Vill athuga hvert „Allir vinna“- endurgreiðslurnar fara

End­ur­greiðslur á virð­is­auka­skatti vegna bygg­ing­ar­fram­kvæmda og við­gerða hafa kostað rík­is­sjóð 16,5 millj­arða króna. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vill nú vita hvert þessar fjár­hæðir hafa farið og hvort meintur ávinn­ingur vegna átaks­ins hafi verið met­inn.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lagt fram form­lega fyr­ir­spurn til fjár­mála­ráð­herra um hvernig end­ur­greiðslu­upp­hæðir vegna verk­efn­is­ins „Allir vinna“ árin 2021 skipt­ust eftir sveit­ar­fé­lögum, lög­að­ilum, ein­stak­lingum og tekju­tí­undum. Auk þess spurði hún hvort meintur ávinn­ingur rík­is­sjóðs vegna átaks­ins, sem for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar sagði vera „óyggj­andi“, hefði verið met­inn. Fyr­ir­spurn­ina má finna á vef Alþingis.

„Allir vinna“- átakið felur í sér end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatt vegna ýmiss konar iðn­að­ar­vinnu, þar á meðal bygg­ingar og við­hald hús­næðis og bíla­við­gerðir. Átakinu var fyrst hrundið af stað í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins frá 2010 til 2015, en það var svo komið aftur á árið 2020, þegar búist var við hruni í bygg­ing­ar­iðn­að­inum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu hafði átakið kostað rík­is­sjóð 16,5 millj­arða króna við síð­ustu árs­lok. Alþingi sam­þykkti svo á milli jóla og nýárs að átakið yrði fram­lengt í tak­mark­aðri mynd í ár, í kjöl­far beiðni um slíkt frá Samtökum iðn­að­ar­ins. Fjár­mála­ráðu­neytið hafði hins vegar mælt gegn slíkri fram­leng­ingu í minn­is­blaði sem það sendi til efna­hags- og við­skipta­nefndar þings­ins, en þar stóð að hún fæli í sér inn­spýt­ingu á fjár­magni í hag­kerfi sem sé nú þegar þanið.

Guðrún Haf­steins­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður nefnd­ar­innar, varði ákvörðun hennar um að mæla með fram­leng­ingu úrræð­is­ins með þeim rökum að enn væri til staðar slaki í bygg­ing­ar­iðn­aði. Enn fremur sagði hún að það væri „óyggj­andi“ að átakið myndi skila sér í ávinn­ingi fyrir rík­is­sjóð vegna minni svartrar atvinnu­starf­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár