Enn reynt að banna verðtryggð lán án þess að banna þau að fullu

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem á að banna veit­ingu 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána til flestra. Þeir sem eru und­an­skildir eru hóp­arnir sem lík­leg­astir eru til að taka lánin. Íslend­ingar hafa flúið verð­trygg­ingu á met­hraða.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingu á lögum um vexti og verð­trygg­ingu sem fela í sér að tak­mark­anir verða settar á það hverjir mega taka svokölluð Íslands­lán, sem eru verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til 40 ára.

Verði frum­varpið að lögum mun verða bannað að taka verð­tryggt hús­næð­is­lán til lengri tíma en 25 ára. Nokkrar und­an­tekn­ingar eru þó á því banni. Þannig má fólk undir 35 ára aldri áfram taka lán til allt að 35 ára og lán­taki á aldr­inum 35-40 ára má taka lánin til allt að 30 ára. þeir ein­stak­lingar sem eru með árs­tekjur undir 4,2 millj­ónum króna (350 þús­und krónur á mán­uði) eða hjón/sam­býl­is­fólk sem eru með undir 7,2 millj­ónir króna á ári (600 þús­und krónur á mán­uði) mega áfram taka 40 ára lán. Enn fremur munu tak­mark­anir á veit­ingu nýrra verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána ekki gilda í tengslum við yfir­töku á eldri lánum, heldur ein­ungis á veit­ingu nýrra lána. Þá eru ekki settar skorður við veit­ingu verð­tryggðra hús­næð­is­lána með jöfnum afborg­unum.

Því stendur til að und­an­skilja þá hópa sem lík­leg­astir eru til að taka verð­tryggð lán til lengri tíma, ungt og tekju­lágt fólk sem sæk­ist eftir lágum mán­að­ar­legum afborg­unum, frá því að 25 ára bannið gildi um þau.

Frum­varpið felur líka í sér að bannað verður að lána verð­tryggt til styttri tíma en tíu ára.

Verið að mæta kröfum

Tilefni frum­varps­ins er ekki aðsteðj­andi vandi þeirra sem valið hafa þennan lána­kost eða verð­bólgu­skot sem hækkað hefur höf­uð­stól lán­anna skyndi­lega. Það er í fyrsta lagi að krafa um bann á veit­ingu Íslands­lána rataði inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar að kröfu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í honum sagði að rík­is­stjórnin myndi taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum en sam­hliða þeim verði ráð­ist í mót­væg­is­að­gerðir til að standa vörð um mögu­leika ungs fólks og tekju­lágra til að eign­ast hús­næði.

[adspot]Í öðru lagi var gerð krafa um það á síð­ustu metrum við­ræðna um gerð Lífs­kjara­samn­ings­ins svo­kall­aða í byrjun apríl 2019 að ríkið þyrfti að beita sér fyrir banni við verð­trygg­ingu. Sú krafa kom meðal ann­ars fram frá Vil­hjálmi Birg­is­syni, sem þá var einn vara­for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands og lék lyk­il­hlut­verk í kjara­samn­ings­gerð­inni í sam­floti við tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Eflingu.

Í lífs­kjara­samn­ingnum skuld­bundu stjórn­völd sig á end­anum til að banna 40 ára verð­tryggð lán og að grund­valla ætti verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Með fylgdi vil­yrði um að það yrði skoðað hvort að verð­tryggð hús­næð­is­lán yrðu alfarið bönnuð fyrir lok árs 2020.

Mikill samdráttur í töku verðtryggðra lána

Sögulega hafa íslensk heim­ili verið mjög gjörn á að taka verð­tryggð hús­næð­is­lán. Það hefur lit­ast af því að fram­boð á ann­ars konar lánum hefur verið lítið og lána­kjör þeirra léleg. Á því hefur orðið umtals­verð breyt­ing á síð­ustu miss­erum.

Með end­ur­komu líf­eyr­is­sjóða inn á hús­næð­is­lána­mark­að­inn af fullu afli haustið 2015 lækk­uðu vextir, jafnt verð­tryggðir sem óverð­tryggðir hratt. Eftir að vaxta­lækk­un­ar­ferli Seðla­banka Íslands hófst svo í maí 2019 hafa stýri­vextir lækkað úr 4,5 pró­sent í 0,75 pró­sent. Fyrir vikið er nú hægt að taka óverð­tryggt hús­næð­is­lán á 3,3 pró­sent vöxtum.

Vegna þessa hafa heim­ili lands­ins yfir­gefið verð­trygg­ing­una í for­dæma­lausum mæli.

Íslensku við­skipta­bank­arnir lán­uðu heim­ilum lands­ins til að mynda 273 millj­arða króna umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur gegn veði í fast­eign á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili námu óverð­tryggð hús­næð­is­lán þeirra 328 millj­örðum króna. Það þýðir að upp­greiðslur og umfram­greiðslur á verð­tryggðum lánum bank­anna voru 54 millj­arðar króna umfram veit­ingu nýrra lána.

Hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, hinum stóra virka lán­veit­and­anum, var líka gríð­ar­legur sam­dráttur í veit­ingu nýrra verð­tryggðra útlána. Upp­greiðslur og umfram­greiðslur verð­tryggðra lána voru sam­tals 18,2 millj­örðum krónum meiri á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs en umfang nýrra lána. Til að setja þann við­snún­ing í sam­hengi þá lán­uðu sjóð­irnir nettó út 69 millj­arða króna í ný verð­tryggð hús­næð­is­lán árið 2018 og 60,5 millj­arða króna árið 2019.

„Verðtryggingin mun deyja út“

Í fyrra­sumar fór Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri í við­tal við Frétta­blaðið. Þar sagði hann að verð­trygg­ingin væri að deyja út.

Orð­rétt sagði hann: „Verð­trygg­ingin var upp­haf­lega sett á vegna þess að við réðum ekki við verð­bólg­una. Núna eru tím­arnir breytt­ir. Í fyrsta sinn er það raun­veru­legur val­kostur fyrir heim­ilin að skipta yfir í nafn­vexti og þannig afnema verð­trygg­ing­una að eigin frum­kvæði af sínum lán­um. Þetta eru mikil tíma­mót og fela í sér að verð­trygg­ingin mun deyja út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár