Leggur til að nýir flokkar fái gjaldfrest vegna auglýsinga á RÚV þar til ríkisstyrkir berast

Fulltrúi Pírata í stjórn RÚV hefur sagt sós­í­alistum að hann muni leggja til við aðra stjórn­ar­menn að flokkar utan þings fái aug­lýs­inga­tíma úthlut­uðum með gjald­fresti fram á næsta kjör­tíma­bil.

Stjórnmálaflokkarnir sem sitja á þingi skipa fulltrúa í stjórn Ríkisútvarpsins.
Stjórn­mála­flokk­arnir sem sitja á þingi skipa full­trúa í stjórn Rík­is­út­varps­ins. Mynd: RÚV

Mörður Áslaug­ar­son, full­trúi Pírata í stjórn Rík­is­út­varps­ins, seg­ist ætla að leggja til við stjórn­ina næst er hún kemur saman að stjórn­mála­flokkar sem bjóða fram til Alþingis en eru utan þings fái frest til að greiða fyrir aug­lýs­ingar í miðlum RÚV þar til þeir fái styrki úr rík­is­sjóði.

[links]

Ef atkvæða­magn þeirra í kosn­ingum verði hins vegar ónægt til að fá rík­is­styrk, eða undir 2,5 pró­sentum af heild, verði kostn­að­ur­inn lát­inn niður falla af hálfu Rík­is­út­varps­ins.

Þetta sagði Mörður í umræðum á opnum spjall­hópi sem Sós­í­alista­flokk­ur­inn heldur úti á Facebook, en þar var erindi sem fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins sendi á stjórn RÚV í gær til umræðu.

Í erind­inu, sem Gunnar Smári Egilsson fram­bjóð­andi flokks­ins sendi til stjórnar RÚV, auk útvarps­stjóra og aug­lýs­inga­stjóra RÚV, var óskað eftir því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn fengi að aug­lýsa frítt í miðlum RÚV.

[adspot]

Þessi beiðni var rök­studd með því að þeir flokkar sem sitji á þingi hefðu á kjör­tíma­bil­inu fengið millj­arða króna í styrki frá almenn­ingi í land­inu, sem sé síðan nýttur til að kaupa aug­lýs­ingar, meðal ann­ars í almanna­út­varp­inu.

Sex stjórn­mála­flokkar af þeim átta sem eru á þingi, allir nema Flokkur fólks­ins og Píratar sam­þykktu í upp­hafi kjör­tíma­bils til­lögu um að hækka fram­lög úr rík­is­sjóði til flokk­anna um 127 pró­sent. Í ár nema fram­lögin 728 millj­ónum króna.

Gunnar Smári skrif­aði að hætta væri á að erindi nýrra gras­rót­ar­fram­boða almenn­ings myndi „drukkna í aug­lýs­ingum þeirra flokka sem hafa skammtað sér þessa styrki“ og fór því fram á ókeypis aug­lýs­ingar í fjöl­miðlum RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár