Hverjir eru þessir ólígarkar?

Ólíg­arkar hafa bland­ast inn í umræð­una eftir að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst 24. febr­úar, ekki síst í tengslum við efna­hags­þving­anir og refsi­að­gerðir Vest­ur­landa gegn Rússum. En hverjir eru þessir ólíg­arkar? Og hvernig urðu þeir svona ríkir?

Ólíg­arkar, í nútíma­legum skiln­ingi, sam­an­standa af fámennri stétt rúss­neskra auð­manna sem efn­uð­ust veru­lega á umfangs­mik­illi einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna á tíunda ára­tug síð­ustu aldar.

Hugtakið sjálft, ólíg­arkí, er komið úr grísku og merkir „fámenn­is­stjórn“. Með ólíg­arkí er því átt við stjórn hinna fáu, ólíkt orð­inu demókratí, eða lýð­ræði, sem vísar til stjórn­ar­fars þar sem almenn­ingur eða lýð­ur­inn ræður, að því er segir í umfjöllun Vís­inda­vefs­ins um ólíg­arka.

Ólíg­arkar eru „gríð­ar­lega ríkir við­skipta­menn sem hafa mikil póli­tísk og félags­leg áhrif,“ segir Elise Giuliano, lektor við stjórn­mála­fræði­deild í Columbia-háskól­anum sem sér­hæfir sig í rúss­neskum stjórn­málum eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna. „Þeir eru oft í góðum tengslum við helstu stjórn­mála­leið­toga lands­ins, en ekki alltaf.“

[adspot]Pólitísk áhrif og völd ólíg­ar­kanna áttu einmitt stóran hlut í auð­söfnun þessa manna, því jú, lang­flestir ólíg­ar­kanna eru karlar. Í fyrra voru aðeins þrjár konur meðal hund­rað rík­ustu Rússanna, en engin á topp tíu.

Jeltsín-ólígarkar og Pútín-ólígarkar

Fyrstu rúss­nesku ólíg­ar­k­arnir komu fram á sjón­ar­sviðið í stjórn­ar­tíð Mikhaíl Gor­batsjev, síð­asta leið­toga Sov­ét­ríkj­anna, á árunum 1985-1991. Áætlun Gor­batsjev sem sneri að opnun (glasnost) og end­ur­skipu­lagn­ingu (per­estrojka) stjórn­mála- og efna­hags­kerfis Sov­ét­ríkj­anna greiddi leið ólíg­ar­kanna sem sölsuðu undir sig eignum við einka­væð­ingu um 15 þús­und rík­is­fyr­ir­tækja, ekki síst auð­lindum líkt og olíu og málmum.

Þróunin hélt áfram og eftir fall Sov­ét­ríkj­anna má í raun skipta ólígörkum í tvennt: Þeim sem urðu til undir lok stjórn­ar­tíðar Gor­batsjevs og í upp­hafi for­seta­tíðar Jeltsíns við hrun Sov­ét­ríkj­anna og þeir sem urðu ríkir vegna tengsla sinna við Vladimír Pútín þegar hann tók við emb­ætti Rúss­lands­for­seta um alda­mótin.

Ólíg­arkar sem hösl­uðu sér völl á „Jeltsín-tíma­bil­inu“ eru meðal ann­ars Mikhaíl Fridman, einn af stofn­endum Alfa-Bank, sem er einn stærsti einka­rekni banki Rúss­lands og Vladimír Potanín, næst rík­asti maður Rúss­lands á eftir Mor­das­hov-fjöl­skyld­unni, og 58. rík­asti maður heims.

Frá Berezovskí til Abramovich

Boris Berezovskí varð einnig áber­andi í stjórn­ar­tíð Jeltsín og er af mörgum tal­inn einn umdeild­asti ólíg­arki fyrr og síðar. Berezovskí átti hlut í nokkrum olíu­fé­lögum og öðrum fyr­ir­tækjum og var í innsta hring Jeltsíns. Sagt er að Berezovskí hafi fyrstur stungið upp á Pútín sem arf­taka Jeltsíns. Eftir að Pútín varð hins vegar kjör­inn for­seti um alda­mótin sner­ist Berezovskí gegn honum, flúði land og fékk póli­tískt hæli í Bret­landi árið 2003. Berezovskí var síðar dæmdur fyrir svik og fjár­drátt í Rúss­landi en var ekki við­staddur dóms­upp­kvaðn­ing­una.

Berezovskí á skraut­legan feril að baki sem end­aði með óhugn­an­legum hætti þegar hann fannst lát­inn á heim­ili sínu í London árið 2013 eftir að hafa tapað stóru dóms­máli gegn fyrr­ver­andi við­skipta­fé­laga, Roman Abramovich. Samkvæmt krufn­ing­ar­skýrslu tók Berezovskí eigið líf með því að hengja sig en sögur þess efnis að stjórn­völd í Kreml hafi átt þátt í dauða hans ganga enn.

Tengsl rúss­neskra ólíg­arka í dag við Rúss­lands­for­seta eru mis­mun­andi, en allir treysta þeir á vernd­ar­væng Pútíns með einum eða öðrum hætti og varð fljótt ljóst eftir að Pútín tók við völdum að áfram­hald­andi auð­söfnun þeirra myndi krefj­ast dyggrar hlýðni við Pútín. Svo lengi sem póli­tískir hags­munir Pútíns og fjár­hags­legir hags­munir ólíg­ar­kanna náðu saman væri allt í himna lagi. Það sást ber­sýni­lega þegar Mikhaíl Borisovich Khodor­kovski, sem var eitt sinn rík­asti maður Rúss­lands, og Pútín lenti saman og Khodor­kovski var í kjöl­farið dæmdur í tíu ára fang­elsi fyrir fjár­drátt og pen­inga­þvætti.

[links]Abramovich, aðal­eig­andi fót­boltaliðs­ins Chelsea, er lík­lega á meðal þekkt­ustu ólíg­ar­kanna í dag. Abramovich var 34 ára þegar Pútín tók við völdum og er með yngstu ólígörk­unum. Abramovich hagn­að­ist á olíu­við­skiptum og átti hlut í rúss­neska olíu­fyr­ir­tæk­inu Sibneft ásamt Berezovskí.

Við­skipta­sam­band þeirra end­aði með dóms­máli þar sem Berezovskí sagði Abramovich hafa átt í hót­unum við hann og hafi neytt hann til að selja sinn hlut í Sibneft. Berezovskí krafði Abramovich um þrjá millj­arða evra í skaða­bætur. Dómarinn sagði Berezovskí óáreið­an­legt vitni og Abramovich hafði betur í einu dýrasta dóms­máli Bret­lands en áætl­aður kostn­aður vegna mála­rekst­urs­ins var um 100 millj­ónir punda.

Eignir Abramovich eru í dag metnar á 9,4 millj­arða punda og má rekja þær að mestu leyti til söl­unnar á Sibneft til rík­is­orkuris­ans Gazprom árið 2005. Hann hefur reynt að slíta á tengslin við Pútín, að minnsta kosti þannig að svo blasi það við Vest­ur­löndum, en hefur ekki haft erindi sem erf­iði.

Skammarlegt að stríð þurfi til að afhjúpa ólígarkanna

Rúss­neskir ólíg­arkar eru margir umsvifa­miklir í Bret­landi og er Abramovich í hópi rúss­neskra við­skipta­manna sem eru með tengsl við rúss­nesk stjórn­völd sem sæta skulu við­skipta­þving­unum.

Allar eignir Abramovich í Bret­landi hafa verið frystar, þar á meðal fót­boltalið Chelsea. Abramovich til­kynnti í byrjun mars að hann ætl­aði sér að selja knatt­spyrnu­fé­lagið og láta ágóð­ann renna til „fórn­ar­lamba stríðs­ins í Úkra­ín­u“, en ljóst virð­ist að ekk­ert geti orðið af þeim áformum á næst­unni. Hið minnsta mun Abramovich ekki fá að hafa neitt að gera með ráð­stöfun ágóð­ans af mögu­legri sölu, sam­kvæmt breskum miðl­um.

David Conn, rann­sókn­ar­blaða­maður The Guardian, sem hefur meðal ann­ars fjallað um spill­ing­ar­mál innan FIFA, segir það gagn­rýn­is­vert að stríðs­á­tök þurfi til að Bretar átti sig loks á hvernig ólíg­arkar eins og Abramovich auðg­uð­ust jafn mikið og raun ber vitni. Conn segir sögu ólíg­ar­kanna í Rúss­landi eina stóra sorg­ar­sögu og að hún ætti að vera mun þekkt­ari meðal almenn­ings en hún er í raun og veru. Skömm sé af því að stríð þurfti að brjót­ast út svo fólk geri sér raun­veru­lega grein fyrir umsvifum og áhrifum ólíg­ar­kanna.

Slóð ólígarka nær alla leið til litla Íslands

Ólíg­arkar eru ekki ein­skorð­aðir við Rússland og dæmi eru um að ólíg­arkar hafi tengsl við litla Ísland. Þó svo að einka­væð­ing eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna hafi ekki verið með sama hætti í nágranna­rík­inu Hvíta-Rúss­landi er þar hópur manna sem hefur auðg­ast á tengslum sínum við Alex­ander Lukashenko, sem hefur verið for­seti lands­ins frá því að það varð sjálf­stætt árið 1994. Sjálfur hefur Lukashenko lýst sér sem „síð­asta ein­ræð­is­herra Evrópu“.

Einn þess­ara manna er Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi. Í umfjöllun Stund­ar­innar sem birt­ist á föstu­dag eru íslensk stjórn­völd sögð hafa beitt sér gegn því að Evr­ópu­sam­bandið beitti Mos­hen­sky við­skipta­þving­unum.

Mos­hen­sky er einn rík­asti maður Hvíta-Rúss­lands og umsvifa­mik­ill við­skipta­jöfur. Geir H. Haarde und­ir­rit­aði skip­un­ar­bréf Mos­hen­sky haustið 2006 og hefur hann verið kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi síðan þá.

Hann er tal­inn mjög hand­gengur Lukashen­ko og hefur hagn­ast gríð­ar­lega í einu mið­stýrð­asta efna­hags­kerfi Evr­ópu, sem byggir mjög á nánu sam­bandi við ráða­menn. Veldi hans veltir um 220 millj­örðum króna á ári. Fyrir vikið er Mos­hen­sky oft kall­að­ur­„veski Lukashen­kos“.

Á meðal þeirra sem Mos­hen­sky stundar við­skipti við eru íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Hann kaupir mikið magn sjáv­ar­af­urða héð­an, sér­stak­lega loðnu, síld og mak­ríl, og hags­munir íslenskra útgerða í við­skiptum við hann hlaupa á millj­örðum króna. Þau við­skipti eru meðal ann­ars við Vinnslu­stöð­ina í Vest­manna­eyjum en í Stund­inni segir að náin vin­átta hafi skap­ast milli Mos­hen­sky og for­stjóra Vinnslu­stöðv­ar­inn­ar, Sig­ur­geirs Brynjars Krist­geirs­son­ar.

Í umfjöll­un Stund­ar­innar kemur fram að nafn Mos­hen­sky hafi ítrekað verið á lista yfir þá sem Evr­ópu­sam­bandið hafi ætlað að setja á lista yfir fólk sem refsi­að­gerðir nái til, en að það hafi ætíð verið fjar­lægt skömmu áður en list­arnir voru form­lega sam­þykkt­ir.

Munu „sílógarkar“ taka við af ólígörkum?

Þrátt fyrir að vera „fámenn stétt“ hefur ólígörkum farið fjölg­andi, á því leikur eng­inn vafi. Árið 2001 voru átta millj­arða­mær­ingar í Rúss­landi og voru eignir þeirra metnar sam­tals á 12,4 millj­arða doll­ara. Tíu árum síðar voru millj­arða­mær­ing­arnir orðnir 101 og sam­an­lagt virði þeirra 432,7 millj­arðar doll­arar sam­kvæmt gögnum frá Forbes.

Mikil óvissa ríkir um fram­tíð ólíg­ar­kanna meðan Vest­ur­lönd beita refsi­að­gerðum og efna­hags­þving­unum vegna stríðs­ins í Úkraínu. Um miðjan þennan mánuð voru að minnsta kosti 22 ólíg­arkar, auk Abramovich, fyrir beinum áhrifum af refsi­að­gerð­unum.

Á sama tíma er ákveðin þróun að eiga sér stað meðal ólíg­ar­kanna. Með sterkri valda­stöðu Pútíns og hertu taki rúss­neskra stjórn­valda á einka­fyr­ir­tækjum hefur nokk­urs konar afkvæmi ólíg­ar­kanna litið dags­ins ljós: Síló­g­arkar.

Síló­g­arkar (e. silovarch) er sam­sett úr orð­inu ólíg­arki og rúss­neska orð­inu siloviki, sem notað er um þá sem til­heyra elítu lands­ins í hern­aðar- og örygg­is­málum. Margir síló­g­ar­kanna tengj­ast Pútín per­sónu­lega frá árum hans í rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni eða störf­uðu með honum í Sankti Pét­urs­borg í upp­hafi stjórn­mála­fer­ils­ins.

Nokkuð hefur verið skrifað um síló­g­ar­kanna, meðal ann­ars í rit­rýndum fræði­tíma­ritum. Einn þeirra er Stan­islav Markus, pró­fessor í alþjóða­við­skiptum við háskól­ann í Suður-Karólínu. Segir hann að „hinir svoköll­uðu síló­g­arkar sam­an­standi af við­skipta­el­ítu sem nýttu áhrif sín í rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni, FSB, eða hernum til að raka saman auði og völdum“.

Síló­g­arkar eru ekki und­an­þegnir refsi­að­gerðum en þeir hafa, líkt og ólíg­arkar, ratað á lista Vest­ur­landa yfir ein­stak­linga sem sæta efna­hags­þving­unum. Bæði ólíg­arkar og síló­g­arkar hafa því fylgst með auði og eignum sínum hríð­falla á meðan Pútín heldur stríðs­rekstri Rúss­lands áfram.

Ólíg­arkar fá enga samúð hjá almenn­ingi, að minnsta kosti ekki í Bret­landi þar sem hópur fólks tók yfir glæsi­hýsi Oleg Der­ipaska, náins banda­manns Pútíns, í mið­borg London í vik­unni. Der­ipaska er á lista breskra stjórn­valda yfir ólíg­arka sem sæta efna­hags­þving­unum vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Hópurinn sem yfir­tók húsið sagð­ist vera að sinna vinnu stjórn­valda með því að gera glæsi­hýsið, sem inni­heldur að minnsta kosti 200 her­bergi, að sama­stað fyrir flótta­menn frá Úkraínu. „Heimili þeirra hafa verið lögð í rúst og þessi maður [Der­ipaska] styður stríðið,“ sagði einn úr hópnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár