Róbert Marshall í launalaust leyfi til að einbeita sér að framboði

Frá því í mars í fyrra hefur Róbert Marshall starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar. Hann vill nú kom­ast aftur á þing.

Róbert Marshall, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, er kom­inn í launa­laust leyfi. Frá þessu greinir Róbert á Facebook síðu sinni. Ástæða leyf­is­ins er sú að Róbert er fram­bjóð­andi í for­vali Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – grænu fram­boði í Suð­ur­kjör­dæmi.

Róbert var ráð­inn upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar í mars í fyrra en áður hefur hann gegnt þing­mennsku fyrir Sam­fylk­ing­una og Bjarta Framtíð. Róbert hafði áður verið aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra og starf­aði við fjöl­miðla um ára­bil og var um tíma for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands.[adspot]

Róbert hefur einnig starfað við fjalla­leið­sögn, þjálfun og úti­vist á und­an­förnum árum. Í til­kynn­ingu sinni seg­ist Róbert meðal ann­ars ætla að beita sér fyrir umhverf­is­málum og nátt­úru­vernd.

„Verk­efnið framundan er að tala fyrir nátt­úru­vernd, umhverf­is­málum, grænni upp­bygg­ingu atvinnu­lífs og félags­legu rétt­læti í krefj­andi fram­tíð og stækka kjós­enda­hóp þess­ara sjón­ar­miða á svæði sem ég þekki vel og á djúpar rætur í. Ég hlakka til far­ar­innar enda erindið mik­il­vægt,“ segir Róbert meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni. Hann vísar í kjöl­farið í feril sinn sem þing­manns og hendir gaman að, segir end­ur­nýjun alltaf hafa verið mik­il­væga í stjórn­málum en að end­ur­nýt­ing sé lyk­il­hug­tak grænnar fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár