Börnin segja frá séra Gunnari

Sex konur sem Stundin ræddi við segja séra Gunnar Björns­son hafa áreitt sig þegar þær voru á barns- og ung­lings­aldri. Atvikin áttu sér stað yfir meira en þriggja ára­tuga skeið á Ísafirði, Flateyri og Selfossi þegar Gunnar var sókn­ar­prestur og tón­list­ar­kenn­ari. Gunnar segir að sam­viska sín sé hrein.

Gunnar Björnsson
Gunnar Björns­son Prest­ur­inn seg­ist hafa hreina sam­visku hvað varðar frá­sagnir kvenn­anna.

Sex konur lýsa kyn­ferð­is­legri áreitni séra Gunnars Björns­sonar við sig á barns- og ung­lings­aldri í sam­tölum við Stundina. Atvikin áttu sér stað í kirkjum eða tón­list­ar­tímum í lok átt­unda ára­tug­ar­ins á Ísafirði, á tíunda ára­tugnum á Flateyri og þau síð­ustu árið 2008 á Selfossi.

Konurnar voru á aldr­inum níu til sextán ára þegar atvikin áttu sér stað. Þær lýsa þöggun í litlu sam­fé­lög­unum sem þær bjuggu í og því hvernig full­orðnir afsök­uðu prest­inn með því að hann væri með svo mikla snerti­þörf. Gunnar hefur ítrekað þurft að víkja sem sókn­ar­prestur en honum var alltaf fund­inn nýr staður innan kirkj­unnar.

Helga Bjarna­dóttir segir Gunnar hafa mis­notað sig kyn­ferð­is­lega um tveggja ára skeið þegar hann var píanó­kenn­ar­inn hennar á Flateyri 1991 til 1993, tólf til fjórtán ára gamla. Hún lýsir því að í einka­tímum hafi hann …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár