Páll Magnússon ætlar að hætta á þingi

Páll Magn­ús­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks mun ekki sækj­ast eftir því að vera áfram á þingi. Hann hafði áður boðað þátt­töku í próf­kjöri flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi en segir áhug­ann hafa dofnað – neist­ann kulnað.

Páll Magnússon ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs.
Páll Magn­ús­son ætlar ekki að gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Páll Magn­ús­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks ætlar ekki að gefa kost á sér í próf­kjöri flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, sem fram fer í maí­mán­uði. Hann hafði áður boðað að hann ætl­aði að sækj­ast eftir fyrsta sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu, en Páll var odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum og er fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis.

Frá þess­ari nýju ákvörðun segir Páll á Facebook í dag. „Ég komst raunar að þess­ari nið­ur­stöðu innra með mér strax um síð­ustu ára­mót en ákvað samt að leyfa þessum þremur mán­uðum að líða áður en ég tæki end­an­lega ákvörðun; ef eitt­hvað það gerð­ist sem kynni að breyta þess­ari nið­ur­stöðu. Það gerð­ist ekki,“ skrifar Páll.

Áhuginn dofnað og neistinn kulnað

Hann segir að ákvörðun sín sé ekki tekin „vegna neinna ytri aðstæðna í póli­tík­inni“ heldur sé ákvörð­unin per­sónu­leg.

„Oft þegar ég hef staðið frammi fyrir mik­il­vægum ákvörð­unum og áskor­unum lýkur vanga­velt­unum bara með einni ein­faldri spurn­ingu: Langar mig nógu mikið til að gera þetta? Svarið að þessu sinni er nei. Ég stóð frammi fyrir nákvæm­lega sömu spurn­ingu fyrir tæpum 5 árum og þá var svarið já. En nú hefur áhug­inn ein­fald­lega dofnað - neist­inn kulnað,“ skrifar Páll.[links]

Um það að hann hafi sagt fyrir ein­ungis nokkrum vikum að hann ætl­aði að gefa kost á sér áfram segir Páll: „Jú, það er ein­falda reglan um að þangað til ný ákvörðun er tekin þá gildir sú gamla!“

Páll boðar að þetta sé per­sónu­lega nið­ur­staðan – „póli­tíska kveðju­bréfið“ komi svo innan tíðar.

Studdi ekki Sjálfstæðisflokkinn í Eyjum árið 2018

Páll rekur ættir sínar til Vest­manna­eyja og átti þar öfl­ugt bak­land í próf­kjörs­bar­áttu flokks­ins árið 2016, er hann velti Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur úr odd­vita­sæt­inu í Suð­ur­kjör­dæmi. Síðan tók Páll sæti á þingi 2016 og leiddi flokk­inn aftur til kosn­inga í kjör­dæm­inu eftir að stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sprakk haustið 2017.

Í Vest­manna­eyjum, sem lengi hefur verið mikið vígi Sjálf­stæð­is­flokks, kom fram klofn­ings­fram­boðið Fyrir Heimaey í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2018. Íris Róberts­dóttir, nú bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, leiddi það fram­boð, sem hafði sigur í kosn­ing­unum og myndar nú bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluta með Eyja­list­anum – á meðan sjálf­stæð­is­menn sitja í minni­hluta.

„Það er engin laun­ung á því að við Sjálf­stæð­is­menn í Eyj­u­m erum mjög ósátt við fram­göngu Páls í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna,“ ­sagði Jarl Sig­ur­geirs­son, ­for­maður full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyj­u­m við Frétta­blaðið á sínum tíma.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins sagði að Páll hefði ekki stutt við bakið á fram­boði Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Eyj­um vegna vin­áttu­sam­bands síns við Írisi. Í ljósi þess hve mjótt var á mun­um hefði það skipt miklu máli þegar upp var stað­ið.

Einn við­mæl­andi blaðs­ins á þessum tíma sagði taldi ein­sýnt að Páll myndi aldrei aftur hafa sigur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sunn­an­lands.

Prófkjör flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi á að fara fram í lok maí. Guðrún Haf­steins­dóttir fram­kvæmda­stjóri Kjöríss og Vil­hjálmur Árnason alþing­is­maður hafa gefið kost á sér í odd­vita­sætið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár