Icelandair segir að ferðabannið muni hafa „veruleg áhrif“

Icelandair greinir nú mögu­legar sviðs­myndir og mót­væg­is­að­gerðir í ljósi þeirra stöðu sem upp er komin. Ferða­bann til Banda­ríkj­anna mun hafa mikil áhrif á íslenska flug­fé­lagið.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Tíma­bundið ferða­bann banda­rískra stjórn­valda til og frá Evrópu, sem gildir í 30 daga frá 14. mars., mun hafa veru­leg áhrif á flug­á­ætlun Icelandair á tíma­bil­inu og mun félagið draga enn frekar úr fram­boði á flugi í mars og apríl, umfram það sem áður hefur verið til­kynnt.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu félags­ins í Kauphöll rétt í þessu. Þar segir að alls hafi verið um 490 flug­ferðir eru áætl­aðar til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. „Ljóst er að útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur veru­leg áhrif á ferða­lög um allan heim. Fjár­hags­leg áhrif þessa á Icelandair Group eru enn óviss en eins og til­kynnt hefur verið um er félagið að greina mögu­legar sviðs­myndir og mót­væg­is­að­gerðir í ljósi stöð­unnar. Fjár­hags­staða Icelandair Group er sterk og lausa­fjárs­staða félags­ins nam rúmum 39 millj­örðum króna (301,6 millj­ónir banda­ríkja­dala) í árs­lok 2019 og er á sama stað í dag.“

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá aðgerð­unum í ávarpi í nótt. Ferða­bannið, sem á að standa yfir í 30 daga frá og með kom­andi föstu­degi, mun virka þannig að öllum íbúum landa sem til­heyra Schengen-svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evrópu, verður meinað að koma til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­is­borg­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum munu fá að ferð­ast ef þeir vilja en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í nótt á vef heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schengen-svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­velli þar sem sér­stakar ráð­staf­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Allar líkur eru því til þess að flug milli Banda­ríkj­anna og landa sem til­heyra Evrópska efna­hags­svæð­inu muni að mestu liggja niðri á meðan að bannið stendur yfir, enda ólík­legt að flug­fé­lög muni fljúga mikið þegar þorri Evrópu má ekki koma til Banda­ríkj­anna, og Banda­ríkja­menn hafa verið hvattir til að fara helst ekki til Evrópu. 

Það mun hafa gríð­ar­leg áhrif rekstur Icelandair.

Ætluðu að snúa vörn í sókn en nú verður ekki að því

Flestir sem heim­sóttu Íslands á síð­asta ári komu frá Banda­ríkj­un­um, eða 464 þús­und manns. Því er um að ræða mik­il­væg­asta markað flug­fé­lags­ins. Þeim far­þegum sem komu þaðan fækk­aði um þriðj­ung milli ára og spil­aði gjald­þrot WOW air þar stóra rullu, enda flaug flug­fé­lagið á nokkra áfanga­staði í Norð­ur­-Am­er­ík­u. Nú er við­búið að sú fækkun muni verða umtals­vert meiri að óbreyttu.

Þegar Icelandair kynnti upp­gjör sitt fyrir síð­asta ár, og afkomu­spá fyrir 2020, voru skila­boðin þau að félagið myndi snúa vörn í sókn í ár. Fé­lagið gerði meðal ann­ars ráð fyrir að flytja að lág­marki jafn­marga far­þega til Íslands á árinu 2020 og árið 2019.

Nú er sú staða gjör­breytt og algjör óvissa er um hvernig rekst­ar­árið hjá Icelandair, og ferða­þjón­ust­unni í heild, verður. Afkomu­spá félags­ins hefur verið aftengd og sá mögu­leiki er raun­veru­lega fyrir hendi að hrun gæti orðið í komu ferða­manna til Íslands vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Alþjóða­sam­tök flug­fé­laga, IATA, gáfu út grein­ingu í síð­ustu viku þar sem reynt var að henda reiður á hver áhrif útbreiðsl­unnar yrðu á fjölda flug­fé­laga. Ef þær nið­ur­stöður eru heim­færðar á skipt­ingu ferða­manna á Íslandi efir þjóð­ernum þá blasir við að fjöldi ferða­manna mun drag­ast saman um 200 þús­und milli ára og fara niður í 1,8 milljón. Það er um hálfri milljón ferða­manna færri en komu til lands­ins árið 2018.

Þessi grein­ing byggir þó á því að áhrif af útbreiðslu veirunnar verði skamm­vinn. Verði ástandið við­var­andi í lengri tíma gæti fjöldi ferða­manna farið niður í 1,6 millj­ónir. Það yrði lægst fjöldi sem hefur heim­sótt landið frá árinu 2015. Nú má búast við því að tala ferða­manna geti orðið jafn­vel enn lægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár