Aukið fjör á byggingarmarkaði

Ýmsar vís­bend­ingar eru uppi um að hús­næð­is­upp­bygg­ing hafi auk­ist á síð­ustu mán­uðum eftir að hafa verið í lægra lagi árin 2019 og 2020. Hins vegar virð­ist virknin ekki enn hafa náð sömu hæðum og árið 2018.

Húsnæðisframkvæmdir virðast hafa verið meiri það sem af er ári miðað við í fyrra, en hafa þó sennilega ekki náð fyrri hæðum.
Hús­næð­is­fram­kvæmdir virð­ast hafa verið meiri það sem af er ári miðað við í fyrra, en hafa þó senni­lega ekki náð fyrri hæðum. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Inn­flutn­ingur bygg­ing­ar­hrá­efnis var meiri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en hann hefur verið á öðrum árs­helm­ingum síð­ustu tveggja ára. Sömu­leiðis hefur skoð­unum á bygg­ing­ar­krönum fjölgað, sem bendir til þess að virknin á bygg­ing­ar­mark­aðnum hafi auk­ist í ár.

Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu um vöru­við­skipti við útlönd hafa tæp 50 þús­und tonn af ýmsum bygg­ing­ar­hrá­efnum verið flutt inn til lands­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þetta er 15 pró­senta aukn­ing frá því á sama tíma­bili í fyrra, þar sem inn­flutn­ingur þess­ara hrá­efna nam 43 þús­und tonnum.

Hráefnin sem um ræðir eru timbur, kross­viður, spónar, bygg­ing­arplötur, rúðu­gler, steypu­styrkt­ar­járn og þak­járn. Líkt og sést á mynd hér að neðan náði inn­flutn­ingur þess­ara hrá­efna hámarki á fyrri hluta árs­ins 2018 en minnk­aði svo stöðugt að síð­ari hluta árs­ins 2019. Síðan þá hefur inn­flutn­ing­ur­inn auk­ist með hverjum árs­helm­ingnum, þótt hann hafi ekki enn náð fyrri hæðum.

Inn­flutn­ing­ur­inn er í ágætu í sam­ræmi við svo­kall­aða krana­vísi­tölu vinnu­eft­ir­lits­ins, sem sýnir fjölda skoð­ana á bygg­ing­ar­krönum hverju sinni. Samkvæmt vinnu­eft­ir­lit­inu gefur vísi­talan góða mynd á þann fjölda bygg­ing­ar­krana sem er í notkun hverju sinni, en þeir voru fleiri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en þeir voru í fyrra. Þó eru þeir ekki jafn­margir og þeir voru á árinu 2018.

Samdráttur í framboði en áhugi á byggingu hagkvæmra íbúða

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun greindi frá því í síð­ustu mán­að­ar­skýrslu sinni að fram­boð íbúða til sölu hafi dreg­ist hratt saman á síð­ustu tólf mán­uðum alls staðar á land­inu nema á Norð­ur­landi vestra. Sam­drátt­ur­inn hefur verið mestur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Norð­ur­landi eystra og á Suð­ur­nesjum.

Stofnun greindi hins vegar frá því að mik­ill áhugi væri á meðal bygg­ing­ar­að­ila um að byggja íbúðir sem sam­ræmd­ust reglum um hlut­deild­ar­lán. Því sagði hún að ljóst væri að tals­vert af hag­kvæmum íbúðum myndi líta dags­ins ljós á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár