Krefur umhverfisráðherra svara vegna búvörusamninga

Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks krefur umhverf­is­ráð­herra svara um land­græðslu vegna nýrra búvöru­samn­inga. Hún segir kröfur auknar á bændur varð­andi land­nýt­ingu. End­ur­skoðun á lögum um land­græðslu stendur nú yfir.

Jóhanna María segir nýja búvörusamninga leggja auknar kröfur á sauðfjárbændur.
Jóhanna María segir nýja búvöru­samn­inga leggja auknar kröfur á sauð­fjár­bændur. Mynd: norden.org/Heidi Orava

Jóhanna María Sig­munds­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, segir að verið sé að gera auknar kröfur á sauð­fjár­bændur í nýjum búvöru­samn­ingum varð­andi land­nýt­ingu. Hún hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá sam­flokks­konu sinni, Sigrúnu Magn­ús­dóttur, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, um stefnu­mál rík­is­ins varð­andi land­græðslu. 

Jóhanna María seg­ist í sam­tali við Kjarnann hafa óskað eftir upp­lýs­ing­unum í ljósi nýrra samn­ings­draga sem snúa að sauð­fjár­rækt í búvöru­samn­ing­unum.

„Það er lögð mikil áhersla á land­nýt­inga­þátt­inn í gæða­stýr­ing­unni, það er að segja að bændur þurfa að upp­fylla alls kyns skil­yrði til að fá borgað. Það er lögð þyngri áhersla á að bændur séu með land í lagi og að féð gangi ekki á landið,” segir Jóhanna María. „Ég vil fá að vita hvort þau verk­efni sem eru nú til staðar séu að skila nægi­lega miklum árangri til að það sé raun­hæft að setja þessar kröfur á bændur á móti.”

Auknar kröfur á bændur

Jóhanna María vill fá að vita hver skil­grein­ingin á land­græðslu sé, hversu mörg félög og sam­tök eru á Íslandi um mál­efni land­græðslu, hversu mörg land­græðslu­verk­efni séu í gangi, hvaða stofnun fari með rann­sóknir er varða land­græðslu, hvað ríkið leggi til af fjár­munum til land­græðslu á ári og í hvaða far­vegi ráð­herr­ann telji land­græðslu vera og hvaða stefna sé höfð að leið­ar­ljósi.

Að hennar mati hefur stefnan verið sæmi­leg. 

„Það er komið inn á þetta í land­nýt­ing­ar­á­ætl­un­inni og Ísland hefur verið að reyna að marka sér stefnu í þessum málum,” segir hún. „En ég óskaði eftir þessum upp­lýs­ingum til að við getum haft betra yfir­lit þegar við erum að gera auknar kröfur til bænda.”

Nýr landgræðslustjóri óskast

Í síð­ustu viku aug­lýsti umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið laust emb­ætti land­græðslu­stjóra. Í aug­lýs­ing­unni segir að verið sé að end­ur­skoða lög um land­græðslu í ráðu­neytinnu, meðal ann­ars um starf­semi stofn­un­ar­innar með það að mark­miði að efla starf við gróður- og jarð­vegs­vernd, upp­græðslu og sjálf­bæra land­nýt­ingu og hvers­konar fram­kvæmdir því tengdu. Nýr land­græðslu­stjóri mun fá það verk­efni að vinna að fram­fylgd breyt­inga komi til þeirra, í sam­ráði við umhverfis og auð­linda­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár