Hjúkrunarfræðingar fá áfram greiðslur sem þeir áttu að missa um síðustu mánaðarmót

Vakta­á­lags­auk­inn sem leggst ofan á laun hjúkr­un­ar­fræð­inga, en var aflagður um nýliðin mán­að­ar­mót með þeim afleið­ingum að laun þeirra lækk­uðu umtals­vert, hefur verið fram­lengdur.

Vakta­á­lags­auki sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar á Land­spít­ala hafa fengið vegna til­rauna­verk­efnis spít­al­ans verður fram­lengdur til næstu mán­aða og nauð­syn­legar fjár­veit­ingar tryggðar. Þetta kemur fram í bréfi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hafa sent for­stjóra Land­spít­ala vegna máls­ins.

[links]Íslenskir hjúkr­un­ar­fræð­ing­ar, ­sem hafa staðið í eld­línu far­ald­urs­ins síð­ustu vikur og starfað und­ir­ gríð­ar­legu álagi, vökn­uðu upp við vondan draum um mán­aða­mótin er sér­stakrar á­lags­greiðslu til þeirra var hætt. Eru dæmi um að laun þeirra hafi lækkað um 40 ­þús­und við þetta.

Eng­ar ­sér­stakar greiðslur vegna álags á Land­spít­al­anum í yfir­stand­andi far­aldr­i hafa ver­ið til­kynnt­ar, en slíkar hafa til að mynda verið teknar upp í Svíþjóð.

[adspot]Í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu segir að vakta­á­lags­auk­inn, sem sé til­raun­ar­verk­efni sem sett hafi verið af stað árið 2017 og hafi marg­sinnis verið fram­lengt síðan, verði fram­lengt til 1. októ­ber 2020 vegna þeirra „sér­stöku aðstæðna sem nú eru uppi.“

Þar er haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni að rík­is­stjórnin ætli að gera grund­vall­ar­breyt­ingar í þeim samn­ingum sem séu í far­vatn­inu við hjúkr­un­ar­fræð­inga á vakta­vinnu­fyr­ir­komu­lag­inu. „Vonandi hjálpar fram­leng­ing á greiðslum fyrir álag vegna vakta til að ljúka kjara­við­ræðum samn­inga­nefndar rík­is­ins og hjúkr­un­ar­fræð­inga far­sæl­lega. Ég vil trúa því."

Svandís Svav­ars­dóttir segir að þegar horft sé til þeirra alvar­legu aðstæðna sem nú séu uppi í heil­brigð­is­kerf­inu vegna COVID-19, þar sem álag á heil­brigð­is­stéttir sé meira en nokkru sinni, telji hún „aug­ljóst að ráð­staf­anir sem skerða kjör hjúkr­un­ar­fræð­inga eru frá­leitar".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár