Ráðherrann á sjömílnaskónum

Fjöl­miðla­lands­lagið hefur breyst mikið á und­an­förnum árum og Danir eru að boða rót­tækar breyt­ingar á lögum um fjöl­miðla og danska rík­is­út­varpið.

,,Við stígum sjömílna­skref og tökum djúpa skóflustungu“ sagði Mette Bock menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur þegar hún kynnti fyr­ir­hug­aða útfærslu dönsku rík­is­stjórn­ar­innar á sam­komu­lagi um rekstr­ar­um­hverfi ljós­vaka- og prent­miðla sl. fimmtu­dag. Rík­is­stjórnin hafði áður greint frá því að fram­lög til Danska rík­is­út­varps­ins, DR, yrðu skorin niður um 20 pró­sent á næstu fimm árum. Rík­is­stjórnin stefnir að því að selja 40 pró­sent af sjón­varps­stöð­inni TV2, slíkt hefur verið reynt áður en þá var ,,lík í lest­inni“ sem gerði þær hug­myndir að engu.

[links]Þegar fyr­ir­ætl­anir dönsku rík­is­stjórn­ar­innar um tutt­ugu pró­senta nið­ur­skurð Danska rík­is­út­varps­ins, DR, voru kynntar fyrir rúmum tveim vikum kom það mörgum á óvart að það var Kristian Jensen fjár­mála­ráð­herra, ásamt einum þing­manni Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem styður stjórn­ina í flestu, sem gerði frétta­mönnum grein fyrir ákvörðun stjórn­ar­innar. Ekki menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann, ráð­herra mála­flokks­ins. Fyrir utan nið­ur­skurð­inn hjá DR var helsta frétt þess fundar að í stað afnota­gjalds verður tek­inn upp nef­skattur. Fjár­mála­ráð­herr­ann sagði að breyt­ingin þýddi jafn­framt skatta­lækkun. Á áður­nefndum fundi kom fram að stjórn­ar­flokk­arnir, ásamt Danska Þjóð­ar­flokknum hefðu orðið sam­mála um nið­ur­skurð­inn og ef stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir vildu taka þátt í gerð fjöl­miðla­samn­ings næstu fjög­urra ára yrðu þeir að sam­þykkja nið­ur­skurð­inn hjá DR.

Þetta köll­uðu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ,,afar­kosti“ og ekki er á þess­ari stundu ljóst hvort þeir taka þátt í gerð samn­ings­ins. Hvort þeir verða með eða ekki skiptir hins­vegar miklu máli. Ef þeir verða með verður ekki hróflað við samn­ing­unum næstu fjögur árin, frá árinu 2019, ef þeir verða ekki með en samn­ing­ur­inn sam­þykktur á þingi er núver­andi stjórn­ar­and­staða óbundin af samn­ingnum. Gæti þess vegna tekið hann upp strax eftir næstu kosn­ingar, sem verða vænt­an­lega á næsta ári.

Samningurinn

Þess hafði verið beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu hverjar til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi nýja ramma­samn­ing­inn yrðu, aðrar en boð­aður nið­ur­skurður hjá DR. Og sl. fimmtu­dag voru til­lög­urnar kynntar, og að þessu sinni var það menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann, Mette Bock sem það gerði. Ráð­herr­ann sagði að með þessum samn­ingi væri stigið sjömílna­skref og tekin djúp skóflustunga. Nánar til­tekið að hér væri um að ræða mestu breyt­ingar á dönsku fjöl­miðlaum­hverfi í ára­tugi.

[adspot][Og breyt­ing­arnar eru vissu­lega umtals­verðar:

1. 20 pró­sent nið­ur­skurður hjá DR. Gert ráð fyrir að sjón­varps­rás­unum fækki um tvær, en þær eru nú sex. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn setti sem skil­yrði fyrir stuðn­ingnum að barna­efni yrði ekki skorið niður.

2. Stjórnin vill selja 40 pró­sent hlut í TV2, en ríkið eigi áfram 60 pró­sent, fyrst um sinn. Ráð­herr­ann sagði að stefna stjórn­ar­innar væri að selja TV2, eins og það leggur sig, en það yrði ekki gert strax. En TV2 er með ,,lík í lest­inni“ eins og blaða­maður Berl­ingske kall­aði það, stöðin á hugs­an­lega yfir höfði sér millj­arða sekt frá ESB, vegna rík­is­styrks. Þetta er gam­alt mál og teng­ist því að stöðin er að stærstum hluta rekin á aug­lýs­inga­tekjum. Fyrir meira en ára­tug var ætl­unin að selja TV2 en þá fóru þær hug­myndir upp í loft, vegna þess­ara sömu mála. Mette Bock sagði frétta­mönnum að hugs­an­legir kaup­endur að TV2 yrðu los­aðir undan öllum slíkum ábyrgðum. Vitað er að margir renna hýru auga til TV2, þar á meðal nokkrar stærstu fjöl­miðla­sam­steypur Dan­merkur. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn vill að starf­semi TV2 verði í auknum mæli flutt til Óðinsvéa, á Fjóni, þar sem höf­uð­stöðv­arnar eru. Starf­semin hefur í auknum mæli flust til Kaup­manna­hafnar og því vill Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn breyta.

3. Svæð­is­stöðvar TV2 eiga árlega að spara 2 pró­sent næstu fimm árin. Þetta vekur ekki mikla hrifn­ingu hjá Danska þjóð­ar­flokknum, óljóst er um við­horf ann­arra.

4. Stjórnin vill sexfalda það sem kallað er ,,almanna­þjón­ustu­pott­ur­inn“. Þetta er sjóður sem sjálf­stæðir fram­leið­endur geta sótt um styrki úr. Miðað er við að við­fangs­efni sem styrk hlýtur varði danskt þjóð­líf, sögu og menn­ingu. Þessi ,,pottur“ verður 220 millj­ónir(3.6 millj­arðar íslenskir) á ári.

5. Stjórnin hyggst bjóða út rekstur nýrrar sjón­varps­rásar, sem sinni menn­ing­ar­málum og upp­lýs­inga­miðlum ásamt útvarps­rás sem sendi sígilda tón­list og menn­ing­ar­efni.

6. Net­miðlar verði und­an­þegnir virð­is­auka­skatti, eins og nú gildir um prent­miðla

7. Krafa um að DR og TV2 kaupi danskar kvik­myndir verður afnumin. Styrkur til kvik­mynda­gerðar verður auk­inn.

8. Sér­stakur sjóður verður mynd­aður, ætl­aður til að styrkja svæðis- og viku­frétta­blöð, utan þétt­býl­iskjarna. Reglur varð­andi þennan sjóð, og sama gildir um næsta lið hér fyrir neðan.

9. Styrkur til nýrra prent- og net­miðla verður auk­inn frá því sem nú er.

10. Þegar starfs­leyfi Radio24Syv rennur út í októ­ber 2019 verður starf­semin boðin út. Fjár­veit­ingar til stöðv­ar­innar verða skornar niður um þriðj­ung. Þessi ákvörðun vekur mikla athygli því Radio24Syv, sem var sett á lagg­irnar árið 2010 og er tal­máls­rás, fréttir og umræðu­þættir eru uppi­staða dag­skrár­innar. Sú ákvörðun að skera fram­lag til þess­arar stöðvar niður hefur vakið undrun margra, sem og sú krafa Danska þjóð­ar­flokks­ins að stöðin, sem nú er í Kaup­manna­höfn, verði flutt til Vestur-Jótlands.

11. Öllum útvarps­send­ingum á FM bylgju verður hætt þegar helm­ingur hlust­enda nýtir sér staf­ræna tækni við mót­töku send­inga. Í síð­asta lagi þó árið 2021.

Minni fjármunir en betra efni

Mette Bock ráð­herra menn­ing­ar­mála sagði á frétta­manna­fund­inum að DR myndi áfram gegna mik­il­vægu hlut­verki í dönsku sam­fé­lagi. Tímarnir hefðu hins­vegar breyst og nú gætu margir aðrir fram­leitt og boðið uppá vandað efni, bæði í útvarpi og sjón­varpi. Hún teldi að nið­ur­skurð­ur­inn hjá DR yrði til að ,,skerpa fók­us­inn“ eins og hún komst að orði og DR myndi bjóða uppá vand­aðra efni. Frétta­menn vildu fá útskýr­ingar á því hvernig minni pen­ingar þýddu betra efni.

Eins og vænta mátti hefur mikið verið fjallað um þetta mál í dönskum fjöl­miðlum. Margir hafa lýst ákveðnum ótta við þessar breyt­ingar, með minni umsvifum DR sjái erlendir aðilar sér leik á borði til að ná auknum ítökum á dönskum sjón­varps­mark­aði. Hvort sú verður raunin er ókomið í ljós.

Hvað nú?

Nú kemur fjöl­miðla­samn­ing­ur­inn til kasta þings­ins. Búast má við miklum átökum því vitað er að margir þing­menn eru ósáttir við margt í fyr­ir­ætl­unum stjórn­ar­innar. Í sumum fjöl­miðl­anna hefur það verið rifjað upp að Mette Bock menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafi um fjög­urra ára skeið verið aðal­rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri dag­blaðs­ins JydskeVest­kysten. Ýmsar ákvarð­anir hennar urðu þess vald­andi að blaðið var nærri farið á haus­inn og hún hrökkl­að­ist úr starf­inu. Skömmu síðar var hún ráðin til DR, sem dag­skrár­stjóri, sú ráðn­ing vakti undrun margra. Eftir tæp­lega tveggja ára veru þar sagði hún upp og fékk tveggja millj­óna starfs­loka­samn­ing (tæpar 33 millj­ónir íslenskar). ,,Er þetta rétta mann­eskjan til að segja DR að hysja upp um sig?“ spyr dálka­höf­undur Politi­ken og lætur les­endum eftir að svara.

Nýr samn­ingur á að taka gildi 1. jan­úar á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár