„Þurfum að búa okkur undir breyttan heim“

Samkvæmt nýrri skýrslu sér­fræð­inga­hóps milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar býr 3,3 milj­arðar manna við aðstæður sem eru mjög við­kvæmar gagn­vart lofts­lags­breyt­ingum og hátt hlut­fall dýra­teg­unda er sömu­leiðis við­kvæmt.

Aftaka­at­burðir tengdir lofts­lags­breyt­ingum, aukin tíðni þeirra, kraftur og tíma­lengd, eru í auknum mæli rakin til lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum. Þetta eru öfgar á borð við aftaka­hita á landi og legi, flóða, svæð­is­bund­inna þurrka, bruna og aftaka­veð­urs. Þessir atburðir hafa valdið víð­tækum og langvar­andi áhrifum á vist­kerfi, fólk, byggð­ar­lög og inn­viði. Þar á meðal er aukin dán­ar­tíðni fólks og fjölda­dauða teg­unda á landi og í hafi, dauði hlýsjáv­ar­kór­alla, dauði þara­skóga og auk­inn dauði trjáa.

Þetta kemur fram í nýrri mat­skýrslu sér­fræð­inga­hóps milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) sem kom út í dag. Skýrslan er afrakstur vinnu­hóps sem leggur mat á áhrif lofts­lags­breyt­inga á líf­ríki og sam­fé­lög og skoðar mögu­leika á aðlögun, auk þess að leggja grunn að nauð­syn­legum aðgerðum til þess að aðlag­ast lofts­lags­breyt­ingum.

Þá segir í skýrsl­unni að orðið hafi svæð­is­bundin aukn­ing gróð­ur­elda, sem og aukn­ing í áhrifum af slíkum atburðum. Tap og tjón í nátt­úr­legum og mann­gerðum kerfum hafi auk­ist vegna aukn­ingar á hita­belt­is­stormum af manna­völdum, hækk­unar sjáv­ar­stöðu og mik­illar úrkomu.

Mikilvægt að samfélög um allan heim grípi til aðgerða

„Þessi skýrsla IPCC dregur skýrt fram mik­il­vægi þess að sam­fé­lög um heim allan grípi til aðgerða til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum, ekki bara til að draga úr losun og fjar­lægja gróð­ur­húsa­loft­teg­undir úr and­rúms­loft­inu, heldur líka til að aðlag­ast óum­flýj­an­legum áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Við þurfum að búa okkur undir breyttan heim,“ segir Anna Hulda Ólafs­dóttir, for­stöðu­maður skrif­stofu lofts­lags­þjón­ustu og aðlög­unar á Veð­ur­stofu Íslands, sem var ein af full­trúum Íslands sem sátu nýaf­staðið sam­þykkt­ar­þing milli­ríkja­nefndar sam­ein­uðu þjóð­anna um skýrsl­una.

Fram kemur í skýrsl­unni að áhrif á nátt­úru­leg og mann­gerð kerfi af völdum hæg­gengra ferla, svo sem súrn­unar sjávar, hækk­unar sjáv­ar­stöðu og minnk­andi úrkomu, hafi verið rakin til lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum.

„Lofts­lags­breyt­ingar hafa valdið umtals­verðu tjóni, og óaft­ur­kræfu tapi á líf­ríki á landi, strand­svæðum, í ferskvatni og hafi (mikil vissa). Sam­setn­ing vist­kerfa, virkni, seigla og aðlög­un­ar­hæfni innan þeirra hefur hrakað (mikil vissa), sem hefur haft í för með sér nei­kvæð félags­hag­fræði­legar afleið­ingar (mikil vissa). Um það bil helm­ingur þeirra teg­unda sem metnar voru á heims­vísu, hafa fært sig nær pól­unum eða, þær teg­undir sem eru á landi, einnig í meiri hæð (mjög mikil vissa). Stað­bund­inn aldauða má í hund­ruð til­fella má rekja til auk­inna öfga í hita­stigi (mikil vissu). Sumt tjón sökum lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum er nú þegar óaft­ur­kræft, svo sem útdauði að minnsta kosti tveggja teg­unda (miðl­ungs vissa). Önnur áhrif eru á barmi þess að vera óaft­ur­kræf, svo sem breyt­ingar á vatnaf­ari vegna hörf­unar jökla, og breyt­ingar á vist­kerfum til fjalla (miðl­ungs vissa) og á norð­ur­skauti vegna þiðn­unar sífrera (mikil vissa).“

Veðuratburðir hafa dregið úr hagvexti til skemmri tíma

Þá kemur enn fremur fram að nei­kvæð hag­fræði­leg áhrif og tjón sem rekja má til lofts­lags­breyt­inga og öfga í veð­ur­fari, hafi verið stað­fest í auknum mæli. Vart hafi orðið við fjár­hags­legt tjón í greinum sem verða fyrir beinum áhrifum frá lofts­lagi, með stað­bundnum áhrifum á land­búnað, skóg­rækt, fisk­veiðar, orku­bú­skap og ferða­þjón­ustu og með minnk­andi fram­leiðni starfa utandyra.

„Sumir aftaka veð­ur­at­burðir hafa dregið úr hag­vexti til skemmri tíma. Mynstur þró­unar og aðrir þættir sem ekki tengj­ast lofts­lagi hafa átt þátt í því að eignir eru í auknum mæli ber­skjald­aðar gagn­vart váat­burðum sem eykur þannig tjón. Upp­skeru­brestur, áhrif á heilsu manna og fæðu­ör­yggi, eyði­legg­ing heim­ila og inn­viða, tjón á eignum og tap­aðar tekjur, hefur haft áhrif á afkomu ein­stak­linga, sem hefur haft nei­kvæð áhrif á félags­jöfnuð og jöfnuð milli kynja.“

Þá segir að tjón­næmi líf­kerfa og fólks gagn­vart lofts­lags­breyt­ingum sé mjög ólíkt innan svæða og milli þeirra, sem drifið sé áfram af félags­hag­fræði­legri þróun, mis­skipt­ingu, jað­ar­setn­ingu, heims­valda­stefnu og stjórn­málum. 3,3 milj­arðar manna lifi við aðstæður sem gera þá mjög við­kvæma gagn­vart lofts­lags­breyt­ingum.

Hátt hlut­fall dýra­teg­unda sé jafn­framt við­kvæmt fyrir lofts­lags­breyt­ingum. Varn­ar­leysi manna og vist­kerfa magni upp hvort annað. Ósjálf­bær þróun auki varn­ar­leysi vist­kerfa og manna gagn­vart lofts­lags­vánni.

Hraði loftslagsbreytinga ræðast mjög af þeim aðlögunaraðgerðum sem gripið verður til í nálægri framtíð

Við það að hlýnun jarðar nær eða fer fram úr 1,5°C í nálægri fram­tíð (2021-2040), mun óum­flýj­an­leg fjölgun lofts­lagstengra nátt­úr­vá­r­at­burða hafa í för með sér margs­konar áhættu fyrir vist­kerfi og mann­fólk. Áhættan mun ráð­ast af þróun tjón­næmis, sem og félags­hag­fræði­legri þróun og þróun aðlög­unar, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Umfang og hraði lofts­lags­breyt­inga og áhættan sem þeim breyt­ingum fylgir, ráð­ist mjög svo af þeim aðlög­un­ar­að­gerðum sem gripið verður til í nálægri fram­tíð (2021 til 2040) og hvað verður gert til að draga úr losun. Það tjón og þau nei­kvæðu áhrif sem spár gera ráð fyrir, auk­ist við hvert stig hlýn­unar.

Aukning á þurrkum, flóðum og hækkun sjávarstöðu muni minnka fæðuöryggi

Í skýrsl­unni segir að lofts­lags­breyt­ingar muni hafa í för með sér aukin áhrif á fram­leiðslu mat­væla og aðgang að þeim, sér­stak­lega á við­kvæmum svæðum, sem grefi undan fæðu­ör­yggi og nær­ingu. Aukning á þurrkum, flóðum og hækkun sjáv­ar­stöðu muni minnka fæðu­ör­yggi. Tíðari þurrkar og flóð og meiri hækkun sjáv­ar­stöðu, muni minnka fæðu­ör­yggi.

„Hlýnun jarðar um 2°C eða meira er spáð fyrir 2050, áhætta varð­andi fæðu­ör­yggi verður orðin alls­ráð­andi, sem leiða mun til vannær­ingar og skorts á snefil­efnum ,einkum í Afríku sunnan Sahara, Suður-Asíu, Mið-Ameríku og smærri eyríkjum (mikil vissa). Hlýnun mun í auknum mæli veikja virkni innan vist­kerfa, svo sem frjóvgun og jarð­efna­sam­setn­ingu, auka ágengni frá skað­völdum og sjúk­dómum, og minka lífmassa sjáv­ar­dýra, sem mun grafa undan fæðu­öflun á landi og í hafi (miðl­ungs vissa). Við hlýnun um 3°C eða meira mun tjón­næmi gagn­vart lofts­lagsvá aukast til muna (mikil vissa) og auka á mis­skipt­ingu milli svæða (mikil vissa),“ segir í skýrsl­unni.

Loftslagsbreytingar munu hafa áhrif á hvata sem valda átökum – svo sem fátækt

Aukning verður í fólks­flutn­ingum með tíð­ari flóðum, hita­belt­is­stormum, þurrkum og í vax­andi mæli vegna, hækk­andi sjáv­ar­stöðu, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum. Hins vegar muni fólks­flutn­ingar og átök, jafn­vel til lengri tíma litið, vera áfram drifin af félags­hag­fræði­legum og stjórn­mála­legum þáttum. Umfang fólks­flutn­inga muni ákvarð­ast af getu til aðlög­unar, fólks­fjölgun og stefnu­mörkun er varðar þróun og fólks­flutn­inga. Á sama hátt, munu lofts­lags­breyt­ingar hafa áhrif á hvata sem valda átökum, svo sem fátækt; hvort til átaka kemur muni ráð­ast af hvernig stjórn­mál og efna­hags­mál þró­ast og sögu átaka.

Neikvæð áhrif lofts­lags­vár og til­heyr­andi áhætta hafi nú keðju­verk­andi áhrif á milli geira og á milli svæða og munu valda vendi­punktum í við­kvæmum vist­kerfum og keðju­verk­andi nei­kvæðum áhrifum og tjóni við strendur og í þétt­býli sem og til fjalla. Á mörgum svæðum hafi gróð­ur­eldar haft áhrif á vist­kerfi, dýra­teg­undir, fólk og eignir þeirra, efna­hags­starf­semi og heilsu. Í borgum og byggð­ar­lögum hafi lofts­lags­á­hrif valdið tjóni og nei­kvæðum áhrifum á mik­il­vægum innviðum svo sem vatns­veitum og fæðu­kerfum og einnig haft áhrif á efna­hags­starf­semi, að því marki að áhrifa gæti utan þess svæðis sem varð fyrir lofts­lags­vánni.

Á Amazon-svæð­inu munu keðju­verk­andi áhrif, bæði frá lofts­lagstengdum áhrifa­þáttum og ann­ars konar áhrifa­þáttum, valda óaft­ur­kræfum og alvar­legum skaða á virkni vist­kerfa og líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika þeirra við 2°C hlýnun jarðar eða meira. Óum­flýj­an­leg hækkun sjáv­ar­stöðu muni valda keðju­verk­andi og sam­verk­andi áhrifum með eyði­legg­ingu á vist­kerfi við strendur, valda seltu í grunn­vatni, flóðum og tjóni á innviðum við strendur, með keðju­verk­andi áhrifum á lífs­við­ur­væri, heilsu, vel­ferð, fæðu- og vatns­fram­boð sem og gild­is­mat og við­horf innan sam­fé­laga í nálægri og fjar­lægri fram­tíð.

Ef frekari seinkun verður á samhentum aðgerðum glatast tækifærið til að skapa lífvænlegri og sjálfbæra framtíð

Anna Hulda bendir á að nið­ur­staða skýrsl­unnar sé meðal ann­ars sú að talið sé enn mik­il­væg­ara en áður að aðlögun að áhrifum lofts­lags­breyt­inga sé mik­il­vægur þáttur í heild­ar­stefnu sam­fé­laga um heim allan.

„Þegar því er náð, erum við farin að nálg­ast það sem kall­ast „lofts­lags­þolin þróun“ og með „lofts­lags­þoli“ er átt við sam­safn­aðan við­náms­þrótt sam­fé­lags eða hluta þess gagn­vart áhrifum lofts­lags­breyt­inga,“ segir hún. „Eins og segir í skýrsl­unni þá eru lofts­lags­breyt­ingar ógn við vel­ferð fólks, dýra og heilsu jarðar. Ef frek­ari seinkun verður á sam­hentum aðgerðum á heims­vísu glat­ast tæki­færið til að skapa líf­væn­legri og sjálf­bæra fram­tíð.“

Í skýrsl­unni segir að stutt sé við lofts­lags­þolna þróun þegar stjórn­völd, almenn­ingur og einka­geir­inn taka ákvarð­anir sem felur í sér for­gangs­röðun gagn­vart jafn­ræði og rétt­læti og því að draga úr áhættu og þegar ákvörð­un­ar­ferli, fjár­mögnun og aðgerðir eru sam­þættar milli allra stiga stjórn­sýslu, á milli atvinnu­geira til langs og skamms tíma. Lofts­lags­þolin þróun byggi á stuðn­ingi stjórn­valda á öllum stigum með því að vinna með almenn­ingi, félaga­sam­tökum, mennta­geir­anum, stofn­unum, fjöl­miðlum, fjár­festum og fyr­ir­tækjum; og með því að þróa sam­vinnu á milli stofn­ana og jað­ar­settra hópa, svo sem kvenna, ungs fólks, frum­byggja, smárra sam­fé­laga og þjóð­ern­is­minni­hluta. Slík sam­vinna nái mestum árangri þegar hún er studd af öfl­ugri stjórn­málafor­ystu, stofn­unum, aðgengi að fjár­magni, mann­afli, bún­aði, upp­lýs­ingum og hag­nýtum lausnum.

Mikilvægt að standa vörð um vistkerfi og líffræðilegan fjölbreytileika

Í skýrsl­unni kemur enn fremur fram að það sé grund­vall­ar­at­riði lofts­lags­þol­innar þró­unar að standa vörð um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika og vist­kerfi. Nýlegar rann­sóknir sýni að til að við­halda lofts­lags­þoli vist­kerfa og líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika, þurfi að vernda um það bil 30 til 50 pró­sent af land­svæði, ferskvatni og hafi á jörð­inni með öfl­ugum hætti, þar á meðal vist­kerfa sem hafa orðið fyrir litlum áhrif af manna­völdum.

Lofts­lags­breyt­ingar hafi nú þegar raskað mann­gerðum og nátt­úru­legum kerfum og sú þróun sem á sér stað nú, ýti ekki undir lofts­lags­þolna þróun. Þær ákvarð­anir sem verða teknar og fram­kvæmdar næsta ára­tug­inn, munu ákvarða árangur lofts­lags­þol­innar þró­unar til lengri tíma litið. Mik­il­vægt sé að átta sig á því að horfur um árangur í lofts­lag­þol­inni þróun versna ef ekki verður dregið hratt úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sér­stak­lega ef horft er til þess mögu­leika að hlýnun jarðar fari fram úr 1,5°C í nálægri fram­tíð.

Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru flestar á smáum skala

Til að aðlag­ast áhrifum lofts­lags­breyt­inga sem þegar eru merkj­an­leg, þarf að draga úr áhættu og tjón­næmi, mest­megnis með breyt­ingum á núver­andi kerfum, segir í skýrsl­unni. Margir mögu­leikar til aðlög­unar séu til staðar og not­aðir til að taka á þeim áhrifum lofts­lag­breyt­inga sem spáð er, en fram­kvæmd aðlög­un­ar­að­gera sé háð getu og skil­virkni stjórn­valda og ferla við ákvarð­ana­töku. Þetta, ásamt aðstæðum sem skapa tæki­færi, geti einnig ýtt undir lofts­lags­þolna þróun.

Fram kemur að merkj­an­legar fram­farir og aukn­ing sé í skipu­lagi og fram­kvæmd aðlög­unar á öllum svæðum. Aukin vit­und almenn­ings og stjórn­mála­manna um áhrif lofts­lags­breyt­inga og áhættu sem þeim fylgja, hafi orðið til þess að að minnsta kosti 170 lönd hafa sett aðlögun inn í lofts­lags­stefnu sína og margar borgir horfa nú til lofts­lags­breyt­inga þegar kemur að skipu­lags­málum.

Anna Hulda segir að þrátt fyrir fram­farir í aðlögun sé hún ekki komin á það stig sem þarf til að draga frekar úr áhættu vegna áhrifa lofts­lags­breyt­inga.

„Í auknum mæli er verið að nota ýmis tól við ákvörð­un­ar­töku, s.s. líkön og sviðs­myndir, en slík tól eru hluti af því sem kall­ast lofts­lags­þjón­usta. Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru þó flestar á smáum skala og afmörkuð við það að draga úr aðsteðj­andi hættu og við­brögð við núver­andi hættu. Samkvæmt skýrsl­unni eru stærstu glopp­urnar í þeim sam­fé­lögum þar sem tekjur fólks eru lægstar, en eru jafn­framt oft þau sam­fé­lög sem eru hvað útsett­ust fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Ef ekki verður bætt í aðgerðir þá mun þessum gloppum því miður fjölga og þær stækka“ segir hún.

Áhrifaríkustu kostirnir byggja á samþættum aðgerðum milli geira sem taka á félagslegum ójöfnuði

Fram kemur í til­kynn­ingu skrif­stofu lofts­lags­þjón­ustu og aðlög­unar um skýrsl­una að lofts­lags­að­gerðir skipt­ist fyrst og fremst í tvennt. „Annars vegar mót­væg­is­að­gerðir sem snúa að því að draga úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eða fjar­lægja þær úr and­rúms­loft­inu og hins vegar aðlög­un­ar­að­gerðir. Aðlög­un­arða­gerðir snúa þá fyrst og fremst að því að búa okkur undir breyttan heim með því að auka lofts­lags­þol með þeim hætti að draga úr tjón­næmi vegna loft­lags­breyt­inga sem vænta má í fram­tíð­inni. En vissu­lega er tjón­næmi í fram­tíð­inni einnig háð efna­hags­þróun, en mik­il­vægt er að taka til­lit til áhrifa lofts­lags­breyt­inga við skipu­lag og hag­stjórn og auka þannig mögu­leik­ann á aðlög­un­ar­getu og lofts­lags­þoli.“

Anna Hulda segir að hag­kvæm­ustu og áhrifa­rík­ustu kost­irnir hvað varðar aðlögun byggi á sam­þættum aðgerðum milli geira sem taka á félags­legum ójöfn­uði og taka einnig ólíkt á mis­mun­andi áhættum.

„Aðlögun er oft­ast nær við­brögð við fleiri þáttum en lofts­lags­breyt­ingum einum og sér og geta tengst stjórnun á t.d. bættum almanna­vörnum. Aðlög­un­ar­að­gerðir hafa það mark­mið að draga úr – eða seinka – áhrifum lofts­lags­breyt­inga upp að því marki sem mögu­legt er. En ef horft er til þess sem fram kemur í skýrslu IPCC sem var gefin út í dag, er lík­legt er að áhrif lofts­lags­breyt­inga muni að lokum verða meiri en aðlög­un­ar­geta sam­fé­lags­legra og nátt­úru­legra kerfa ræður við,“ segir hún.

Mikilvæg skref hafa verið tekin á Íslandi hvað varðar aðlögun

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að staða Íslands í aðlög­un­ar­málum hafi notið fram­gangs á und­an­förnum árum og miss­erum. Þar beri hæst að nefna hvít­bók um aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum sem unnin var af starfs­hópi árið 2021 og sam­svar­andi stefnu sem byggð var á hvít­bók­inni og svo stofnun skrif­stofu lofts­lags­þjón­ustu og aðlög­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands árið 2021.

„Skrif­stofu lofts­lags­þjón­ustu og aðlög­unar verður vett­vangur sem mun þjón­usta brýn verk­efni á sviði aðlög­unar, leggja til sviðs­myndir að lofts­lags­breyt­ingum og áhrifum þeirra, auk vökt­unar á afleið­ingum,“ segir Anna Hulda sem gegnt hefur starfi for­stöðu­manns frá stofnun skrif­stof­unnar haustið 2021.

„Skrif­stofan er vett­vangur fyrir vís­inda­sam­fé­lagið, fag­stofn­anir og hag­að­ila hvað varðar aðlögun auk þess mun skrif­stofan sinna sam­starfi á þessu sviði við alþjóða­stofn­anir og sinna miðlun um áhrif lofts­lags­breyt­inga til hags­muna­að­ila og almenn­ings. Í þessu sam­hengi er hægt að tala um að skrif­stofa lofts­lags­þjón­ustu og aðlög­unar sé „brú milli vís­inda og sam­fé­lags“. Hjá syst­ur­stofn­unum okkar erlendis eru þetta svokölluð Climate Service Centres – sem er þá meðal ann­ars „lofts­lags­þjón­usta“, sem styður aðlögun þess­ara ríkja. Mark­miðið með slíkum skrif­stofum er ekki síst að ná fram meiri virð­is­auka í þeirri þekk­ingu sem liggur í fag­stofn­unum og miðla henni af meiri krafti en áður,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár