Tvær bylgjur dauðsfalla til viðbótar gætu skollið á Bretlandi

Breskir vís­inda­menn segja allt of snemmt að aflétta tak­mörk­unum þar í landi enda deyja enn hund­ruð manna á degi hverjum vegna COVID-19. Utan­rík­is­ráð­herr­ann segir dán­ar­töl­una „átak­an­lega“.

Fáir eru á ferli í Oxford-stræti, einni helstu verslunargötu Lundúna.
Fáir eru á ferli í Oxford-stræti, einni helstu versl­un­ar­götu Lundúna. Mynd: EPA

Óttast er að önnur og þriðja bylgja dauðs­falla eigi eftir að skella á Bret­landi vegna heims­far­ald­urs­ins. Þau dauðs­föll verða ekki af völdum COVID-19 sjúk­dóms­ins heldur meðal fólks sem er með aðra sjúk­dóma og fær ekki eða veigrar sér við að nálg­ast nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu.

Breskir vís­inda­menn segja allt of snemmt að aflétta tak­mörk­unum þar í landi enda deyja enn hund­ruð manna á degi hverjum vegna COVID-19. Í gær var talan komin yfir 20 þús­und. Inni í henni eru þó aðeins dauðs­föll sem verða á sjúkra­húsum en ekki þau sem verða á hjúkr­un­ar­heim­ilum eða í heima­húsum af völdum sjúk­dóms­ins.

[adspot]

Vís­inda­menn­irnir, sem meðal ann­ars eru rík­is­stjórn­inni til ráð­gjafar, segja það valda von­brigðum hversu hægt far­ald­ur­inn gangi niður. „Við verðum að ná til­fellum [sýktra] niður í nokkur hund­ruð á dag áður en við getum aflétt tak­mörk­unum,“ segir Keith Neal, pró­fessor við Nott­ing­ham-háskóla í dag­blað­inu Guardian í dag. „Og það gæti tekið marga mán­uði.“

Utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, Dominic Raab, sem hefur verið stað­geng­ill for­sæt­is­ráð­herra síð­ustu vikur, segir að fjöldi dauðs­falla í land­inu vegna far­ald­urs­ins sé „átak­an­legur“ en að þau hefðu orðið enn meiri ef ekki hefði verið gripið til harðra aðgerða. Hann gaf í skyn í við­tali í dag að skólar og fyr­ir­tæki gætu opnað aftur bráð­lega en „í nýjum veru­leika“. Þegar skólar yrðu opn­aðir yrði að halda fjar­lægð­ar­mörkum og fjölda­tak­mörk­unum til verndar starfs­fólki og nem­endum.

Það var nauð­syn­legt að hætta val­kvæðum aðgerðum og for­gangs­raða grimmt á sjúkra­húsum í Bret­landi vegna far­ald­urs­ins. En dauðs­föllum ann­arra en COVID-sjúkra fjölgar nú hratt og gætu þau jafn­vel orðið fleiri en þau sem kór­ónu­veiran veldur að því er fram kemur í grein­ingu Edge Health, stofn­unar sem veitir meðal ann­ars breskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum ráð­gjöf á sviði upp­lýs­inga­mála. Í grein­ing­unni segir að ef ekki verði fundnar „rót­tækar lausnir“ til að veita á nýjan leik hefð­bundna heil­brigð­is­þjón­ustu og stytta biðlista gæti breska heil­brigð­is­kerfið í versta falli neyðst til að inn­leiða fyr­ir­fram ákveðna for­gangs­röðun.

Önnur bylgjan er þegar brostin á að mati stofn­un­ar­innar. Fórn­ar­lömb hennar eru fólk með aðra sjúk­dóma en COVID-19 sem fær ekki heil­brigð­is­þjón­ustu eða treystir sér ekki til að sækja hana vegna ástands­ins. Edge Health-stofn­unin áætlar, miðað við gögn frá heil­brigð­is­kerf­inu, að þegar hafi um 10 þús­und manns lát­ist af þessum sökum – um 2.000 á viku að und­an­förnu, segir í frétt Daily Tel­egraph. Margir deyja heima hjá sér. Aðrir kom­ast ekki á sjúkra­hús í tæka tíð, segir í frétt­inni.

Þriðja bylgjan gæti varað í langan tíma

Stofn­unin ótt­ast að þessi önnur bylgja dauðs­falla muni við­hald­ast svo lengi sem sjúkra­húsin verða að ein­beita sér fyrst og fremst að far­aldr­inum. Hún skall á þrátt fyrir að breskir læknar hafi ítrekað sagt að allir sem á þurfi að halda fái bráða­þjón­ustu.

Þriðja bylgjan mun ríða yfir ef flösku­háls­inn í heil­brigð­is­kerf­inu verður við­var­andi næstu mán­uði. Fórn­ar­lömb hennar verður fólk sem er komið með krabba­mein og hjarta­sjúk­dóma, svo dæmi séu tekin, en hefur ekki fengið grein­ingu vegna ástands­ins. Þetta er fólkið sem á að hafa greiðan aðgang að heim­il­is­læknum sem vísar því svo áfram til með­ferða. Í frétt Tel­egraph segir að ýmsar rann­sóknir sem not­aðar eru til að greina sjúk­dóma liggi niðri vegna far­ald­urs­ins.

Edge Health-stofn­unin varar við því að áhrifa þriðju bylgj­unnar geti varað í langan tíma. „En eitt er víst hún gæti verið ban­væn,“ hefur Tel­egraph eftir George Batchelor, einum stofn­anda Edge Health.

Áður en far­aldur COVID-19 skall á hafði mik­ill nið­ur­skurður átt sér stað í breska heil­brigð­is­kerf­inu og mantran um „skil­virkni“ ómaði um ganga allra sjúkra­húsa. Getan til að takast á við aukið álag var því ekki fyrir hendi. Stjórn­völd hafa bent á að álag á bresku sjúkra­húsin hafi ekki verið jafn slæmt og það sem þau ítölsku þurftu að þola. Aðrir hafa svo aftur bent á að það hafi gerst á kostnað hefð­bund­innar lækn­is­þjón­ustu, s.s. millj­óna rann­sókna, skoð­ana og með­ferða sem ann­ars hefðu átt sér stað.

Greint hefur verið frá því í breskum miðlum að gripið hafi verið til þess að flytja mikið veika sjúk­linga frá sjúkra­hús­unum og inn á hjúkr­un­ar­heim­ili til að rýma fyrir COVID-sjúk­lingum. Það hefur stundum haft hræði­legar afleið­ingar í för með sér.

Tveimur milljónum aðgerða þegar frestað?

Á meðan allt þetta er að eiga sér stað er veld­is­vöxtur á biðlistum eftir aðgerðum, grein­ingum og með­ferðum.

Í hverjum mán­uði eru, í eðli­legu ástandi, fram­kvæmdar um 700 þús­und aðgerðir í Bret­landi. Því er lík­legt að yfir tveimur millj­ónum slíkra aðgerða hafi þegar verið frestað sem bæt­ast þá við biðlista sem voru fyrir.

Þar sem óvissan er mikil og ekki er vitað hvenær far­ald­ur­inn gengur niður eru ekki margar leiðir í boði. Mögulega væri hægt að auka afkasta­getu kerf­is­ins og hefur m.a. verið litið til einka­geirans í því sam­bandi. Skurð­stof­urnar eru þar fyrir hendi en spurn­ingin er hins vegar hvort hægt sé að manna þær.

Annar val­kostur er vart boð­legur en hann er sá að yfir­völd for­gangsraði þeim sem fá heil­brigð­is­þjón­ustu.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, mun mæta aftur til vinnu á morgun, mánu­dag. Hann greind­ist með COVID-19 í byrjun apríl, veikt­ist í kjöl­farið alvar­lega, og hefur verið frá störfum um hríð. Hann er sagður vera undir miklum þrýst­ingi frá félögum sínum í Íhalds­flokknum sem ýmist vilja hefja aflétt­ingu tak­mark­ana strax svo bjarga megi efna­hagnum eða herða þær enn frekar og freista þess að bjarga manns­lífum.

Trú Breta á aðgerðum stjórn­valda vegna far­ald­urs­ins hefur farið dvín­andi und­an­farið. Því var lofað fyrir nokkru að tekin yrði 100 þús­und sýni á dag en það hefur engan veg­inn gengið eftir. Í heild­ina hafa verið tekin um 650 þús­und sýni og á föstu­dag voru sýna­tök­urnar tæp­lega 29 þús­und.

Stjórn­ar­and­staðan kallar eftir áætl­unum um fram­haldið. „Breskur almenn­ingur hefur fært gríð­ar­legar fórnir svo að aðgerðir stjórn­valda hafi orðið að veru­leika. Hann á rétt á því að hafa aðkomu að því sem ger­ist næst. Ef við viljum hafa alla með og tryggja að allir fylgi, þá verður að gera þetta núna,“ skrif­aði Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár