Séra Gunnar um ásakanir sex kvenna: „Það fær ekkert á mig“

Séra Gunnar Björns­son segir að sam­viska sín sé hrein. Sex konur sem Stundin ræddi við segja hann hafa áreitt sig þegar þær voru á barns- og ung­lings­aldri.

Séra Gunnar Björns­son hafnar því að hafa gengið of langt gagn­vart sókn­ar­börnum sínum og nem­endum. Sex konur lýsa kyn­ferð­is­legri áreitni séra Gunnars við sig á barns- og ung­lings­aldri í tölu­blaði Stund­ar­innar sem út kom í dag. Þær segja að hann hafi í tíð sinni sem sókn­ar­prestur í Bol­ung­ar­vík, á Flateyri og á Selfossi nýtt sér aðstöðu sína til að kyssa þær og káfa á þeim.

„Þær voru alveg prýði­lega efni­legar stúlkur að læra að spila,“ segir Gunnar um kon­urnar tvær sem lýsa kyn­ferð­is­legri áreitni hans í pía­nó­tímum á Flateyri. „Þetta hins vegar kann­ast ég alls ekki við. Því miður er þetta algjör­lega í mínum huga úr lausu lofti gripið.“

Hann hafnar einnig frá­sögnum þriggja kvenna á Ísafirði, sem segja hann hafa snert sig með óvið­eig­andi hætti þegar þær voru á aldr­inum níu til fjórtán ára. „Ég get engan veg­inn kann­ast við það, því miður. Ég man engan veg­inn eftir því eða get stað­fest það að neinu leyti. Þetta er svona í fram­haldi af þessu sem er svo mikið á döf­inni núna.“

Hvað varðar mál tveggja stúlkna frá Selfossi sem hann var ákærður fyrir og síðar sýkn­aður vísar Gunnar alfarið í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar. „Eins og þú sérð er þetta mjög mikið á döf­inni í mann­fé­lag­inu, þessar ásak­anir,“ segir hann.

„Mér líður bara alveg ljóm­andi vel. Mér gæti bara ekki liðið betur.“

Aðspurður hvernig honum líði með slíkar ásak­anir sókn­ar­barna og nem­enda og hvort hann þurfi eitt­hvað að end­ur­skoða hegðun sína segir Gunnar ekki þörf á því. „Mér líður bara alveg ljóm­andi vel. Mér gæti bara ekki liðið betur.“

Gunnar seg­ist að mestu sestur í helgan stein á Selfossi, en hafi stundað ein­hver prests­störf und­an­farin ár. Hann hafi í fyrra skilað af sér átta ára vinnu við að þýða skýr­ingar við öll 66 rit Bibl­í­unnar á vegum Hins íslenska bibl­íu­fé­lags.

„Það fær ekk­ert á mig, vinur minn, ég er alveg kom­inn í gegnum það,“ segir hann. „Þetta fárán­lega mál hérna, því miður, það var eng­inn fótur fyrir því að þetta væri nein ..., enda kom það fram í dómi bæði í hér­aðs­dómi og Hæsta­rétti að ég hefði ekki komið óvið­ur­kvæmi­lega fram við kven­fólk.“

Aðspurður hvort sam­viska hans sé hrein í þessum málum segir Gunnar: „Algjör­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár