„Icelandair vildi aldrei semja“

„Við trúum því ekki að óreyndu að flug­menn muni ganga í störf flug­freyja,“ segir Halla Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri ASÍ, í sam­tali við Kjarnann. Hún telur það aldrei hafa verið vilja Icelandair að semja.

Icelandair tilkynnti í gær að samningaviðræðum við flugfreyjufélagið væri slitið og að leitað yrði annað eftir flugfreyjum.
Icelandair til­kynnti í gær að samn­inga­við­ræðum við flug­freyju­fé­lagið væri slitið og að leitað yrði annað eftir flug­freyjum. Mynd: Af vef Icelandair

Halla Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri ASÍ, segir að það sem sé hræði­leg­ast við aðgerðir Icelandair er að þær hafi verið þaul­skipu­lagðar. „Mark­miðið var alltaf að reyna að brjóta stétt­ar­fé­lag flug­freyja á bak aftur og ganga þannig í augun á fjár­festum, einkum erlendum,“ skrifar Halla á Facebook-síðu sína. „Icelandair vildi aldrei semja.“

Icelandair sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem sagði að samn­inga­við­ræður við Flug­freyju­fé­lag Íslands kæmust ekki lengra og að þeim væri lokið. Í til­kynn­inguni sagði enn­fremur að sam­komu­lag við helstu hag­að­ila Icelandair Group, svo sem lán­veit­endur, flug­véla­leigu­sala, stjórn­völd, birgja og stétt­ar­fé­lög væri mik­il­vægur liður í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins sem unnið hafi verið að á und­an­förnum vikum. Í kjöl­farið stefni félagið að hluta­fjár­út­boði sem sé for­senda þess að koma félag­inu í gegnum þær krefj­andi aðstæður sem nú ríkja sem og að styrkja rekstr­ar­grund­völl og sam­keppn­is­hæfni félags­ins til fram­tíðar.

[adspot]

Halla segir gleym­ast hverjir séu helstu bak­hjarlar Icelandair, það sé þjóðin í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina og svo veittan og mögu­legan rík­is­stuðn­ing.

Í sam­tali við Kjarnann ítrekar Halla útreikn­inga sem ASÍ gerði í maí á launa­kostn­aði flug­freyja. Hún rifjar upp að for­stjóri Icelandair hafi greint frá því í fjöl­miðlum í vor að þessi kostn­aður nemi um 20 pró­sent af heild­ar­launa­kostn­aði félags­ins. Halla bendir á að flug­freyjur séu um 20 pró­sent starfs­manna. Til sam­an­burðar nema laun flug­manna 30 pró­sent af heild­ar­launa­kostn­aði en þeir séu aðeins um 14 pró­sent starfs­manna.

„Sé miðað við þessar for­sendur sem for­stjór­inn setti fram í vor og rýnt í árs­reikn­inga má ætla að launa­kostn­aður flug­freyja nemi 7 pró­sent af rekstr­ar­kostn­aði Icelandair,“ segir Halla. „Það er því póli­tísk, ekki pen­inga­leg, ákvörðun að ráð­ast gegn þeim af slíku offorsi.“

Líkt og Drífa Snædal for­seti ASÍ sagði í gær segir Halla að „skipu­lögðum nið­ur­brot­stil­raunum á stétt­ar­starfi“ líkt og Icelandair sé að reyna, verði svarað af fullri hörku. „Því rétt­indi launa­fólks eru grunn­ur­inn að almennri vel­ferð á Íslandi.“

Í til­kynn­ingu Icelandair kom fram að félagið væri jafn­framt „knúið til að segja upp þeim flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa hjá félag­inu. Flugmenn félags­ins munu frá og með mánu­deg­inum 20. júlí starfa tíma­bundið sem örygg­is­liðar um borð. Þjón­ustu­stig um borð í vélum Icelandair mun áfram taka mið af þeim ráð­stöf­unum sem gerðar hafa verið vegna COVID-19 og verður því í lág­marki. Félagið gerir ráð fyrir að hefja við­ræður við annan samn­ings­að­ila á hinum íslenska vinnu­mark­aði, um fram­tíð­ar­kjör öryggis- og þjón­ustu­liða hjá félag­inu“.

Halla segir að ASÍ muni styðja flug­freyjur í þeirra aðgerðum og að sam­bandið trúi því ekki að óreyndu að flug­menn muni ganga í þeirra störf. „Verka­lýðs­hreyf­ingin öll mun standa saman gegn svona til­burðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár