Það er engin leið að hætta

Lars Løkke Rasmus­sen, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana hefur verið áber­andi í dönskum fjöl­miðlum síðan ný bók hans kom út í síð­ustu viku. Margir velta fyrir sér hvort Løkke hyggi á end­ur­komu í stjórn­málin, jafn­vel stofna nýjan flokk.

Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur.
Lars Løkke Rasmus­sen, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Það er engin leið að hætta (að syngja) segir í þekktu lagi Stuð­manna. Lars Løkke Rasmus­sen þekkir lík­lega ekki þetta vin­sæla lag en gæti hins vegar tekið undir við­lagið. Í nýrri bók hans „Om de fleste og det meste“ sem kom út fyrir viku, og við­tölum vegna útkomu hennar, kemur glögg­lega í ljós að Løkke er mjög ósáttur við hvernig for­mann­s­tíð hans í Venstre lauk í fyrra­haust. Og gengur illa að sætta sig við að vera ekki lengur í innsta hring stjórn­mál­anna.

26 ár á þingi

Lars Løkke Rasmus­sen (oft­ast kall­aður Løkke til aðgrein­ingar frá tveimur for­verum sínum á for­sæt­is­ráð­herra­stóli) er 56 ára og 21. sept­em­ber næst­kom­andi verða 25 ár síðan hann sett­ist á þing. Hann var kos­inn vara­for­maður Venstre árið 1998 og var inn­an­ríkis- og heil­brigð­is­ráð­herra frá 2001 til 2007. Þá sett­ist Løkke í fjár­mála­ráðu­neytið en 5. apríl 2009 tók hann við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, og for­mennsku í Venstre, af Anders Fogh Rasmus­sen, sem varð fram­kvæmda­stjóri NATO.

Stjórnarandstaða, flugmiðar, nærbuxur og dvínandi vinsældir

Eftir þing­kosn­ing­arnar í sept­em­ber 2011 tók stjórn jafn­að­ar­manna, undir stjórn Helle Thorning-Schmidt, við völdum. Lars Løkke kunni illa við sig í stjórn­ar­and­stöð­unni og lýsti því margoft yfir að Helle Thorning væri bara með lyklana að stjórn­ar­ráð­inu í tímbundnu láni, hún myndi þurfa að skila þeim eftir næstu kosn­ingar.

Á stjórn­ar­and­stöðu­ár­unum 2011 -2015 varð Lars Løkke margoft umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla. Haustið 2013 hélt hann lengsta frétta­manna­fund í sögu Dan­merkur, sá stóð í þrjár og hálfa klukku­stund og var sendur út í sjón­varpi og útvarpi. Lars Løkke var for­maður sam­taka sem styðja við efna­hags­upp­bygg­ingu í fátækum löndum en sam­tökin höfðu borgað flug­miða og hót­elgist­ingu fyrir dóttur hans. Eftir þennan langa frétta­manna­fund, um flug­mið­ann og gist­ing­una, voru þeir sem fylgd­ust með litlu nær.

[adspot]

Skömmu síðar kom upp mál sem mikið var fjallað um í dönskum fjöl­miðlum. Það mál sner­ist um að Venstre (sem er hægri miðju­flokkur) hefði borgað fatnað for­manns­ins, sem hefur í klæða­burði aldrei þótt líta út eins og klipptur úr tísku­blaði. Fjöl­miðl­arnir köll­uðu þetta „nær­buxna­málið“. Lars Løkke sem verið hafði vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur var skyndi­lega orð­inn sá óvin­sæl­asti. Margir í for­ystu Venstre höfðu áhyggjur af ástand­inu enda kjör­tíma­bilið meira en hálfnað.

Byltingartilraunin og fundurinn í kjallaranum

Í jún­í­byrjun 2014 hélt mið­stjórn Venstre fund í Óðins­véum. Þar átti að kjósa for­mann. Lars Løkke hafði fengið veður af því að Kristian Jensen vara­for­maður og stuðn­ings­menn hans hygð­ust láta til skarar skríða og velta for­mann­inum, Lars Løkke, úr sessi. Litlir kær­leikar voru með for­mann­inum og vara­for­mann­inum og Lars Løkke mátti ekki til þess hugsa að Kristian Jensen sett­ist í for­manns­stól­inn. Áður en kom að for­manns­kosn­ing­unni brugðu þeir Lars Løkke og Kristian Jensen sér, ásamt þriðja manni, niður í kjall­ara í ráð­stefnu­hús­inu. Þegar þeir komu aftur upp úr kjall­ar­anum var Kristian Jensen hættur við for­manns­fram­boðið og lýsti yfir stuðn­ingi við Løkke. Með lyga­merki á putt­unum sagði Ekstra Blaðið. Kristian Jensen var áfram vara­for­maður og bylt­ing­ar­til­raunin úr sög­unni.

Aftursætisbílstjórinn og nýjar hugmyndir Lars Løkke

Eftir þing­kosn­ing­arnar 2015 tók minni­hluta­stjórn Venstre við völdum og sat fram að kosn­ingum 2019. Lars Løkke var for­sæt­is­ráð­herra og Kristian Jensen utan­rík­is­ráð­herra, og síðar fjár­mála­ráð­herra. Tveir minni flokkar, Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­ræð­is­banda­lagið gengu síðar form­lega til liðs við stjórn­ina, sem var þó áfram minni­hluta­stjórn. Sú sér­kenni­lega staða var á þessu kjör­tíma­bili að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn næst stærsti flokk­ur­inn á þingi (37 þing­menn) vildi ekki eiga aðild að rík­is­stjórn Venstre (sem hafði 34 þing­menn) en stjórn­aði úr ,,aft­ur­sæt­inu“ eins og fjöl­miðl­arnir komust iðu­lega að orði. Stjórnin varð nán­ast að sitja og standa eins og Danska Þjóð­ar­flokknum þókn­að­ist. Margir stuðn­ings­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins voru óánægðir með flokks­for­yst­una og í kosn­ing­unum 2019 galt flokk­ur­inn afhroð, fékk 16 þing­menn, tap­aði 21 manni frá kosn­ing­unum 2015. Draumur Lars Løkke um áfram­hald­andi stjórn­ar­setu var fyrir bí.

Ólga og átök

Í aðdrag­anda kosn­ing­anna vorið 2019 nefndi Lars Løkke að kannski væri kom­inn tími til að hugsa dönsk stjórn­mál upp á nýtt. Flokk­arnir á danska þing­inu, Fol­ket­inget, skipt­ast í tvær „blokkir“ bláa og rauða. Þeirri bláu til­heyra hægri flokk­arnir svo­nefndu en vinstri flokk­arnir þeirri rauðu. Utan blokk­anna stendur Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn sem hefur stutt rík­is­stjórnir bláu blokk­ar­innar. Það var þessi blokka­skipt­ing sem Lars Løkke velti fyrir sér hvort kom­inn væri tími til að brjóta upp. Vinna yfir miðj­una eins og hann komst að orði. Þessar hug­myndir féllu í grýttan jarð­veg hjá mörgum flokks­mönnum Venstre og Mette Frederik­sen leið­togi jafn­að­ar­manna, lang stærsta flokks rauðu blokk­ar­innar, aftók slíka sam­vinnu.

7. ágúst 2019 birti dag­blaðið Berl­ingske langt við­tal við Kristian Jensen vara­for­mann Venstre. Þar vís­aði hann hug­myndum Lars Løkke um að „vinna yfir miðj­una“ á bug. Á árlegum þing­flokks­fundi Venstre, svoköll­uðu „sommermøde“, 9. ágúst 2019 gagn­rýndi Claus Hjort Frederik­sen, einn helsti áhrifa­maður flokks­ins ummæli Kristian Jensen og sagði berum orðum að vara­for­mað­ur­inn ætti að segja af sér. Kristian Jensen beygði sig í duftið, lýsti yfir stuðn­ingi við Lars Løkke án þess þó að draga yfir­lýs­ingar sínar í áður­nefndu blaða­við­tali til baka. Danskir stjórn­mála­skýrendur sögðu greini­legt að allt væri upp­í­loft hjá Venstre.

Lars Løkke gengur á dyr og dregur Kristian Jensen með sér

Á fundi Venstre 30. ágúst 2019 var hart tek­ist á. Seint um kvöldið var fund­inum frestað til næsta morg­uns. Nið­ur­staða þess fundar var að boða til lands­fundar 21. sept­em­ber, þar yrði eitt mál á dag­skrá: kosn­ing for­manns og vara­for­manns. Lars Løkke vildi fá að flytja lands­fund­inum skýrslu (ber­etn­ing) um for­manns­störf sín. Þeirri kröfu var hafnað. Lars Løkke fann hvernig landið lá, til­kynnti afsögn sína og gekk á dyr, bak­dyra­megin og var á bak og burt áður en fund­ar­menn höfðu áttað sig. Kristian Jensen vara­for­maður til­kynnti sömu­leiðis um afsögn sína, draumur hans um for­mennsku í Venstre var að engu orð­inn.

Jakob Ellemann-Jensen

Þótt Lars Løkke væri horf­inn á braut fór lands­fundur Venstre fram 21. sept­em­ber í fyrra eins og ákveðið hafði verið. Þar var Jakob Ellemann-Jensen kjör­inn for­maður og Inger Støjberg vara­for­maður. Hún er mjög umdeild og þessa dag­ana fer fram sér­stök rann­sókn vegna ákvarð­ana, og fyr­ir­skip­ana, hennar í rík­is­stjórn Lars Løkke en þar var hún ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Sú saga verður ekki rakin hér. Innan Venstre höfðu margir efa­semdir um val Inger Støjberg en það er líka önnur saga.

Om de fleste og det meste

Eins og getið var um í upp­hafi þessa pistils kom bók Lars Løkke, sem er 56 ára, með ofan­greindum titli í bóka­búðir fyrir viku síðan. Bók­ar­innar, sem vitað var að væri vænt­an­leg, var beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu. Athygli vakti að í útgáfu­teiti vegna bók­ar­innar mætti ein­ungis einn þing­maður Venstre.

Í þess­ari nýju bók fer Lars Løkke yfir atburða­rás­ina sem leiddi til afsagnar hans, en bókarýnendur dönsku fjöl­miðl­anna segja hann líka hlaupa yfir margt, sleppa því að greina frá alls kyns bak­tjalda­makki og ótal sím­tölum út og suður. Í til­efni bók­ar­innar tók blaða­maður Berl­ingske langt við­tal við Lars Løkke og spurði hann hvers vegna hann greindi ekki ítar­legar frá þessum málum. Lars Løkke svar­aði því til að sær­indin og reiðin vegna þess sem gerð­ist væru enn lokuð, með and­legum hengilás, eins og hann komst að orði, inni í svörtu boxi í heil­anum. „Ég vona að eng­inn neyði mig nokkru sinni til að opna þetta box“.

Það er engin leið að hætta

Þótt frá­sögn Lars Løkke af því hvernig for­mann­s­tíð hans í Venstre lauk hafi vakið athygli margra Dana var þó annað í bók­inni sem vakti enn meiri athygli. Þar lætur hann nefni­lega að því liggja, án þess þó að segja það beint, að hann velti því fyrir sér að snúa aftur í fram­línu stjórn­mál­anna. Hann seg­ist enn sann­færður um að hug­myndir sínar um sam­vinnu „yfir miðj­una“ séu væn­legur kostur, þrátt fyrir að núver­andi for­maður Venstre hafi aftekið slíkt.

Margir í hópi núver­andi, og fyrr­ver­andi þing­manna Venstre hafa lýst undrun sinni á ýmsu því sem fram kemur í bók­inni og segja Lars Løkke bein­línis reyna að grafa undan núver­andi for­manni flokks­ins, Jakob Ellemann-Jensen. Bertel Haarder, fyrr­ver­andi ráð­herra og einn af þunga­vigt­ar­mönnum flokks­ins, sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að Lars Løkke geti verið stoltur af verkum sínum og í stað þess að þyrla upp mold­viðri eigi hann að setj­ast glaður á „fyrr­ver­andi­for­manna­bekk­inn, það er góður félags­skapur“.

Sumir af dygg­ustu stuðn­ings­mönnum Lars Løkke vilja ekki tjá sig mikið um bók­ina. Birthe Rønn Hornbæk fyrr­ver­andi ráð­herra kom sér hjá því að svara spurn­ingu blaða­manns Berl­ingske með því að segja að hún væri ekki búin að fá bók­ina senda í pósti.

Allra mesta athygli í bók­inni vekur það sem ekki er sagt. Spurn­ing­unni um það hvort, ef hann snúi til baka í fram­línu stjórn­mál­anna, muni hann reyna að kom­ast til valda í flokknum á nýjan leik, eða kannski stofna nýjan flokk, svarar Lars Løkke ekki. Blaða­menn hafa gengið á hann en öll slík mál neitar Lars Løkke að ræða. Athygl­is­vert er að hann neitar ekki afdrátt­ar­laust að til greina komi að stofna nýjan flokk. Segir ein­ungis að brátt líði að því að hann þurfi að taka ákvörðun um fram­tíð sína. Rétt er að geta þess að Lars Løkke er enn þing­maður Venstre.

Thomas Larsen, stjórn­mála­skýr­andi Berl­ingske sagði í umfjöllun sinni um bók­ina að í henni gæfi Lars Løkke ýmis­legt til kynna um fram­tíð­ina, og ljóst væri að hann ætli sér ekki að sitja með hendur í skauti. „Ef hann ákveður á end­anum að gera ekki neitt er það eitt mesta póli­tíska sjálfs­mark í seinni tíð“.

Bertel Haarder sagð­ist í blaða­við­tali ekki trúa því að fyrr­ver­andi for­maður Venstre gripi til þess ráðs að stofna nýjan flokk „ég neita algjör­lega að trúa að það geti gerst“. Flestir innan Venstre taka í sama streng, en einn þing­maður sagði „ég ætla ekki að veðja, þegar Lars Løkke er ann­ars­vegar veit maður aldrei“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár