Telur um stefnubreytingu að ræða hjá ASÍ

For­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness segir að áherslur hans og for­manns VR hafi verið sópað undir teppið hjá ASÍ. Hann harmar „þessa stefnu­breyt­ingu“ en segir að hún hafi hins vegar ekki komið honum á óvart.

Vilhjálmur Birgisson
Vil­hjálmur Birg­is­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, segir að þær áherslur sem hann og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hafi barist fyrir innan Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) á liðnum miss­erum hafi verið „sópað undir teppi af þeim sem núna öllu ráða innan ASÍ“. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hjá Vil­hjálmi á Facebook í dag en hann sagði af sér emb­ætti sem 1. vara­for­seti ASÍ í byrjun apríl.

ASÍ hefur kynnt áherslur sínar fyrir stjórn­völdum vegna næsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar í kjöl­far COVID-19 en í til­kynn­ingu frá sam­band­inu kemur fram að það leggi áherslu á að þessi efna­hag­s­pakki tryggi meðal ann­ars eft­ir­far­andi þætti:

Fyrir fólk, ekki fjármagn

  • Aðgerðir stjórn­valda eiga fyrst og fremst að snú­ast um að tryggja afkomu launa­fólks og hags­muni almenn­ings.
  • Tryggja þarf nægi­legt fjár­magn og nauð­syn­legar aðgerðir til að bæta stöðu hópa atvinnu­lausra og þeirra sem hafa veika stöðu á vinnu­mark­aði.
  • Námsmenn hafi mögu­leika á eðli­legum fram­gangi í námi. Beina þarf fólki inn í menntun og fram­halds­fræðslu sem virkar til fram­tíðar og tryggja að stuðn­ingur við nýsköpun stuðli með beinum hætti að atvinnu­sköpun.
  • Stjórn­völd þurfa að sýna fram á að aðgerðir þeirra stuðli að jöfn­uði, jafn­rétti og sjálf­bærni og að stað­inn sé vörður um heim­ilin í land­inu í gegnum efna­hagslægð­ina.
  • Stuðn­ingur við fyr­ir­tæki á að vera skil­yrtur því að störfum sé við­haldið eða ný störf sköpuð og grund­vall­ar­rétt­indi launa­fólks séu virt.
  • Til að hljóta frek­ari stuðn­ing þurfi fyr­ir­tæki og eig­endur að hafa nýtt eigin bjargir og und­ir­gang­ast skil­yrði um að greiða ekki út arð eða kaup hlut í sjálfum sér næstu tvö ár. Fyr­ir­tæki sem svindla á úrræðum stjórn­valda eiga að sæta við­ur­lögum.

[adspot]

Afkomuöryggi fyrir alla

  • Bráða­birgða­á­kvæði um hluta­bætur atvinnu­leys­is­trygg­inga þarf að fram­lengja en að óbreyttu fellur það úr gildi þann 1. júní n.k. Hækka þarf atvinnu­leys­is­bætur þegar í stað en grunn­bætur eru umtals­vert lægri en lág­marks­laun og þak vegna tekju­teng­ingar er oft lágt.
  • Ein­stak­lingar með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og þung­aðar konur sem skv. ráð­legg­ingum heil­brigð­is­yf­ir­valda eiga að halda sig heima þurfa að falla undir lög um laun í sótt­kví.
  • Tryggja þarf afkomu launa­fólks hjá fyr­ir­tækjum sem skv. fyr­ir­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda þurfa að hætta starf­semi alfarið og for­eldra sem ekki geta sótt vinnu að fullu vegna skerts skóla­starfs í leik- og grunn­skólum.
  • Tryggja þarf hús­næð­is­ör­yggi, meðal ann­ars með því að hækka húsa­leigu­bætur, flýta hlut­deild­ar­lánum fyrir fyrstu kaup­endur og fjölga almennum íbúðum.
  • Aðgerðir stjórn­valda þurfa að ná til öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega.
  • Ríki og sveit­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki sem vel standa verða að tryggja sum­ar­störf fyrir náms­menn á kom­andi sumri, sam­hliða því að boðið verði upp á styrki til náms­manna til að stunda nám á sum­arönn. náms­manna til að stunda nám á sum­arönn.

Gefur ekki mikið fyrir þessar áherslur

Vil­hjálmur gefur ekki mikið fyrir þessar áherslur en hann segir í stöðu­upp­færslu sinni að ekki sé vikið einu orði að flestum þeim atriðum sem þeir Ragnar Þór hafi barist fyrir.

Hann útlistar þau atriði sem þeir hafi lagt mikla áherslu á. Þau séu eft­ir­far­andi:

  • Verja heim­ilin fyrir hugs­an­legu verð­bólgu­skoti með því að setja þak á neyslu­vísi­töl­una.
  • Að heim­il­unum standi til boða greiðslu­hlé í allt að eitt ár.
  • Krefja fjár­mála­kerfið þar með talið líf­eyr­is­sjóð­ina að skila stýri­vaxta­lækkun Seðla­bank­ans til neyt­enda.
  • Að staðið verði við bann á 40 ára verð­tryggðum lánum.
  • Að verja störfin.
  • Að verja kaup­mátt launa­fólks.

Hann segir að ekk­ert af þessum atriðum séu hjá ASÍ og ljóst sé að um stefnu­breyt­ingu sé um að ræða af hálfu núver­andi for­ystu ASÍ.

„Ég harma þessa stefnu­breyt­ingu en hún kemur mér hins­vegar ekki á óvart, en fyr­ir­sögnin sem birt­ist í áherslum ASÍ: Fyrir fólk, ekki fjár­magn, end­ur­spegl­ast alls ekki í þeim áherslum ASÍ kynnti rétt í þessu og er það dap­urt!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár