Fasismi í 100 ár

Gunnar Hólm­steinn Ársæls­son stjórn­mála­fræð­ingur fjallar um fas­isma og öfgar í Evrópu.

Í byrjun júní á þessu ári var land­göngu Banda­manna á ströndum Normandí í Frakk­landi árið 1944 fagnað. Um var að ræða stærstu og mestu land­göngu stríðs­sög­unnar. Ekki eru liðin nema 75 ár frá þessum atburði, sem er stutt í sögu­legu sam­hengi. Þúsundir ungra manna óðu á land undir vél­byssu­hríð Þjóð­verja.

Hverju voru hinir ungu her­menn að ganga (og berj­ast) gegn? Jú, versta hug­mynda­fræði­kerfi sem fundið hefur verið upp; Nas­ism­anum, og for­ingja hans, Adolf Hitler. Ekki skal farið frekar út í nas­i­sam­ann hér, en bent á að að hann er afsprengi ann­ars álíka fyr­ir­bæris, sem frekar skal fjallað um hér að neðan; Fasisma Ítalans Benitos Mus­sol­inis.

En til að gera langa sögu stutta, þá tókst land­ganga Banda­manna giftu­sam­lega, kost­aði sitt, en á end­anum unnu Banda­menn sigur á Þriðja ríki Hitlers, sem hrundi saman á vor­dögum í Berlín árið 1945. Rússar komu sem járn­hnefi úr austri og á móti þeim komu Bretar, Frakkar og Banda­ríkja­menn (meðal ann­ars í gegnum Ítalíu).

Fasismi er megin umfjöll­un­ar­efni þess­arar greinar, en fyrr á þessu ári var öld liðin frá því að þetta hug­mynda­fræði­kerfi varð til á Ítalíu. Það má með nokk­urri vissu segja að fas­ism­inn hafi orðið til á vor­dögum 1919 á Ítalíu og þar var fyrsti fas­ista­flokk­ur­inn stofn­aður (Partito Nazionale Fascista).

Á að fagna afmæli fyr­ir­bæra eins og fas­isma? Er það eitt­hvað til að halda upp á að jafn hat­urs­full fyr­ir­bæri eins og fas­ismi eigi afmæli? Og á að minn­ast manna eins og Benito Mus­sol­ini með ein­hverjum hætti? Eiga þeir skilið að vera hluti af sam­eig­in­legu minni okkar?

Svarið er að mínu mati já, ég tel vera nauð­syn­legt að halda til haga þeim grimmda­verkum sem voru framin í nafni fas­ism­ans (og síðar nas­ism­ans), vegna þess að þau eru þess eðlis að þau megi ekki gleym­ast. Um er að ræða millj­ónir, jafn­vel, tugi millj­óna manns­lífa. Fer eftir því hvernig við reiknum.

Skipulögð minnisbæling

Hitt er hins­vegar reynt, þ.e.a s. að bæla óþægi­legar minn­ingar, líkt og Japanir hafa gert í sam­bandi við ýmis grimmd­ar­verk sem fram voru af hinu fasíska keis­ara­veldi Japan á fyrri hluta síð­ustu aldar, t.d. fjöldamorð­unum í Nanking , þáver­andi höf­uð­borg Kína, frá miðjum des­em­ber 1937 og fram í jan­úar 1938. Þá myrtu jap­anskir her­menn um 300.000 íbúa borg­ar­innar; karla, konur, börn og gam­al­menni á grimmasta mögu­lega hátt. Japönsk stjórn­völd á þessum tíma og út alla seinni heims­styrj­öld voru síst skárri en nas­istar varð­andi grimmi­legt fram­ferði og öfga­hyggju ýmis­konar. Annað nýrra dæmi um skipu­lagða ,,minn­is­bæl­ingu“ er með­ferð kín­verskra stjórn­valda á fjöldamorð­unum árið 1989 á Torgi hins himneska friðar í Peking, þar sem óþekktur fjöldi var drep­inn (tugir/hund­ruð/þús­undir?), en engin opin­bert tala er til um þetta, og verður senni­lega aldrei. Um var að ræða mót­mæli stúd­enta og almennra borg­ara, sem vildu aukið frelsi í land­inu og berj­ast gegn spill­ingu í alræð­is­rík­inu Kína.

Hvað er fasismi?

En hvað var fas­ismi og úr hvaða umhverfi spratt þetta fyr­ir­bæri? Eftir fyrri heims­styrj­öld var Ítalía í sárum, rétt eins og margar aðrar þjóðir Evrópu. Ítalir komu inn í stríðið árið 1915 í lið Banda­manna (Bretar, Frakkar, og Rússar stærstir þar), og misstu allt að 600.000 her­menn. Saga Ítalíu, sem sam­ein­að­ist í eitt ríki aðeins um 40 árum fyrr (um 1870) í sam­bandi við fyrra stríð er mjög flókin og óreiðu­kennd og verður ekki farið nánar í hana hér.

En þegar upp­gjörið vegna fyrri heims­styrj­aldar fór fram með Ver­sala­samn­ingum (28.júní 1919) fannst þeim gengið fram hjá sér og olli það mik­illi gremju meðal þeirra. Í þeim samn­ingum var skuld­inni vegna stríðs­ins skellt á Þjóð­verja og þeir dæmdir til að greiða gríð­ar­legar stríðs­skaða­bætur.

Í umrót­inu eftir fyrri heims­styrj­öld var ungur maður á Ítalíu að nafni Benito Mus­sol­ini, kenn­ari/blaða­maður/útgef­andi og sós­í­alisti (sem hann virð­ist hafa fengið í arf frá föður sínum). Deilur á milli sós­í­alista um afstöð­una til stríðs­ins leiddu á sínum tíma til þess að Mus­sol­ini var rek­inn úr flokki þeirra. Hann var fyrst hlynntur hlut­leysi Ítala, en gerð­ist síðar stuðn­ings­maður þátt­töku þeirra í fyrri heims­styrj­öld, barð­ist þar sjálfur og særð­ist.

Hann hafði í kringum sig fylg­is­menn úr svoköll­uðum ,,Arditi-sér­sveitum“ (kall­aðir ,,Hinir hug­rökku“). Í stríð­inu höfðu þeir lent í hörðum átökum og þá reynslu sem þeir fengu þar, nýttu þeir sér til fulln­ustu að stríð­inu loknu. Aðallega þó til þess að fremja ofbeldi. Menn­irnir sem Mus­sol­ini treysti hvað mest á hafa verið kall­aðir ,,aðals­menn skot­graf­anna“.

Ofbeldismaðurinn Mussolini

Frá unga aldri virð­ist sem Mus­son­lini hafi verið ofbeld­is­maður, hann hafði t.d. mikið dálæti á hnífum og var rek­inn úr skóla vegna atviks þar sem hann beitti hníf. Hann er líka sagður hafa verið mik­ill kvenna­maður og sængað hjá hund­ruðum kvenna. Og beitt sumar þeirra grófu ofbeldi, jafn­vel nauðgað. Einnig lét hann loka fyrrum eig­in­konu sína á geð­veikra­hæli, þar sem hún var síðan barin til bana. Nokkrum árum síðan lét hann svo myrða son þeirra, Benito Albino, sem þá var aðeins 26 ára gam­all, með eit­ur­sprautu. Einnig lét hann drepa tengda­son sinn á dögum seinni heims­styrj­aldar.

Ofbeldi fas­ista beind­ist mest gegn þeim hópum sem þeir töldu and­stæð­inga sína, en það voru aðal­lega sós­í­alistar og frjáls­lyndir. Eins og fyrr sagði var Mus­sol­ini rek­inn úr flokki sós­í­alista og má þar ef til vill finna gremju hans í garð þeirra. Sla­venskt fólk (Serbar/Króatar), sam­kyn­hneigðir, sem og gyð­ingar urðu einnig fyrir barð­inu á fas­istum, sem hrein­lega dýrk­uðu ofbeldi. Skefja­laust ofbeldi var verk­færi þeirra til að ná póli­tískum mark­miðum.

Í sem stystu máli má segja að fas­ismi sé kúg­un­ar­stefna. Fasismi miðar að því að allt sam­fé­lagið er sett undir einn sterkan leið­toga, allar aðrar skoð­anir en hans eru bann­aðar, allt það sem við köllum almenn mann­rétt­indi eru van­virt og þau fótum troðin. Þessu er náð fram með ofbeldi og kúgun. Enda gengu fas­istar um á Ítalíu og gerðu einmitt það; kúg­uðu og myrtu. Á árunum 1926-1943 voru þús­undir and­stæð­inga fas­ista fluttir í ein­angrun á ýmsum eyjum og í smá­bæjum á S-Ítalíu. Í allt er talið að fórn­ar­lömb fasimans á tímum Mus­sol­ini sé um milljón manna (her­menn og almennir borg­arar).

Fasismi (og síðar nas­ismi) er hug­mynda­fræði reið­innar og illsk­unnar. Bæði Mus­sol­ini og Hitler voru reiðir og sárir menn sem fengur útrás fyrir reiði sína vegna slæmrar útreiðar Ítalíu og Þýska­lands í fyrri heims­styr­öld. Hitler var til dæmis æfur vegna Ver­sala­samn­ing­anna og skil­yrða þeirra. Fasistar voru meðal ann­ars fúlir vegna þess að þeir fengu ekki þau svæði sem þeir vildu.

Fasistar afneita skyn­sem­is­hyggju, þeir horfðu til for­tíðar og til glæsi­tíma Róma­veldis, enda sást það t.d. á bún­ingum og klæðn­aði bæði fas­ista og nas­ista. Ein­kenn­is­tákn fas­ism­ans er egg­vopn (fascio), en notkun þess má rekja allt aftur til daga hins gamla heims­veldis. Hern­að­ar­hyggja er ríkj­andi, þeir eru öfga­þjóð­ern­is­sinnar og að þeirra mati eru her­inn og þjóðar­ör­yggi gríð­ar­lega mik­il­væg fyr­ir­bæri í sam­fé­lag­inu. Fasistar fundu sér sam­eig­in­lega óvini og stjórn­uðu öllum fjöl­miðlum, urðu braut­ryðj­endur í stjórn­málum múgæs­ingar, heila­þvotti og áróðri, enda Mus­sol­ini tal­inn mjög góður ræðu­maður og tal­inn hafa haft yfir að ráða miklum sann­fær­ing­ar­krafti. Bæði hann og síðar Hitler, æfðu sig stíft í áróð­urs og ræðu­tækni, m.a. hvernig lík­am­anum er beitt til að ná til­ætl­uðum áhrifum.

Árið 1922 komust fas­istar til valda á Ítalíu og gegn­sýrðu allt ítalskt sam­fé­lag með boð­skap sínum. Mus­sol­ini gerði svo band­lag við Hitler, Ítalir urðu hluti af Öxul­veld­unum ásamt Japan og tóku síðan fullan þátt í seinni heims­styrj­öld­inni. En árið 1943 hrökkl­að­ist Mus­sol­ini frá völdum, enda hrak­farir Ítala í stríð­inu nið­ur­læg­ing fyrir landið. Innrás hans í Grikk­land árið 1940 var til dæmis alger­lega mis­heppnuð og Hitler þurfti að bjarga félaga sínum fyrir horn. Mus­sol­ini ákvað hana einn síns liðs. Þrátt fyri hrak­far­irnar sagð­ist hann vera gáf­aðsti mað­ur­inn sem heim­ur­inn hefði augum litið.

Eftir að hafa misst völdin var Mus­sol­ini (Il Duce - ,,stjór­inn“) hand­tek­inn og settur í varð­hald. Adolf Hitler fyr­ir­skip­aði hins­vegar per­sónu­lega að honum yrði bjargað og djörf sér­sveitar­að­gerð í sept­em­ber það ár náði því tak­marki. Sett var upp lýð­veldi fyrir kall­inn á Norður-Ítalíu, sem stóð þar til Banda­menn náðu land­inu a sitt vald. Í lok apríl 1945 lagði Mus­sol­ini á flótta, en var þá hand­tek­inn af ,,partí­sönum“ (sós­í­alistum) í and­spyrn­unni. Svo fór að Mus­sol­ini og frilla hans, Clara Petacci, voru tekin af lífi. Líkum þeirra var síðan mis­þyrmt og hengd upp til sýnis. Menn sem skapa grimm örlög, hljóta oft grimm örlög sjálfir.

Fasisminn breiðir úr sér

En fas­ism­inn hafði breytt úr sér, fræjum illsk­unnar hafði verið sáð. Á Spáni komst fas­ist­inn Franco til valda algerra valda eftir grimmi­legt borg­ara­stríð á árunum 1936-1939. Valdatíð hans stóð til 1974. Í Portúgal var á nán­ast sama tíma­bili það sem skil­greina mætti að minnsta kosti sem hálf-fasíska stjórn. Leiðtogi hennar var hag­fræð­ing­ur­inn Antonio Salazar, en hann náði völdum í valdráni hers­ins árið 1926. Hann var ákafur stuðn­ings­maður Francos og reiddi sig á her­inn og örygg­is­lög­reglu til að halda völdum. Rit­skoðun var grimmi­lega beitt. Þessi tvö Evr­ópu­lönd voru því undir alræð­is­stjórnum allt fram á miðjan sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, er þeim tókst að varpa okinu af sér.

Herforingjastjórnir í Suður-Ameríku

Fjöl­margar rík­is­stjórnir í ýmsum löndum Mið og S-Ameríku mætti líka kalla hálf-fasískar og víst er að að þær eru í það minnsta harð­stjórnir, mann­rétt­indi hafa verið fótum troðin og hrika­leg grimmd­ar­verk framin, þar sem þús­undir eða tug­þús­undir misstu lífið. Frægustu dæmin eru ef til vill frá Chile (stjórn Augusto Pinochet) og Argent­ínu (allt frá Juan Peron um 1930), en einnig mætti nefna Brasilíu og Paragvæ. Í dag­legu tali hafa þessar stjórnir verið kall­aðar ,,her­for­ingja­stjórnir“ en þær eiga það flestar sam­eig­in­legt að kúga almenna borg­ara og fremja mann­rétt­inda­brot. Í bæði Chile og Argent­ínu (,,Skítuga stríðið“ frá 1974-1983) er talið að þús­undir manna (mest vinstri­s­innar) hafi horfið og hlotið dauða. Í síð­ara land­inu léku t.d. dauða­sveitir lausum hala og á það við um fleiri lönd í Mið og S-Ameríku. Fjöl­margar af þessum stjórnum nutu stuðn­ings Banda­ríkja­manna, meðal ann­ars í Guatemala og El Salvador.

Hið svo­kall­aða ,,fimmta lýð­veldi“ Brasilíu (stærsta land S-Ameríku) var her­for­ingja­stjórn á árunum 1964-1985. Nú er þar aftur kom­inn til valda maður, Jair Messías(!)Bol­son­aro, sem sjálfur er fyrrum her­for­ingi og hefur ekki leynt sínum fasísku til­burðum. Gengur þar fas­ism­inn í end­ur­nýjun í líf­daga?

Salvini og vagga fasismans

En hvað með Ítalíu sjálfa? Vöggu fasimans? Stjórn­mál Ítalíu eftir seinna stríð voru skraut­leg og lengi vel var það þannig að nán­ast var skipt um rík­is­stjórn með árs milli­bili. Það breytt­ist þegar Silvio Berlusconi komst til valda vorið 1994 og honum tókst að vera í emb­ætti í næstum ára­tug. Hann var sjálfur sak­aður um ,,alræð­istil­burði“ og þótti vera lýð­skrum­ari (,,pop­u­list“) í sinni nálgun á stjórn­mál.

Í núver­andi stjórn Ítalíu er það hins­vegar inn­an­rík­is­ráð­herra lands­ins, Matteo Salvini, sem hefur verið í kast­ljós­inu. Í nýlegu við­tali við Time lét hann í ljós andúð sína á sós­í­alistum og þá hefur hann í ræðum vísað til hluta í ítal­skri sögu frá byrjun síð­ustu aldar og á því að minnsta kosti tvennt sam­eig­in­legt með Mus­sol­ini; for­tíð­ar­þrá og sterka andúð á sós­í­alistum. Salvini hefur það á stefnu­skrá sinni að sundra ESB, en hann hefur setið á Evr­ópu­þing­inu frá 2004.

Inn­flytj­endur eru eitur í hans beinum (sam­eig­in­legur óvinur) og vill hann með öllum ráðum hindra að þeir komi til Ítalíu. Hann talar hins­vegar ekki um það að inn­flytj­endur frá Ítalíu streymdu á sínum tíma til Banda­ríkj­anna, í leit að betra lífi, rétt eins og þeir flótta­menn sem (flestir) eru að flýja stríð og hörm­ungar og vilja ú öðl­ast betra líf í Evrópu. Salvini hefur verið flokk­aður sem það sem kallað er ,,sterkur leið­togi“ (,,strong­man“ á ensku).

Vill sekta góðgerðarsamtök

Fyrir skömmu var gefin út sér­stök ,,örygg­is­til­skipun“ frá Salvini, þar sem sam­tök sem vilja bjarga flótta­mönnum á Mið­jarð­ar­haf­inu, geta hlotið sekt allt að 50.000 evrur (7 millj­ónir) geri þau það án leyfis ítal­skra stjórn­valda. Árið 2017 tóku Ítalir á móti um 170.000 flótta­mönnum, en til sam­an­burðar tók Þýska­land á móti um einni milljón flótta­manna árið 2016. Ítalir eru um 60 millj­ónir en íbúar Þýska­lands eru um 82 millj­ónir. Af þessu sést að ítalskt sam­fé­lag er alls ekki að fara á hlið­ina vegna flótta­manna. Salvini segir hins­vegar að þeir fremji fjölda glæpa og hefur hann kallað inn­flytj­endur ,,latan glæpa­lýð.“ Hins­vegar hefur glæpum fækkað veru­lega á Ítalíu frá 2007 og ekk­ert sem bendir til þess að inn­flytj­endur séu ,,glæpa­lýður“ – eins og áhuga­verð grein frá London School of Economics frá árinu 2018 bendir á. Þessar full­yrð­ingar virð­ast því vera út í loftið og fyrst og fremst settar fram í póli­tískum til­gangi.

Öfgaflokkar vilja mynda bandalag

Eftir kosn­ing­arnar til Evr­ópu­þings­ins fyrr á þessu ári (þar sem sumum hægri og þjóð­ernis-öfga­flokkum gekk vel, ekki þó öllum) hafa Salvini og Marine Le Pen frá Frakk­landi reynt að stofna banda­lag flokka sem eru and­snúnir ESB. Vænt­an­lega er mark­mið þeirra að reyna að leysa sam­bandið upp. En gall­inn við þetta er að öfgarnar hjá þessum hópum eru oft það miklar og áherslur svo ólíkar að þeim tekst í raun ekki að vinna saman. Til dæmis hefur Salvini verið að daðra við Rússa (Pútín) að ýmsu leyti, en það þola pólskir þjóð­ern­is­sinnar alls ekki, þar sem hjá þeim er um land­lægt hatur á Rússum að ræða. Meðal ann­ars er talið að Rússar hafi boðið flokki Salvinis fjár­stuðn­ing fyrir Evr­ópu­kosn­ing­arnar. Þá er einnig áhuga­verð frétt Washington Post um stuðn­ing frá tékk­nesk/rúss­neskum banka til Le Pen árið 2014. Allir sem fylgj­ast með stjórn­málum vita að Vladimír Pútín er ekki mik­ill lýð­ræð­is­sinni, og það sem við getum kallað ,,rúss­neskt lýð­ræði“ er það sem kalla mætti ,,gervi­lýð­ræði“, þar sem Pútín stjórnar nán­ast öllu í rúss­nesku stjórn­kerfi og sam­fé­lagi, þar á meðal fjöl­miðlum.

Fas­ism­inn á rætur að rekja til þjóð­fé­lag­s­ólgu sem skap­að­ist eftir mesta stríð sem mann­kynið hafði séð fram að því, með ógn­væn­legu mann­tjóni. Fasismi er mann­fjand­sam­leg stefna og hug­mynda­fræði. Hún er líka ,,kyn-fjand­sam­leg“ þar sem hún var borin uppi af ofbeld­is­fullum karl­mönnum og ein­stak­lingum sem dýrk­uðu ofbeldi.

Efna­hag­skreppan 2008 og borg­ara­stríð í Sýrlandi frá 2011 (vitum ekki hvenær því lýkur) eru hins­vegar það elds­neyti sem hefur kynt undir ýmsum öfga­öflum í Evrópu á síðstu árum (þó mörg þeirra eigi sér lengri sögu). Sú óreiða og sundr­ung sem fylgdi krepp­unni og nýr sam­eig­in­legur óvinur (flótta­menn) er besta mögu­lega elds­neytið fyrir öfga og menn með ein­faldar lausnir. Gott dæmi eru aðgerðir Viktors Orbans í Ung­verja­landi á und­an­förnum árum, en þar eru einnig tveir öfl­ugir öfga­flokkar, Jobbik og Fidez, sem hegða sér nán­ast eins fas­istar. Mikið af þeirri póli­tísku gremju sem brot­ist hefur út í land­inu á und­an­förnum árum (meðal ann­ars með lokun landamæra) á sér einnig rætur í fyrri heims­styrj­öld, en tví­ríkið Aust­ur­ríki-Ung­verja­land, var einn helsti ger­andi þess hild­ar­leiks og leyst­ist upp í stríðs­lok.

Sú frjálsa Evrópa sem við höfum hins­vegar van­ist eftir seinna stríð byggir á gildum sem eru frjáls­lynd, mann­væn og hún hefur sett mann­rétt­indi og lýð­ræði á odd­inn. ESB var stofnað á sínum tíma til þess að slíðra þau sverð sem höfðu hoggið álf­una í spað á árunum 1939-1945, mest þau sem Frakkar og Þjóð­verjar höfðu notað hvor gegn öðrum í gegnum tíð­ina.

Viljum við hverfa aftur til óvissu um þetta? Viljum við tefla þessu í tví­sýnu? Held ekki. Þess­vegna verður að berj­ast af öllu afli gegn öllum til­hneig­ingum í átt til fas­isma, öfga og alræð­is­hyggju. Það er hlut­verk ein­stak­linga og stjórn­mála­afla sem aðhyll­ast frelsi, almenn mann­rétt­indi, lýð­ræði og frjáls­lyndi. Auð­veld­lega er hægt að kippa lýð­ræð­inu úr sam­bandi, rétt eins og Adolf Hitler gerði eftir valda­töku sína í Þýska­landi árið 1933. Sagan getur end­ur­tekið sig og því er nauð­syn­legt að vera á varð­bergi.

Höfundur er MA í stjórn­málum A-Evrópu frá Upp­sala­há­skól­anum í Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár