Þórólfur mælir með samkomubanni út mánuðinn: „Veiran mun ekki virða páska“

„Núna reynir virki­lega á úthaldið og sam­stöð­una,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi yfir­valda í dag. Hann mun gera til­lögu til heil­brigð­is­ráð­herra um fram­leng­ingu sam­komu­banns út apríl.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun mæla með því við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að samkomubann verði framlengt út apríl.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir mun mæla með því við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að sam­komu­bann verði fram­lengt út apríl.

„Það sem veldur mestum áhyggjum eru þessi veik­indi og þetta álag á spít­al­ana og gjör­gæsl­urnar,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á dag­legum upp­lýs­inga­fundi yfir­valda í Skóg­ar­hlíð í dag. Hann ætlar að mæla með því við heil­brigð­is­ráð­herra að núgild­andi sam­komu­bann verði fram­lengt út apr­íl­mánuð.

[links]

Þórólfur sagði að við værum að fylgja verstu spálík­önum hvað alvar­leg veik­indi fólks varðar, en rúm­lega fjöru­tíu manns liggja nú á spít­ölum vegna COVID-19 sýk­ingar, flestir í Reykja­vík en einnig nokkrir á Akureyri.

Sótt­varna­læknir segir að við virð­umst vera að ná að sveigja veld­is­vöxt sýk­inga í sam­fé­lag­inu niður, en þyrftum að halda áfram á sömu braut hvað sótt­varna­ráð­staf­anir varðar, ekki síst í ljósi þess álags sem þegar er orðið á sjúkra­hús lands­ins. Ellefu eru nú á gjör­gæslu­deild í Reykja­vík og einn til við­bótar á Akureyri.

[adspot]

Óljóst hve langan tíma það mun taka að slaka á aðgerðum

„Núna reynir virki­lega á úthaldið og sam­stöð­una,“ sagði Þórólfur og bætti við að hann ætti ekki von á því að slaka mætti á sam­komu­bann­inu og öðrum ráð­stöf­unum fyrr en eftir apr­íl­mánuð og þá ætti eftir að koma í ljós í hversu mörgum skrefum það yrði gert eða hversu langan tíma það gæti mögu­lega tekið.

„Veiran mun ekki virða frí­daga, hún mun ekki virða páska,“ sagði Þórólfur og hvatti fólk til þess fara eftir þeim leið­bein­ingum sem eru í gildi.

Hann lagði sér­staka áherslu á að þeir sem væru eitt­hvað veikir, með hósta, kvef og hita, héldu sig algjör­lega til hlés og færu ekki út á meðal fólks og væru alls ekki í snert­ingu við við­kvæma hópa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár