Lífeyrissjóðirnir samþykkja að fara ekki út með peninga fyrr en í september

Sam­komu­lag milli Seðla­banka Íslands og íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna um að hinir síð­ar­nefndu kaupi ekki gjald­eyri til erlendra fjár­fest­inga hefur verið fram­lengt um þrjá mán­uði. Það mun því gilda í sex mán­uði hið minnsta.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa sam­þykkt að fram­lengja hlé á gjald­eyr­is­kaupum sínum til erlendra fjár­fest­inga til 17. sept­em­ber næst­kom­andi. Upp­haf­lega var gert sam­komu­lag við Seðla­banka Íslands 17. mars um að þeir myndu ekki fjár­festa erlendis í þrjá mán­uði til að bregð­ast við miklum sam­drætti útflutn­ings­tekna vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Það sam­komu­lag átti að gilda fram á næsta mið­viku­dag.

Í morgun til­kynnti svo Seðla­bank­inn um að sam­komu­lagið hefði verið fram­lengt. Í til­kynn­ingu hans agði að ljóst væri að hlé á erlendri fjár­fest­ingu líf­eyr­is­sjóð­anna hefði „gegnt veiga­miklu hlut­verki í að við­halda þjóð­hags­legum stöð­ug­leika í gegnum þær hol­skeflur sem skollið hafa á þjóð­ar­skút­unni síð­ustu 3 mán­uði. Nú hefur verið ákveðið að fram­lengja hléið um aðra þrjá mán­uði, eða til 17. sept­em­ber nk. Með þessu hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir á ný sýnt stuðn­ing sinn í verki við að stuðla að stöð­ug­leika á gjald­eyr­is­mark­aði.“

[adspot]Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri segir að Seðla­bank­inn þakki fyrir þá sam­fé­lags­legu ábyrgð sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi sýnt í þeim þreng­ingum sem þjóðin gangi nú í gegnum. „Samvinna bank­ans og sjóð­anna hefur vakið athygli erlendis og hefur m.a. verið sér­stak­lega til­greind í nýlegum umsögnum alþjóð­legra mats­fyr­ir­tækja. Þessi sam­vinna er kvik. Unnt verður að bregð­ast skjótt við ef aðstæður á gjald­eyr­is­mark­aði breyt­ast og svig­rúm skap­ast fyrir sjóð­ina til þess að hefja erlendar fjár­fest­ingar og gjald­eyr­is­kaup þeim tengd á nýjan leik.“

Erlendar fjárfestingar mikilvægar í framtíðinni

Ásgeir segir enn fremur að und­an­farin ár hafi Ísland breyst úr því að vera fjár­magnsinn­flytj­andi með þrá­látan við­skipta­halla í fjár­magns­út­flytj­anda með drjúgan við­skipta­af­gang. „Þessi við­snún­ingur stafar að miklu leyti af þeim sparn­aði sem verður jafnt og þétt til í líf­eyr­is­kerf­inu og hefur skapað nýjar for­sendur til þess að við­halda þjóð­hags­legum stöð­ug­leika. Það hefur sann­ar­lega komið land­inu til góða á síð­ustu mán­uðum.“

Seðla­bank­inn árétti þó að erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna séu mjög mik­il­vægar þegar horft sé fram á veg­inn, hvort sem litið sé til hags­muna sjóð­fé­laga eða þjóð­ar­innar í heild. „Þær fela í sér áhættu­dreif­ingu líf­eyr­is­eigna og koma í veg fyrir nei­kvæð áhrif af útgreiðslu líf­eyris á íslenskt hag­kerfi í fram­tíð­inni. Þá eru erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða nauð­syn­legar til þess að við­halda jafn­vægi á greiðslu­jöfn­uði við jákvæðan við­skipta­jöfnuð, útflutn­ings­drif­inn hag­vöxt og sköpun nýrra starfa.“

Krónan hefur sveiflast umtalsvert

Íslenska krónan veikt­ist umtals­vert framan af ári, sér­stak­lega eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn og efna­hags­legar afleið­ingar skullu á af fullum krafti. Staðan leiddi meðal ann­ars til þess að hið óform­lega sam­komu­lag milli Seðla­banka Íslands og líf­eyr­is­sjóða lands­ins var gert um að þeir myndu ekki breyta krónum í annan gjald­eyri í þrjá mán­uði til að hindra enn meiri veik­ingu. Það hefur nú verið fram­lengt um þrjá mán­uði.

Vegna veik­ing­ar­innar greipa Seðla­bank­inn nokkrum sinnum inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn í mars og apríl til að draga úr hraða veik­ingu henn­ar. Í mars seldi hann alls gjald­eyri úr forða sínum fyrir 10,2 millj­arða króna. Þar á meðal voru við­skipti upp á 3,6 millj­arða króna þann 13. mars, sem er hæsta upp­hæð upp­­hæð innan dags frá árinu 2008 hið minnsta, þegar banka­hrun varð á Íslandi.

Bank­inn hélt áfram að grípa inn í mark­að­inn í apríl og seldi þá gjald­eyri fyrir alls 7,2 millj­arða króna. Alls var hlutur Seðla­bank­ans í veltu á gjald­eyr­is­mark­aði í þeim mán­uði 36,3 pró­sent, sem er langt yfir því sem vana­legt þyk­ir. Til sam­an­burðar var hann 17,5 pró­sent í mars þrátt fyrir umtals­verð inn­grip.

Yfir tíu pró­sent veik­ing það sem af er ári

Í lok maí, 26. og 27. þess mán­að­ar, urðu frek­ari inn­grip í mark­að­inn. Nú var Seðla­bank­inn hins vegar að kaupa gjald­eyri til að draga úr umtals­verðri styrk­ingu krón­unnar sem átt hafði sér stað dag­anna áður. Allt i allt keypti Seðla­bank­inn gjald­eyri fyrir 2,7 millj­arða króna í síð­asta mán­uði og bar ábyrgð á 14,3 pró­sent af heild­ar­veltu á gjald­eyr­is­mark­aði í krón­um.

Erfitt er að segja nákvæm­lega til um hvað olli hinni skyndi­legu, og hröðu styrk­ingu krón­unnar sem jók alþjóð­legt virði króna í vasa íslensks launa­fólks en fækk­aði krón­unum sem útflutn­ings­fyr­ir­tæki fengu fyrir gjald­eyr­inn sem þau skiptu í krón­ur. Vert er þó að benda á að 27. maí gaf rík­is­sjóður Íslands út skulda­bréf upp á 500 millj­­ónir evra, eða 76 millj­­arða króna. Mikil eft­ir­­spurn var eftir kaupum á bréfum úr útgáf­unni og alls bár­ust til­­­boð frá yfir 200 aðilum fyrir 3,4 millj­­arða evra í hana, eða tæp­­lega sjö sinnum það sem var í boð­i. Það gaf til kynna að rík­is­sjóður gæti nokkuð auð­veld­lega sótt sér meira láns­fjár­magn í nán­ustu fram­tíð, ef vilji væri til.

[adspot]Vegna þess­­arar miklu umfram­eft­ir­­spurnar tókst líka að fá betri kjör en upp­­haf­­lega var stefnt að, nánar til­­­tekið 0,3 pró­­sent­u­­stigum lægri vexti. Skulda­bréfin sem gefin voru út bera 0,625 pró­­sent vexti, eru til sex ára og á ávöxt­un­­ar­­kröf­unni 0,667 pró­­sent.

Innan árs hefur íslenska krónan veikst gagn­vart evru um 11,7 pró­sent, en síð­ast­lið­inn mánuð hefur hún styrkst um rúm­lega fjögur pró­sent. Þá er með­talin umtals­verð veik­ing hennar síð­ari hluta lið­innar viku. Gagn­vart Banda­ríkja­dal hefur krónan veikst um 10,1 pró­sent það sem af er ári en styrkst um níu pró­sent á síð­ast­liðnum mán­uð­i.

Eignir lífeyrissjóða jukust um 223 milljarða á einum mánuði

Þrátt fyrir að líf­eyr­is­sjóð­irnir megi ekki fara út með pen­inga hafa eignir þeirra stór­auk­ist. Eignir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins juk­ust til að mynda um 223 millj­arða króna í apr­íl­mán­uði. Þær hafa aldrei auk­ist um jafn háa upp­hæð í einum mán­uði áður. Sam­tals námu eign­irn­ar 5.173,2 millj­örðum króna í lok apr­íl­mán­að­ar. Til sam­an­burðar má nefna að eignir sjóð­anna dróg­ust saman um 209 millj­arða króna í októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi. Þá voru heild­ar­eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna þó mun minni, eða 1.659 millj­arðar króna, og hlut­falls­legi sam­drátt­ur­inn því mun meiri en hlut­falls­leg hækkun nú.

Mestu mun­aði um að erlendar eignir sjóð­anna juk­ust um 171,4 millj­arða króna. Þær voru 1.656,5 millj­arðar króna í lok apríl og höfðu aldrei verið meiri. Þar virka saman mikil hækkun á alþjóð­legum hluta­bréfa­mörk­uðum og veik­ing krón­unnar í apr­íl­mán­uði. Hækk­unin vakti ekki síður athygli vegna þess að hið óform­legt sam­komu­lag um að líf­eyr­is­sjóð­irnir haldi að sér höndum í gjald­eyr­is­kaup­um, og þar af leið­andi erlendum fjár­fest­ing­um, var í gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár