Stefnt að kosningum seinni hluta október - Sumarþing framundan

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra sat fund með stjórnarandstöðuformönnum í dag.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra sat fund með stjórn­ar­and­stöðu­for­mönnum í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls eru á átt­unda tug mála á þing­mála­skrá sem Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynntu fyrir for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á fundi í dag. Samkvæmt breyttri starfs­á­ætlun verður þing í ágúst og eftir atvikum fram í sept­em­ber, sem þýðir að Alþingi mun starfa í sumar. Gangi áætlun um fram­gang mál­anna eftir er stefnt að því að þing­kosn­ingar geti farið fram seinni hlut­ann í októ­ber. Þetta segir Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem sat fund­inn.

Mörg mál­anna eru fram­kvæmd­ar­mál og eru þegar í vinnslu í þing­inu. Stóru málin sem rík­is­stjórnin leggur áherslu á að koma í gegn fyrir kosn­ingar eru meðal ann­ars laga­breyt­ingar til að geta hrint losun hafta í fram­kvæmd, hús­næð­is­mála­frum­vörp félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og breyt­ingar á greiðslu­þátt­töku innan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þá var einnig greint frá því á fund­inum að til standi að Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, leggi fram lög um heild­ar­end­ur­skoðun á Lána­sjóði íslenskra náms­manna (LÍN). Því frum­varpi hefur enn ekki verið dreift til þing­manna.

Árni Páll segir að for­svars­menn stjórn­ar­flokk­anna hafi haft þann fyr­ir­vara á þing­mála­list­anum sem lagður var fram að ein­hver mál gætu bæst við. Hann segir ekk­ert mál á þing­mála­skránni sem sé þess eðlis að það kalli á grund­vallar­á­tök milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir stóru frétt­irnar af fund­inum þær að kosið verði í októ­ber.

„Þeir eru nú búnir að gefa það út að þeir vilja kjósa í haust,” segir hann. Varðandi þann mikla fjölda mála á list­anum yfir þing­mál, segir hann ljóst að heil­mikil vinna sé framundan í þing­inu. 

„Mér finnst hæpið að þing­inu verði slitið í maí eins og dag­skráin gerir ráð fyrir núna,” segir hann. „Og það er óljóst hvernig þetta verður svo í haust, hvort þing komi saman aftur þá fyrir kosn­ingar. Þetta snýst fyrst og fremst um reglur um fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps sem vænt­an­lega verður að sinna.” 

Óttarr und­ir­strikar að stjórn­ar­and­staðan standi við til­lögu sína um kosn­ingar strax þó að hún hafi verið felld í þing­inu. „Það er mjög mik­il­vægt að slá á þennan efa. Það eru allir með­vit­aðir um þá krísu sem íslensk póli­tík er í og mik­il­vægt að standa saman að mik­il­vægum málum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár