Einkunn Sjálfstæðisflokksins í kvarða Ungra umhverfissinna hækkuð í 21 stig af 100

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú með fjórðu lægstu ein­kunn allra stjórn­mála­flokka vegna stefnu sinnar í umhverfis- og loft­lags­málum en var áður með þriðju lægstu ein­kunn­ina.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ungir umhverf­is­sinnar hafa hækkað ein­kunn Sjálf­stæð­is­flokks­ins á kvarða sem þeir bjuggu til og gefur stjórn­mála­flokk­unum ein­kunn fyrir stefnu þeirra í umhverfis- og lofts­lags­málum fyrir kom­andi kosn­ingar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk upp­haf­leg 5,3 stig af 100 mögu­legum en hefur nú verið hækk­aður í 21 stig. Hægt er að sjá hér hvaða stig það voru sem breytt­ust.

Við það fær­ist hann úr því að vera með þriðju lægstu ein­kunn­ina, á undan Flokki fólks­ins og Mið­flokki sem fengu eitt stig hvor, í að vera með þá fjórðu lægstu, á undan Fram­sókn­ar­flokknum (13 stig) líka.

Ungir umhvers­sinnar rýndu í stefnur flokk­anna og gáfu þeim svo í kjöl­farið ein­kunn á skal­anum 0 upp í 100. Þeir kynntu nið­ur­stöður sínar 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Kvarðinn skipt­ist í þrjá hluta og fást 40 stig að hámarki fyrir áherslur í lofts­lags­málum, 30 stig fyrir nátt­úru­vernd og 30 stig fyrir hringrás­ar­sam­fé­lag. Píratar fengu alls 81,2 stig, Vinstri græn fengu 80,3 stig og Viðreisn fékk 76,3 stig.

Þeir flokkar sem næstir koma voru Sam­fylk­ingin með 48,8 stig og Sós­í­alista­flokkur með 37 stig.

Tóku ekki tillit til ályktunar frá 2018

Ungir umhverf­is­sinnar sendu frá sér til­kynn­ingu í gær­kvöldi þar sem fram kemur að í kjöl­far ábend­ingar frá Sjálf­stæð­is­flokknum hafi komið í ljós að gögn frá flokknum voru ekki með­höndluð með réttum hætti. „Ungir umhverf­is­sinnar harma þessi mis­tök og biðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn afsök­unar á þeim.“

[adspot]Ferli verk­efn­is­ins var þannig að kallað var eftir ákveðnum gögnum frá flokk­unum, nöfn þeirra afmáð af þeim og þver­fag­legt teymi ungra fræði­kvenna sem allar eru í fram­halds­námi í umhverfis- og sjálf­bærni­fræðum síðan fengnar til að fara yfir gögnin. Gætt var að því að hver sá aðili sem að vinn­unni kæmi væri ekki með tengsl innan stjórn­mála­flokk­anna.

[links]Í til­kynn­ingu Ungra umhverf­is­sinna segir að þau mis­tök hafi verið gerð að mats­að­ilar skildu sem svo að gögn sem bár­ust frá Sjálf­stæð­is­flokknum væru upp­færð gögn frá þeim sem þeim hafði áður borist frá flokknum. „Því voru ein­ungis nýsam­þykktar álykt­anir mál­efna­nefnda af flokks­ráðs­fundi teknar með í matið, en ályktun umhverfis- og sam­göngu­nefndar frá lands­fundi flokks­ins árið 2018 ekki notuð til grund­vallar mats­ins.

Eftir að mis­tökin upp­götv­uð­ust voru mats­að­ilar látnir fara aftur yfir stiga­gjöf Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við það mat var einnig tekið til­lit til álykt­ana umhverfis- og sam­göngu­nefndar frá lands­fundi flokks­ins árið 2018. Við yfir­ferð­ina bætt­ust 15,7 stig við stiga­gjöf flokks­ins, og er því upp­færð loka­ein­kunn Sjálf­stæð­is­flokks­ins 21 stig (af 100 mögu­legum).“

Hægt er að sjá upp­færða ein­kunn­art­öflu hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár