Íslensk stjórnvöld harma tilskipun Trump og lýsa yfir þungum áhyggjum af henni

Íslensk stjórn­völd harma til­skipun Trump og heita því að standa með íslenskum borg­unum sem verða fyrir áhrifum af henni. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að við getum ekki horft þegj­andi á þegar for­ystu­þjóð vest­rænna gilda breyt­ist í and­hverfu sína.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslensk stjórn­völd harma til­skipun Donald Trump Banda­ríkja­for­seta um bann við land­göngu flótta­fólks og borg­ara sjö ríkja til Banda­ríkj­anna. Þau lýsa enn fremur þungum áhyggjum af því hvaða afleið­ingar hún kunni að hafa. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Þar er haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra að þessi til­skipun sé mjög fjarri því sem við höfum átt að venj­ast frá Banda­ríkj­unum, og það sé áhyggju­efni. „Ég tel það fjarri lagi að bann við komu flótta­fólks og íbúa ákveð­inna ríkja sé besta leiðin til að tryggja öryggi Banda­ríkj­anna, sem er yfir­lýst mark­mið til­skip­un­ar­innar[...]Að loka landa­mærum fyrir fólki sem er á flótta undan stríði, og gera upp á milli fólks á grund­velli þjóð­ernis eða trúar, getur ekki verið rétta leiðin og gefur röng skila­boð. Í inn­flytj­endum og flótta­fólki felst framar öðru mannauður og fjöl­breytt reynsla sem er til þess fallin að auðga sam­fé­lög.“

Guð­laugur Þór segir að íslenskir rík­is­borg­arar sem upp­runir eru í þeim sjö löndum sem falla undir til­skipun Trump muni hljóta fullan stuðn­ing íslensku rík­is­stjórn­ar­innar komi til þess að þeim verði meinuð inn­ganga í Banda­ríkin á grund­velli upp­runa síns. Þá muni íslensk stjórn­völd koma athuga­semdum og afstöðu á fram­færi við banda­rísk stjórn­völd með skýrum hætti.

Íslenskir ráða­menn hafa brugð­ist við aðgerðum Trump í dag. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook að það væri hræði­legt að hugsa hvernig komið væri fyrir Banda­ríkj­unum. Fordómar ráði nú ríkjum í þess­ari vöggu lýð­ræðis og frelsis, fáfræði og fljótræði stýri för og rétt­indi væru fótum troðin. „Nú reynir á inn­viði rétt­ar­rík­is­ins, en við getum ekki horft þegj­andi á þegar for­ystu­þjóð vest­rænna gilda er breytt í and­hverfu sína. Íslend­ingar hljóta allir að styðja frelsið og lýsa van­þóknun á stefnu og aðgerðum Trumps.“

Sam­flokks­maður hans og félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra, Þor­steinn Víglunds­son, sagði í stöðu­upp­færslu að á morgun bjóði Íslend­ingar fimm sýr­lenskar fjöl­skyldur sem ætla að setj­ast hér að vel­komnar. „Alls munum við taka á móti 47 manns nú í upp­hafi árs. Þannig sinnum við skyldum okkar gagn­vart flótta­mönnum, með opnum faðmi en ekki lok­uðum landa­mærum. Það er sorg­legt að fylgj­ast með atburðum í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Við sýnum andúð okkar á stefnu Trump best í verki með því að gera betur sjálf í þessum efnum.“

Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, hvatti alla til að mót­mæla aðgerð­un­um. Guð­laugur Þór hafði áður sagt í stöðu­upp­færslu á Face­book að það væri „for­­gangs­­mál að berj­­ast gegn hryðju­verkum en bar­áttan verður erf­ið­­ari og það gerir illt verra ef við mis­­munum fólki eftir trú­­ar­brögðum eða kyn­þætt­i.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár