Loksins hillir undir göngin

Eftir ára­langar umræður og þrætur, að ógleymdum ótelj­andi kæru­málum, hillir loks undir að göng undir Femern sundið milli Dan­merkur og Þýska­lands verði að veru­leika. Fram­kvæmdir hefj­ast í árs­byrjun 2021.

Vonast er til þess að um 6.000 störf skapist við byggingu Femern-ganganna.
Vonast er til þess að um 6.000 störf skap­ist við bygg­ingu Femern-gang­anna. Mynd: Femern A/S

Sagt er að Friðrik VII Dana­kon­ungur hafi brosað í kamp­inn þegar bygg­inga­meist­ari hans, hinn 37 ára gamli verk­fræð­ingur G.V.A. Krühnke sýndi honum stóran upp­drátt sem hann hafði gert. Upp­drátt­ur­inn sýndi hug­myndir bygg­inga­meist­ar­ans um lagn­ingu járn­brautar frá Kaup­manna­höfn til Ham­borgar um Femern sund.

Þetta var árið 1863. Hugmynd Krühnke var að á landi yrði járn­brautin í eins beinni línu og mögu­legt væri en yfir Femern sundið yrði lagður eins konar flóð­garður, eða brú, sem lestin færi um. Kóngi þótti hug­myndin athygl­is­verð og hvatti Krühnke til að útfæra hug­mynd­ina betur. Þremur árum síðar fékk Krühnke sam­þykki og fjár­veit­ingu til að leggja járn­braut og gera ferju­höfn við Rødby á Lálandi.

[adspot]

Svo liðu árin

Ýmsar ástæður urðu til þess að ekki varð meira úr áformum Krühnken fyrr en uppúr 1920. Þá urðu stjórn­endur þýsku og dönsku rík­is­járn­braut­anna sam­mála um að taka málið upp að nýju og í áætl­unum sem þá urðu til var gert ráð fyrir ein­hvers­konar brú yfir Femern sundið.

Ekkert varð þó úr þessum fyr­ir­ætl­unum og það var ekki fyrr en árið 1955 að samn­ingur um fastar ferðir lesta­ferja yfir sundið hófust. Brú­ar­hug­myndin hafði verið lögð á hill­una. Fastar ferðir yfir Fem­ernsund, með járn­brauta­teng­ingum beggja vegna hófust árið 1963. Þá voru nákvæm­lega 100 síðan Krühnke lagði teikn­ingar sínar á borðið hjá Friðriki VII.

Brúarhugmyndin endurvakin

Árið 1985 var á ný farið að tala um að tengja saman Þýska­land og Danmörku um Femern sund. Þótt mikið væri talað, og reiknað, gerð­ist fátt og engar ákvarð­anir teknar. Það var ekki fyrr en árið 2008 sem ráð­herrar sam­göngu­mála í báðum löndum skrif­uðu undir sam­komu­lag um gerð teng­ingar yfir sundið. Þegar þjóð­þing beggja landa höfðu stað­fest sam­komu­lagið var komið að því að reikna og teikna.

Árið 2011 skil­uðu tvö ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki skýrslum sínum varð­andi verkið. Bæði fyr­ir­tækin mæltu með að æski­legra væri að leggja göng í stað brúar eins og rætt hafði verið um fram að því. Helstu rökin voru að göng yrðu óháð veðri en á þessum slóðum er vinda­samt og því fyr­ir­séð að brú yrði lokuð marg­sinnis á ári hverju.

Tækninni við lagn­ingu ganga í sjó hefur fleygt mjög fram, slík göng eru í dag eins­konar risarör, fyr­ir­fram steyptar ein­ingar sem tengdar eru saman og liggja á botn­inum. Kostn­að­ur­inn langtum minni en að bora. Hver ein­ing, eða rör­bútur í Fem­ern­gögn­unum myndi vega 73.500 tonn, yrði um það bil 200 metra langur, 40 metra breiður og 9 metra hár. Göngin því sam­tals um 18 kíló­metra löng, með land­fyll­ingum beggja vegna. Tvær akreinar í hvora átt fyrir bíla og tvö­faldir lesta­teinar. Mat ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækj­anna var að fram­kvæmd­irnar tækju átta ár.

Mörg ljón í veginum og kæruflóð

Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækin fyrr­nefndu töldu að göngin gætu orðið til­búin árið 2020. Sú dag­setn­ing var miðuð við að strax árið 2011 yrði haf­ist handa. Öllum var hins­vegar ljóst að þetta gengi ekki eftir. Verkið yrði mjög flókið og ótal samn­ingar sem ganga þyrfti frá áður en fram­kvæmdir gætu haf­ist.

Eins og fyr­ir­fram var búist við voru ekki allir jafn ánægðir með hina fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd. Danski sam­göngu­ráð­herr­ann Benny Engelbrect sagði að þótt búast hefði mátt við mörgum kærum hefði fæsta grunað að þær yrðu 30 þús­und eins og raunin varð. Margar þeirra voru vegna umhverf­is­mála og einnig vegna útboða. Sum þess­ara mála komu til kasta Evr­ópu­dóm­stóls­ins en í mars á þessu ári átti öllum slíkum hindr­unum að hafa verið rutt úr vegi. Í þessu sam­bandi má nefna að verk­efnið fær veru­legan fjár­stuðn­ing frá Evr­ópu­sam­band­inu því það flokk­ast undir það sem nefnt er for­gangs­verk­efni í sam­göngu­málum.

Danska þingið, Fol­ket­inget, sam­þykkti sl. föstu­dag 24. apríl, með form­legum hætti að hefja verkið og nú fer allur und­ir­bún­ingur á fullt skrið.

Ekki smápeningar

Langan tíma tók að ganga frá fjár­mála­hlið­inni en nið­ur­staðan var að Þjóð­verjar borga allt sín megin við göngin en Danir hins­vegar göngin sjálf og mann­virki Dan­merk­ur­megin, ásamt við­haldi á göng­unum. Kostn­að­ar­á­ætl­unin hljóðar uppá 60 millj­arða danskra króna (1.231 millj­arð íslenskan). Á kynn­ing­ar­fundi vegna gang­anna sagði danski sam­göngu­ráð­herr­ann að þetta yrði kostn­að­ar­samasta fram­kvæmd sem Danir hefðu nokkru sinni ráð­ist í.

Danir fá allar tekjur af fyr­ir­hug­uðu veggjaldi, upp­hæð þess hefur ekki verið end­an­lega ákveðin en áætl­anir gera ráð fyrir að fullt gjald fyrir fólks­bíl verði um það bil 500 krónur danskar (10.600 íslenskar) fyrir hverja ferð. Til sam­an­burðar kostar stök ferð yfir Eyr­ar­sunds­brúna 390 krónur danskar (8.300 íslenskar). Sú tala segir þó ekki alla sög­una því í boði eru alls kyns afslættir og gera má ráð fyrir að sama verði upp á ten­ingnum varð­andi Femern. Gert er ráð fyrir að göngin verði greidd upp á 36 árum, en sá tími gæti orðið lengri, eða skemmri, það veltur á umferð­inni. Hér er rétt að nefna að fullt verð fyrir staka ferð með ferju frá Rødby til Putt­gar­den er 605 danskar krónur (12.900 íslenskar), en þar eru ýmsir afslættir í boði.

Ekki alveg komið að því að kaupa miða

Eins og fyrr var nefnt gerðu áætl­anir upp­haf­legar ráð fyrir að fram­kvæmda­tím­inn yrði rúm átta ár. Þær áætl­anir eru óbreyttar og því gert ráð fyrir að hægt verði að opna göngin á miðju ári 2029.

Ef ekið er í bíl frá Kaup­manna­höfn um Fjón og Jótland til Ham­borgar er vega­lengdin tæpir 500 kíló­metrar. Með því að aka suður Danmörku, gegnum göngin og áfram til Ham­borgar, verður vega­lengdin um það bil 370 kíló­metrar. Það mun taka um það bil sjö mín­útur að aka gegnum göngin en það tekur ferj­una 45 mín­útur að sigla yfir sundið, þar við bæt­ist bið­tími til að kom­ast í ferj­una og úr henni þegar yfir er komið.

Á kynn­ing­ar­fundi vegna gang­anna fyrir nokkrum dögum sagð­ist danski sam­göngu­ráð­herr­ann þess full­viss að margir bíði nú þegar eftir að geta ekið um göngin. „Þeir verða þó að sýna bið­lund, það er ekki búið að opna miða­söl­una,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár