Krafa um að aðflutt fólk aðlag­aði sig að hreyf­ing­unni, ekki öfugt

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir að útlend­inga­andúð vera í hreyf­ing­unni, en í mis­miklum mæli. Einn starfs­maður Eflingar hafi sagt til að mynda sagt að aðflutta fólkið í félag­inu, um helm­ingur félags­manna, ætti „bara að læra íslensku“.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem sagði af sér sem for­maður Eflingar í síð­ustu viku, segir að hún og hennar nán­asta sam­starfs­fólk hafi strax gert kröfu um menn­ing­ar­læsi í við­móti á skrif­stof­u félags­ins eftir að þau tóku við árið 2018. „Þarna unnum við mikið frum­kvöð­uls­starf. Við fórum strax í það að tryggja að allir fundir sem við höldum yrðu texta­túlk­að­ir. Við förum strax í það að láta þýða fullt af efni. Svo förum við í að útbúa heima­síð­una og „mínar síð­ur“ innan hennar þannig að fólk geti nálg­ast efni á íslensku, ensku og pólsku. Þetta hefur ver­ið, ásamt okkar mark­vissu og rót­tæku kjara­bar­áttu, þá hefur þetta verið það verk­efni sem ég hef verið mjög upp­tekin af að sé sinnt af fullum heil­indum gagn­vart félags­fólki Efl­ing­ar.“

[links]Þetta kemur fram í við­tali við Sólveigu Önnu sem Kjarninn birti á laug­ar­dag. Um helm­ingur félags­manna Eflingar eru aðflutt fólk og Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu fyrr í dag að erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hafi fjölgað um 33 þús­und á ára­tug. Þeir eru nú 14,4 pró­sent allra lands­manna og flestir setj­ast að í Reykja­vík. Fjöl­margir úr þeim hópi starfa í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu eða í bygg­inga­iðn­aði og Efling er þeirra stétt­ar­fé­lag.

Sólveig Anna segir að það ríki útlend­inga­andúð í hreyf­ing­unni, en í mis­miklum mæli. „Ef það hefði verið við­ur­kennt að þessi hópur ætti að njóta alls þess sem hann á inni hjá þess­ari hreyf­ingu, þá hefði ekki þurft að bíða eftir að ný for­ysta kæmi. Krafan hafi verið sú að aðflutta fólkið aðlag­aði sig að hreyf­ing­unni í stað þess að hreyf­ingin aðlag­aði sig að þeirra stöð­u.“

„Þetta fólk á bara að læra íslensku“

Hún seg­ist hafa, ásamt nýrri stjórn Eflingar, ákveðið að nálg­ast for­mennsku sína í Eflingu sem verk­efni. Það verk­efni hafi verið tví­þætt. Ann­ars vegar að gera Efl­ingu að bar­áttu­sam­tökum fyrir þá sem greiða félags­gjöld­in, verka- og lág­launa­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Og hins vegar að taka alla þjón­ust­una í gegn. „Þegar ég var í þess­ari kosn­inga­bar­áttu 2018 þá fór ég af stað með mjög rót­tæka orð­ræðu og rót­tækt plat­form sem var efna­hags­legt fyrst og fremst. En á öllum þeim fundum sem ég fór á og í sam­tölum við félags­fólk kom það í ljós með mjög skýrum hætti að krafa fólks var sú að þjón­usta félags­ins yrði mjög ræki­lega tekin í gegn.“

[adspot]Það átti sér­stak­lega við gagn­vart aðfluttu fólki. „Ég horfð­ist í augu við það og átt­aði mig á því að ekki aðeins var aðflutt fólk á hrika­lega slæmum stað hvað varðar laun og hús­næð­is­að­stæður heldur gat það raun­veru­lega ekki haft neinn aðgang að félag­inu. Það var engin virð­ing eða við­ur­kenn­ing á því inni í þessu skrif­stofu­virki að þessi stóri hóp­ur, helm­ingur félags­fólks, ætti alla heimt­ingu á því að geta bara ávallt fengið alla þá þjón­ustu sem það ætti rétt á og líka fulla heimt­ingu á því að geta tekið þátt í starfi félags­ins.“

Sól­veig Anna rifjar upp eitt dæmi um þetta verk­efni sem mætti þeim strax og hún og Viðar komu til starfa hjá Efl­ingu. Þá hafi verið haldin starf­manna­fundur þar sem þau lýstu því að þessar breyt­ingar stæðu til. „Þá var bara hálaun­aður starfs­maður skrif­stof­unnar sem rétti upp hönd og segir „ég er ekki sam­mála þessu. Þetta fólk á bara að læra íslensku“ og svo fram­veg­is. Þetta við­mót hefur verið mjög raun­veru­legt innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í heild. Þessi full­yrð­ing mín er mjög auð­sann­an­leg vegna þess að það er ekki fyrr en við komum þarna inn að hreyf­ingin í heild fór að taka til í þessu mjög mark­visst. Að hún fór að við­ur­kenna og elta okkar for­dæmi. Að við­ur­kenna að þetta aðflutta fólk eru ekki bara ein­hverjir far­and­verka­menn og eitt­hvað fólk sem kemur og fer, heldur sest hérna að og eru þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu. Að hreyf­ingin eigi að vera fyrir það og eigi að þjón­usta það á allan hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár