Sjálfstæðismenn á höfuðborgarsvæðinu komnir í prófkjörsham

Tekist hefur verið á um grund­valla­r­á­herslur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á óvenju­lega opin­berum vett­vangi að und­an­förnu. Full­trúar ólíkra sjón­ar­miða innan flokks­ins kepp­ast nú um að koma þeim að í aðdrag­anda próf­kjöra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ráðherrarnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson eru stundum sagðir standa í stafni fyrir þær ólíku fylkingar sem rúmast innan Sjálfstæðisflokks og bítast þar um völd og áhrif.
Ráð­herr­arnir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Bjarni Bene­dikts­son eru stundum sagðir standa í stafni fyrir þær ólíku fylk­ingar sem rúm­ast innan Sjálf­stæð­is­flokks og bít­ast þar um völd og áhrif. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það fór hreint ekki lítið fyrir fram­boðs­málum Sjálf­stæð­is­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um síð­ustu helgi. Þau tvö sem sækj­ast eftir efsta sæti í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík birt­ust í burð­ar­við­tölum helg­ar­blað­anna tveggja, sem segja má að hafi markað upp­haf próf­kjörs­bar­átt­unnar í borg­inni.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra var til við­tals í Frétta­blað­inu og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra í Morg­un­blað­inu. „Ég vil vinna,“ sagði Áslaug Arna Mogganum á meðan Guð­laugur Þór sagði Frétta­blað­inu meðal ann­ars hvernig það að vera ætt­leiddur í frum­bernsku hefði mótað hann sem mann­eskju.

„Hef ekki áður fengið jafn jákvæð og hlý við­brögð við við­tali sem ég hef farið í. Fyrstu skila­boðin komu rúm­lega 6 í morgun,“ sagði utan­rík­is­ráð­herr­ann í kost­aðri færslu sem hann dreifði á Facebook.

Allir sitjandi þingmenn gefa kost á sér að nýju

Síðast þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík hélt sam­eig­in­legt próf­kjör var árið 2016. Ólöf heitin Nordal var þá efst í vali flokks­manna, Guð­laugur Þór í öðru sæti og Áslaug Arna í því fjórða, í sínu fyrsta próf­kjöri. Brynjar Níelsson var á milli þeirra í þriðja sæt­inu og Sigríður Á. Andersen í því fimmta. Þing­flokks­for­mað­ur­inn Birgir Ármanns­son tók svo sjötta sætið.

Enginn tími gafst til að halda próf­kjör að nýju fyrir kosn­ing­arnar 2017, sem báru brátt að eftir að rík­is­stjórn flokks­ins með Viðreisn og Bjartri fram­tíð féll skyndi­lega. Þá var stillt upp á lista, Guð­laugur Þór og Áslaug Arna stóðu í stafni í Reykja­vík norður og Sigríður og Brynjar í Reykja­vík suður. Auk þess­ara fjög­urra náði Birgir inn á þing fyrir flokk­inn í Reykja­vík norður.

Fram­boðs­frestur fyrir próf­kjörið rennur út í dag og hafa allir þessir sitj­andi þing­menn flokks­ins boðað að þeir gefi kost á sér að nýju. Sigríður og Brynjar sækj­ast eftir öðru sæti í próf­kjör­inu og Birgir gefur kost á sér í 2.-3. sæti.

Sigríður stærir sig af skipun Landsréttar

Sigríður fer yfir fram­lag sitt til stjórn­mál­anna í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar seg­ist hún meðal ann­ars hafa „haldið uppi mál­efna­legri gagn­rýni frá hægri á ýmis mál rík­is­stjórn­ar­innar“ og „liðkað fyrir sam­starfi þeirra ólíku flokka sem rík­is­stjórn­ina mynda.“

Einnig stærir hún sig af því að hafa skipað dóm­ara við Lands­rétt: „Ég skip­aði 15 dóm­ara við nýjan dóm­stól í ríkri sam­vinnu við Alþingi og að und­an­geng­inni stað­fest­ingu Alþingis. Hvorki fyrr né síðar hefur jafn­mik­il­væg stofnun verið skipuð konum og körlum til jafns frá upp­hafi.“

Eins og Kjarninn sagði frá í febr­úar er beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna þess að Sigríður sinnti ekki rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga þegar hún lagði fyrir Alþingi lista yfir dóm­ara sem ætti að skipa við Lands­rétt orð­inn að minnsta kosti tæp 141 milljón.

Af steintröllum

„Hug­myndir mínar og grund­vall­araf­staða til þess hvernig þjóð­fé­lagið á að þró­ast fara mjög vel saman við stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði Brynjar í sinni fram­boðstil­kynn­ingu í síð­ustu viku.

[adspot]

Ekki er víst að allir með­fram­bjóð­endur Brynjars séu á því að hug­myndir hans um þróun þjóð­fé­lags­ins séu þær sem eigi að marka leið­ina fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn til fram­tíðar, sér í lagi Friðjón Frið­jóns­son almanna­teng­ill, sem gefur kost á sér í fjórða sætið í próf­kjör­inu.

Hann rit­aði grein í Morg­un­blaðið í upp­hafi árs þar sem hann sagði flokk­inn hafa á sér yfir­bragð þess sem vilji ekki að íslenskt sam­fé­lag breyt­ist. Skipti flokk­ur­inn ekki um kúrs myndi hann „daga uppi og verða að steini“. Þóttu greina­skrifin og svar­grein Brynjars við þeim varpa skýru ljósi á djúp­stæðan hug­mynda­fræði­legan mis­mun­andi afla í flokknum, en Friðjón er náinn for­ystu flokks­ins, situr í mið­stjórn og var m.a. póli­tískur aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar.

„Hefði ekki komið mér á óvart að þessi grein hefði verið skrifuð í þing­flokks­her­bergi Við­reisnar. Friðjón notar alla sömu fra­sana sem þaðan koma án þess að segja nokkuð um hverju eigi að breyta og hvernig eða af hverju. En eitt er víst, að skrif hans end­ur­spegla djúp­stæða óánægju með for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ sagði Brynjar í svar­grein í Mogganum sem bar fyr­ir­sögn­ina „Stein­tröllin“.

Frétta­blaðið sagði frá fram­boði Friðjóns í morgun, en hann seg­ist vera að bjóða sig fram ekki síst til þess að vinna að bættu rekstr­ar­um­hverfi lít­illa fyr­ir­tækja, en sjálfur rekur hann ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið KOM.

Fleiri koma kölluð

Dilja Mist Ein­ars­dóttir, lög­maður og aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, boð­aði fram­boð sitt á fyrsta degi mán­að­ar­ins og sæk­ist eftir þriðja sæti í próf­kjör­inu, sem myndi þýða 2. sætið í öðru hvoru kjör­dæmanna í Reykja­vík, ef það félli í hennar skaut.

Nokkuð hefur borið á fram­boði hennar, en það var aug­lýst á heilli opnu í bæði Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur látið hrekja sig í vörn í mörgum grund­vall­ar­málum. Því þarf að linna og tals­menn flokks­ins þurfa að vera reiðu­búnir að taka þennan slag,“ segir Diljá Mist meðal ann­ars um erindi sitt á fram­boðsvef sínum.

Hildur Sverr­is­dóttir vara­þing­maður og aðstoð­ar­maður Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur ráð­herra býður sig einnig fram í 3.-4. sæti í próf­kjör­inu, rétt eins og Kjartan Magn­ús­son fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi flokks­ins til hart­nær tveggja ára­tuga.

Kjartan sótt­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í Reykja­vík fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 en laut í lægra haldi fyrir Eyþóri Arnalds, sem vann yfir­burða­sigur í því kjöri. Honum var síðan ekki boðið sæti á lista af upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins í borg­inni.

Dómaraframboð í Kraganum

Sjálf­stæð­is­menn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi hafa einnig boðað að fram­boð verði haldið hjá þeim í júní­mán­uði og hafa nokkur þegar til­kynnt um fram­boð í þessu kjör­dæmi for­manns­ins Bjarna Bene­dikts­sonar.

Framboð hér­aðs­dóm­ar­ans Arnars Þór Jóns­sonar hefur vakið athygli enda alls ekki á hverjum degi sem dóm­arar boða að þeir ætli að stökkva yfir í fram­boð fyrir stjórn­mála­flokka. Sjálfur hefur Arnar Þór sagt við fjöl­miðla á að hann sjái fyrir sér að fara ein­fald­lega í leyfi frá dóm­störfum á meðan próf­kjörs­bar­átt­unni stendur og snúa aftur til dóm­starfa ef nið­ur­staðan í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Kraganum, verður honum ekki í hag.

Arnar Þór sagði sig nýverið úr Dóm­ara­fé­lag­inu vegna óánægju með siða­reglur þess, þar sem meðal ann­ars er mælt gegn þátt­töku dóm­ara í stjórn­mála­starfi, en Arnar Þór hefur skrifað fjölda blaða­greina á und­an­förnum árum og m.a. gagn­rýnt hvernig staðið er að hags­muna­gæslu Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu.

Sumir þótt­ust vissir um að dóm­ar­inn ætl­aði sér í fram­boð þegar Arnar Þór var sem ákafastur í greina­skrifum um þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins fyrr á kjör­tíma­bil­inu. „Orð hans um valdagíruga menn, jafn­vel í tein­óttum jakka­fötum, alríki og ein­ræð­is­ríki fá mann til að gruna að þar fari maður á leið í beina stjórn­mála­þátt­töku en ekki maður sem vill, á grunni sér­fræði­þekk­ingar sinnar og stöðu sem hér­aðs­dóm­ari, láta taka mark á sér,“ skrif­aði Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar um Arnar Þór sum­arið 2019.

Í aðsendri grein á Vísi í gær sagði hér­aðs­dóm­ar­inn að hann gefi kost á sér í þeim til­gangi að hjálpa til ef fólk óski þess að fá sjón­ar­mið sín inn á Alþingi. „Þetta snýr ekki að öðru. Allir eiga að hafa slíkan rétt, hvort sem þeir eru dóm­arar, sak­sókn­arar, smiðir, píparar eða versl­un­ar­menn. Svo er bara kosið. Út á það gengur lýð­ræðið,“ segir Arnar Þór.

Áhugaverð barátta framundan

Síðast þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hélt próf­kjör í Kraganum, árið 2016, röð­uð­ust fjórir karlar í fjögur efstu sætin. Bryndís Har­alds­dóttir, sem hafn­aði í fimmta sæti í próf­kjör­inu var færð upp í annað sæti á list­anum til þess að laga þessa kynja­skekkju.

Hún gefur aftur kost á sér í 2. sætið og það gera karl­arnir sem voru færðir niður list­ann árið 2016 líka. Þing­menn­irnir Jón Gunn­ars­son og Óli Björn Kárason vilja annað sætið á list­anum. Vil­hjálmur Bjarna­son, sem náði fjórða sæti í próf­kjör­inu 2016 en var færður niður í það fimmta, ætlar sér einnig að reyna við þing­sæti að nýju.

Fleiri hafa boðað fram­boð. Kristín Thorodd­sen bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði og Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir bæj­ar­full­trúi í Kópavogi hafa gefa báðar kost á sér í þriðja sæti á lista flokks­ins og Bergur Þorri Benja­míns­son for­maður Sjálfs­bjargar gefur kost á sér í fjórða sæti.

Stefnt er að því að próf­kjörið í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fari fram um miðjan júní, þegar flokks­menn í Reykja­vík verða búnir að velja sér sína full­trúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár