Megrunarkúr danska útvarpsins

Á næstu árum minnka fjár­veit­ingar til danska útvarps­ins, DR, um sam­tals 20% pró­sent. Fjár­mála­ráð­herr­ann kallar þetta megr­un­ar­kúr, stjórn­ar­anda­staðan aðför.

Höfuðstöðvar DR í Kaupmannahöfn.
Höf­uð­stöðvar DR í Kaup­manna­höfn. Mynd: Wiki Commons.

Þegar nýr rekstr­ar­samn­ingur dönsku ljós­vaka­miðl­anna tekur gildi í árs­byrjun 2019 verður hann tals­vert breyttur frá núver­andi samn­ingi. Rekstr­ar­samn­ingar þessir hafa verið til fjög­urra ára í senn, núver­andi samn­ingur var gerður í stjórn­ar­tíð Helle Thorning-Schmidt, árið 2014. Sá samn­ingur var gerður með svo­nefndu „breiðu sam­komu­lagi“ sem þýðir að meiri­hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar studdi hann.

Danska rík­is­út­varpið hóf útsend­ingar 1. apríl 1925, og hét þá Stats­radi­of­on­ien. Sjón­varps­út­send­ingar hófust árið 1951 og í upp­hafi var sent út þrisvar í viku. Árið 1959 var nafn­inu breytt í Danmarks Radio, DR. Frá upp­hafi hefur DR verið fjár­magnað með afnota­gjaldi, sem var í byrjun 10 krónur á hvert heim­ili í land­inu og var óbreytt til árs­ins 1949. Þessu verður nú breytt, afnota­gjaldið hverfur en þess í stað tek­inn upp svo­nefndur nef­skattur. Hann er, einsog heitið gefur til kynna, ein­stak­lings­skattur sem allir er náð hafa 18 ára aldri greiða, með ákveðnum und­an­tekn­ingum fyrir aldr­aða. Breyt­ingin hefur í för með sér að ein­stak­lingur sem býr einn borgar lægra gjald en á meðan afnota­gjaldið (sem mið­að­ist við heim­ili) var við lýði. Tveir sem búa saman borga svipað og heim­ilið gerði áður, ef þrír, eldri en 18 ára, eru í heim­ili verður sam­an­lagður nef­skattur þeirra hærri en afnota­gjaldið var. Nef­skatt­ur­inn á að koma í veg fyrir að ein­stak­lingar geti komið sér hjá að borga en all­stór hópur fólks, skiptir tugum þús­unda, hefur ekki greitt afnota­gjaldið. Afnota­gjaldið, sem ekki rennur óskipt til DR, verður á þessu ári dkr. 2.527. – (ca 42 þús. íslenskar), af þess­ari upp­hæð er sölu­skatt­ur­inn kr. 505.- (8.340.-). Til DR fara kr. 1.684.- (27.820.-), afgangur rennur til svæð­is­stöðva, kvik­mynda­sjóðs og afmark­aðra verk­efna.

Nefskattur og niðurskurður

Breyt­ingin úr afnota­gjaldi í nef­skatt á ekki að breyta miklu varð­andi tekj­urnar rík­is­ins. Samkvæmt ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar verður nef­skatt­ur­inn hjá ein­stak­lingi dkr. 1.285.- ( 21.160.- ). Fram­lagið til DR minnkar, einsog áður sagði um 700 millj­ónir (20%) á næstu fimm árum, fram­lög til ann­arrar fjöl­miðla­starf­semi, sem áður komu frá afnota­gjald­inu hald­ast nær óbreytt. Mis­mun­ur­inn (nið­ur­skurð­ur­inn hjá DR) gengur að stærstum hluta móti horfnum sölu­skatti (eng­inn sölu­skattur á nef­skatt­inum) en afgang­ur­inn á að gagn­ast elli­líf­eyr­is­þegum og einnig verður hluta upp­hæð­ar­innar varið í að styrkja aðra fjöl­miðla­starf­semi, einsog það var orðað í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar. Dönskum fjöl­miðla­mönnum þótti athygl­is­vert að það var Kristian Jensen fjár­mála­ráð­herra sem kynnti ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar (með stuðn­ingi Danska þjóð­ar­flokks­ins DF) en ekki Mette Bock menn­ing­ar­mála­ráð­herra en mál­efni fjöl­miðla heyra undir hana. Ráð­herr­arnir sögðu að DR ætti að verða hnit­mið­aðra en það er í dag og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann sagði að DR ætti að vera viti, bara minni en núna. Nefndi ekki að minni viti lýsir skemmra út á alþjóða­haf fjöl­miðl­un­ar­innar. Blaða­maður Information sagði að erlendir fjöl­miðl­arisar væru ugg­laust mjög ánægðir með þau sókn­ar­færi sem þeir sæju framundan.

Vildi skera meira

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, vildi skera fram­lög til DR niður um 25%. Þar á bæ vissu menn að þá kröfu myndu stjórn­ar­flokk­arnir (sem reiða sig á stuðn­ing DF) ekki sam­þykkja og Peter Skaarup þing­flokks­for­maður DF gat ekki leynt ánægju sinni þegar ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt. DF hefur lengi haft horn í síðu DR og margoft sakað stofn­un­ina um að vera flokknum andsnúið í frétta­flutn­ingi.

Skattalækkanir – Skattahækkanir

Þegar fjár­mála­ráð­herr­ann kynnti breyt­ing­arnar og fyr­ir­hug­aðan nið­ur­skurð á fram­lagi til DR lagði hann mikla áherslu á að breyt­ingin væri líka skatta­lækkun. Skatta­lækkun sem kæmi mörgum til góða. Ráð­herr­ann nefndi þar tölur máli sínu til stuðn­ings. Síð­ast­lið­inn föstu­dag, nokkrum dögum eftir að ráð­herr­ann kynnti breyt­ing­arnar, sendi Rann­sókn­ar­stofn­unin Cepos (sjálf­stæð stofnun, tæn­ket­ank) frá sér álits­gerð þar sem nið­ur­staðan er þver­öfug. Breyt­ingin leiði, þegar litið er til lengri tíma, til skatta­hækk­ana. Cepos er virt stofnun og þegar greint var frá nið­ur­stöðum hennar brugð­ust tals­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins og Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins (eins rík­is­stjórn­ar­flokk­anna) strax við og sögðu að lík­leg­ast væri rétt að fara betur í saumana á þessu máli öllu. Þeir sögðu jafn­framt að ef í ljós kæmi að nið­ur­staða Cepos væri rétt yrði að skoða allt varð­andi nef­skatts­breyt­ing­una upp á nýtt.

Stjórnarandstaðan

Innan stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eru skoð­anir skiptar. Sós­í­alde­mókratar, stærsti flokk­ur­inn á þingi, höfðu lýst sig hlynnta því að dregið yrði úr umfangi DR, en ekk­ert í lík­ingu við það sem nú virð­ist blasa við. Rík­is­stjórnin hefur boðið stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum að taka þátt í sam­starfi um nýja rekstr­ar­samn­ing­inn, með því skil­yrði að þeir sam­þykki 20% nið­ur­skurð­inn. Fyrir stjórn­ina er mik­il­vægt að stjórn­ar­and­staðan standi að samn­ingnum því það þýðir að ekki verður hróflað við samn­ingnum út gild­is­tím­ann, fram til árs­ins 2023. Ef stjórn­ar­and­staðan stendur ekki að samn­ingnum er hún óbundin af honum ef stjórn­ar­skipti verða eftir næstu kosn­ingar sem að óbreyttu verða á næsta ári. Svo skammt er um liðið síðan ákvörð­unin um nið­ur­skurð­inn var til­kynnt að ekki er ljóst hvað stjórn­ar­and­staðan gerir. Stjórn­mála­skýr­andi dag­blaðs­ins Berl­ingske sagði að nú færi kannski tími póli­tískra hrossa­kaupa í hönd og þá gæti það til dæmis gerst að samið yrði um minni nið­ur­skurð gegn stuðn­ingi Sós­í­alde­mókrata við samn­ing­inn.

Hvað gerir DR?

Þessari spurn­ingu er auðsvarað: það veit eng­inn. Á þessu ári hefur DR til ráð­stöf­unar um það bil 3.8 millj­arða danskra króna (62.6 millj­arðar íslenskir) en sú upp­hæð lækkar sem­sagt, í áföngum niður í 3.1 millj­arð (51 millj­arð íslenskan) á næstu árum. Þetta eru miklir pen­ingar en rétt er að geta þess í leið­inni að DR hefur engar tekjur af aug­lýs­ingum.

Fyrir þessa pen­inga rekur DR sex sjón­varps­rásir, átta útvarps­rásir og auk þess marg­verð­laun­aðar hljóm­sveitir og kóra. Tvær sjón­varps­rásanna eru ætl­aðar börnum upp að tólf ára aldri og Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn gerði að skil­yrði varð­andi nið­ur­skurð­inn að ekki yrði hróflað við barna­efn­inu, þar yrði ekki skorið.

Mestu útgjöldin tengj­ast aðal­sjón­varps­rásinni, DR1. Þar er dag­legur úsend­ing­ar­tími lengstur, þar eru „stóru“ dönsku þátt­arað­irnar sýndar. Í stuttu máli sú rás sem mest er lagt í, enda sú sem lang flestir horfa á.

Í við­tölum hefur útvarps­stjór­inn, Marie Rørbye Rønn, sagt óhjá­kvæmi­legt að jafn mik­ill nið­ur­skurður og rík­is­stjórnin stefnir að komi niður á dag­skránni. Ein af rök­semdum Danska þjóð­ar­flokks­ins fyrir nið­ur­skurð­inum er að DR eigi ekki að eyða miklu fé í skemmti­efni, það geti aðrir fjöl­miðlar gert jafn vel. Útvarps­stjór­inn segir að þjóð­ar­sjón­varp eigi að vera fyrir alla, þar eigi að vera frétta- og fræðslu­efni af öllu tagi, þjóð­fé­lags­um­ræða, inn­lendar og erlendar kvik­myndir og skemmti­efni. ,,Þessa blöndu kalla ég almanna­þjón­ustu“ sagði útvarps­stjór­inn.

DR er hornsteinn í samfélaginu

Í dönskum fjöl­miðlum hefur und­an­farna daga mikið verið fjallað um DR og hvernig stofn­unin muni takast á við þessar miklu breyt­ingar sem í vændum eru. Margir hafa bent á að þeir sjón­varps­mynda­flokkar sem hafi orðið vin­sælir víða um heim hafi nær allir orðið til fyrir til­stilli DR. Hafi komið Danmörku á sjón­varps­heimskortið eins og margir hafa nefnt. Per Stig Møller fyrr­ver­andi menn­ing­ar­mála- og utan­rík­is­ráð­herra Íhalds­flokks­ins sagði í blaða­við­tali að DR væri ekki galla­laust. Þar mætti ýmis­legt betur fara En stofn­unin væri, og hefði alla tíð verið, einn af horn­stein­unum í dönsku sam­fé­lagi og ætti að vera það áfram. Í skoð­ana­könn­unum hafa Danir árum saman tekið undir það við­horf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár