara við og jafn­­vel undir 2,5 pró­­sent verð­­bólg­u­­mark­mið í nán­­ustu fram­­tíð. Það gerð­ist síð­an, líkt og áður sagði, í des­em­ber þegar skörp lækkun skil­aði verð­bólg­unni niður í tvö pró­sent.

Þessar vænt­ingar skil­uðu því að algjör við­snún­ingur varð í lán­tökum sjóðs­fé­laga líf­eyr­is­sjóð­anna á ný. Alls voru 65 pró­sent nýrra útlána í nóv­em­ber 2019 verð­tryggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár