Heiða Guðný gefur kost á sér í oddvitasæti Vinstri grænna sunnanlands

Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir bóndi og sveit­ar­stjórn­ar­kona hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi til kom­andi kosn­inga.

Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir Mynd: Kolbrún Ýr

Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir bóndi, sveit­ar­stjórn­ar­kona og vara­þing­maður hefur bæst í hóp þeirra sem gefa kost á sér til þess að leiða lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi til næstu alþing­is­kosn­inga.

Hún sendi frá sér fram­boðstil­kynn­ingu í dag og segir þar að hennar helstu áherslu­mál í stjórn­málum og líf­inu séu umhverf­is­mál og virð­ing fyrir nátt­úr­unni, jafn­rétti og mann­rétt­indi hvers konar og íslenskur land­bún­aður.

„Að þessum málum og fleirum langar mig að vinna áfram innan raða Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs,“ segir í til­kynn­ingu frá Heiðu, sem er sauð­fjár­bóndi að Ljót­ar­stöðum í Skaft­ár­hreppi.

Auk Heiðu hafa Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður, Róbert Marshall upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og Hólm­fríður Árna­dóttir skóla­stjóri í Sand­gerði boðað að þau gefi kost á sér til þess að leiða Vinstri græn í Suð­ur­kjör­dæmi.

Ari Trausti Guð­munds­son er eini þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu, en hann ætlar ekki að gefa kost á sér til þing­starfa að nýju.

Enn gæti bæst í þann hóp sem hefur gefið kost á sér til að leiða lista VG í kjör­dæm­inu, en fram­boðs­frest­ur­inn til efstu fimm sæta í for­vali flokks­ins rennur út 8. mars. Kjör­fundur verður raf­rænn dag­ana 10.-12. apríl.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár