Stefna Pírata í umhverfis- og loftslagsmálum skorar hæst hjá Ungum umhverfissinnum

Flokkur Fólksins og Mið­flokk­ur­inn fá eitt stig af 100 mögu­legum fyrir stefnu í umhverfis- og lofts­lags­málum á sér­stökum kvarða Ungra umhverf­is­sinna. Þeir þrír flokkar sem skora hæst fá um eða yfir 80 stig.

Píratar er sá flokkur sem fær hæstu ein­kunn Ungra umhverf­is­sinna (UU) þegar kemur stefnu í umhverfis- og lofts­lags­málum fyrir kom­andi kosn­ingar. Fast á hæla Pírata koma Vinstri græn og því næst Viðreisn. Nið­ur­stöður verk­efn­is­ins voru kynntar á fundi UU í Norræna hús­inu í dag.

Ungir umhvers­sinnar rýndu í stefnur flokk­anna og gáfu þeim svo í kjöl­farið ein­kunn á skal­anum 0 upp í 100. Kvarðinn skipt­ist í þrjá hluta og fást 40 stig að hámarki fyrir áherslur í lofts­lags­málum, 30 stig fyrir nátt­úru­vernd og 30 stig fyrir hringrás­ar­sam­fé­lag. Píratar fengu alls 81,2 stig, Vinstri græn fengu 80,3 stig og Viðreisn fékk 76,3 stig.

Þeir flokkar sem næstir koma voru Sam­fylk­ingin með 48,8 stig og Sós­í­alista­flokkur með 37 stig. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk 13 stig, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 5,3 stig og Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn fengu eitt stig hvorir um sig.

Fyllsta hlutleysis gætt

Á vef UU segir að félagið hafi ráðið þver­fag­legt teymi ungra fræði­kvenna til verks­ins sem allar eru í fram­halds­námi í umhverfis- og sjálf­bærni­fræðum. Í hópnum voru líf­fræð­ingur, stjórn­mála­fræð­ingur og sál­fræð­ingur. Kvarðinn var unn­inn út frá til­lögum 1200 félaga UU í nánu sam­starfi við stjórn félags­ins og fjölda óháðra sér­fræð­inga sem gáfu álit og góð ráð.

„Gætt var að því að hver sá aðili sem að vinn­unni kæmi væri ekki með tengsl innan stjórn­mála­flokk­anna og var fyllsta hlut­leysis var gætt við þróun kvarð­ans sem og við ein­kunna­gjöf­ina. Nöfn flokka voru afmáð áður en stefna þeirra var metin og gætt að sam­ræmi í ein­kunna­gjöf með því að láta ólíkt mats­fólk fara yfir og reikna fylgni milli svara þeirra, þ.e. áreið­an­leika mats­ins,“ segir á vef UU.

Kvarðinn var gef­inn út í maí og segir á vef UU að þannig hafi flokk­unum gef­ist svig­rúm til þess að bæta stefnur sínar og ungu fólki gefið tæki­færi til þess að hafa bein áhrif. Hægt er að skoða kvarð­ann og hvernig stiga­gjöfin er reiknuð út á vef verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár