Óttarr Proppé hvetur alla til að mótmæla aðgerðum Trump

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, hvetur alla til að mót­mæla ákvörðun Donald Trump Banda­ríkja­for­seta um að banna komu fólks til Banda­­ríkj­anna frá sjö ríkjum þar sem múslimar eru í miklum meiri­hluta. Trump hefur einnig fyr­ir­skipað að ekki verið tekið við flótta­fólki frá Sýr­landi. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hans á Facebook.

Þar segir Óttarr: „Mótmælum öll! Það er þyngra en tárum taki að upp­lifa þá mis­munun og mann­vonsku sem nýr banda­ríkja­for­seti leyfir sér að inn­leiða gagn­vart inn­flytj­endum og flótta­mönnum. Hinn frjálsi heimur hlýtur að sam­ein­ast í for­dæm­ingu.“

Óttarr, sem er einn þeirra þriggja manna sem leiða sitj­andi rík­is­stjórn, vitnar síðan í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar þar sem segir: „Í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi felst mannauður og fjöl­breytt reynsla sem er til þess fallin að auðga sam­skipti ein­stak­linga. Inn­flytj­endum verði auð­veldað að verða full­gildir og virkir þátt­tak­endur í íslensku sam­fé­lagi. Vandað verði til reglu­bund­innar mót­töku kvótaflótta­fólks og stefnt að því að taka á móti fleiri flótta­mönnum. Eftir sem áður verði fjár­magn tryggt til neyð­ar­að­stoðar á vegum alþjóð­legra stofn­ana.“ Óttarr biður fólk að halda þessu til haga og segir að það þurfi að berj­ast fyrir því góða í heim­inum því það sigri ekki að sjálfu sér.

Fyrr í dag sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, í tengslum við sama mál, að það væri for­gangs­mál að berj­ast gegn hryðju­verkum „en bar­áttan verður erf­ið­ari og það gerir illt verra ef við mis­munum fólki eftir trú­ar­brögðum eða kyn­þætt­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár