Levakovic, ein umdeildasta fjölskylda Danmerkur

Nafnið Levakovic þekkja flestir Danir, og ekki að góðu einu. Þessi þekkta fjöl­skylda hefur enn einu sinni kom­ist í frétt­irnar þar í landi.

Meðlimir Levakovic-fjölskyldunnar. Jimmi er lengst til hægri.
Meðlimir Levakovic-fjöl­skyld­unnar. Jimmi er lengst til hægri.

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 19. mars, kvað Hæsti­réttur Dan­merkur upp dóm í máli manns sem heitir Jimmi Levakovic. Ákæru­valdið hafði kraf­ist þess að honum yrði vísað úr landi en Hæsti­réttur hafn­aði þeirri kröfu en stað­festi tveggja ára fang­els­is­dóm.

Málið varð­aði inn­brot á heim­ili 66 ára gam­allar konu sem Jimmi mis­þyrmdi og rændi af henni 900 krónum (16 þús­und íslenskum).

Brott­vísun úr landi hljómar sem ströng refs­ing fyrir inn­brot, lík­ams­árás og rán en hér kemur fleira til. Jimmi Levakovic, sem er þrí­tugur að aldri er vel kunn­ugur dönskum rétt­ar­sölum, hann hefur sam­tals í tutt­ugu og tvö skipti hlotið dóm fyrir ýmis konar afbrot. Einkum þjófn­aði og lík­ams­árásir.

Þessi afbrota­fer­ill var ástæða þess að ákæru­valdið fór fram á að mann­inum yrði vísað úr landi, en Hæsti­réttur hafn­aði sem áður sagði þeirri kröfu. Nið­ur­stöð­una byggði Hæsti­réttur á reglum Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem Danmörk er aðili að og hefur leitt í lög.

Stjórnmálamenn segja lögin gölluð

Margir danskir stjórn­mála­menn hafa í fjöl­miðlum tjáð sig um dóm Hæsta­réttar. Trine Bramsen, tals­maður Sós­í­alde­mókrata í dóms­málum, sagði í við­tali við dag­blaðið BT: „það hlýtur eitt­hvað að vera að þegar erlendur rík­is­borg­ari getur hlotið tutt­ugu og tvo dóma og samt fengið að vera áfram í Danmörku.“ Naser Khader tals­maður Íhalds­flokks­ins sagði að Hæsti­réttur gæfi lands­mönnum langt nef þegar ekki mætti vísa úr landi síbrota­manni sem ekki hefði lagt neitt til sam­fé­lags­ins. Christian Lang­balle þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins gefur ekki mikið fyrir þessar yfir­lýs­ingar og sagði að

Þing­flokkar þess­ara tveggja þing­manna hefðu, snemma á síð­asta ári, greitt atkvæði gegn til­lögu Danska þjóð­ar­flokks­ins um að Danir fjar­lægðu ákvæði um rétt til fjöl­skyldu­lífs úr dönskum lögum. Tillagan var felld á danska þing­inu, Fol­ket­inget.

Fjölskylduákvæði bjargaði Jimmi

Í úrskurði Hæsta­réttar Dan­merkur kom fram að það væri laga­á­kvæðið um rétt til fjöl­skyldu­lífs sem hefðu ráðið því að Jimmi skuli ekki sendur úr landi. Jimmi Levakovic er króat­ískur rík­is­borg­ari, giftur sænskri konu og á með henni þrjú börn sem líka eru sænskir rík­is­borg­arar. Þrátt fyrir að Jimmi hafi króat­ískt rík­is­fang hefur hann ein­ungis einu sinni komið til Króatíu og talar ekki tungu­málið. Það var sak­sókn­ari sem áfrýj­aði til Hæsta­réttar eftir að bæði Hér­aðs­dómur og Lands­réttur höfðu hafnað kröfu um að Jimmi Levakovic yrði vísað úr landi.

Ekki hafa allir úr Levakovic geng­inu (eins og danskir fjöl­miðlar kom­ast að orði) verið jafn heppnir því fjórum körlum úr fjöl­skyld­unni hefur verið vísað úr landi eftir að hafa hlotið marga refsi­dóma. Fjór­menn­ing­arnir, sem allir eru ein­hleypir, hafa þó ekki farið langt. Þeim hefur ein­ungis verið vísað úr landi í Danmörku, en ekki úr öðrum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, þeir hafa sest að í Svíþjóð og geta ferð­ast til Dan­merkur þegar þeim sýn­ist.

Endurtekið efni

Rök Hæsta­réttar í máli Jimmi eru þau sömu og réðu úrslitum í máli frænda hans, Gimi Levakovic þegar mál hans var fyrir rétti í maí 2016. Gimi, sem er tæp­lega fimm­tugur, hefur búið í Danmörku frá barns­aldri, en for­eldrar hans sett­ust þar að árið 1972. Gimi hefur tutt­ugu og sjö sinnum hlotið dóm fyrir ýmis konar afbrot og sam­tals setið í grjót­inu í rúm átta ár.

Fyrir þremur árum féll dómur í Hæsta­rétti Dan­merkur í máli gegn Gimi Levakovic. Dóminn hafði Gimi hlotið fyrir vopna­burð og líf­láts­hót­anir.

Áður en málið kom til kasta Hæsta­réttar hafði Hér­aðs­dómur (Bæj­ar­réttur) í Næstved á Sjálandi dæmt Gimi í tólf mán­aða fang­elsi og að honum skyldi vísað úr landi að afplánun lok­inni. Eystri-Lands­réttur sneri brott­vís­un­ar­dóm­inum við en lengdi fang­els­is­vist­ina í fimmtán mán­uði. Þessi við­snún­ingur vakti hörð við­brögð og sak­sókn­ari fór fram á að Hæsti­réttur tæki málið fyrir. Úrskurð­ar­nefnd, sem fjallar um slíkar beiðnir, sam­þykkti að málið færi fyrir Hæsta­rétt sem stað­festi að Gimi Levakovic fengi áfram að búa í Danmörku. Rök­semdir Hæsta­réttar voru þær að Gimi hefði nær alla ævi búið í Danmörku, þótt hann væri ekki danskur rík­is­borg­ari og að hann ætt tvö ung börn sem hann hefði for­ræði yfir. Sömu rökin og í máli frænd­ans Jimmi. Þekktur laga­pró­fessor sagði í við­tali við Berl­ingske, árið 2016, að sú stað­reynd að Gimi ætti ung börn hefði ber­sýni­lega vegið þungt. Hæsti­réttur hefði valið að fylgja þeirri stefnu sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn í Strass­borg hefði markað. Ef stjórn­mála­menn væru ósáttir við dóma Hæsta­réttar þurfi danska þingið að setja lög um túlkun Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans. Það hafi þingið ekki gert.

Forsætisráðherra boðaði lagabreytingar

Dómurinn yfir Gimi Levakovic í maí árið 2016 vakti mikla athygli. Fjöl­miðlar birtu við­töl við ráð­herra og þing­menn sem allir lýstu von­brigðum með nið­ur­stöð­una. Sumir sögðu Hæsta­rétt túlka lag­ara­mmann of þröngt, aðrir sögðu það fyrir neðan allar hellur að ekki sé nokkur leið að vísa úr landi erlendum rík­is­borg­ara, sem hefur kostað sam­fé­lagið millj­óna­tugi. Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði þegar dóm­ur­inn lá fyrir að stjórnin myndi á haust­dögum leggja fram frum­varp sem tæki til mála af þessu tagi. Þeir haust­dagar eru enn ekki runnir upp eins og dóm­ur­inn í máli Jimmi Levakovic fyrir nokkrum dögum ber með sér.

Í áratugi á framfæri samfélagsins

Þegar hjónin Drusi og Rubinka Levakovic komu til Dan­merkur í upp­hafi átt­unda ára­tugar síð­ustu aldar áttu þau sex börn, þar á meðal son­inn Gimi. Síðar bætt­ust þrjú börn við. Þegar Levakovic hjónin komu til Dan­merkur, ásamt fleira fólki fengu þau, lögum sam­kvæmt, aðeins tíma­bundið leyfi til dvalar í land­inu. Þetta var í stjórn­ar­tíð Jens Otto Krag. Skömmu eftir að fólkið kom til lands­ins tók Anker Jørg­en­sen við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og það var hann sem veitti Levakovic fjöl­skyld­unni ótíma­bundið land­vist­ar­leyfi, þótt slíkt stang­að­ist á við lög.

Fjöl­skyldan telur nú tæp­lega fimm­tíu manns. Enginn úr þessum hópi hefur lokið grunn­skóla né unnið laun­aða vinnu. Fjöl­skyldan hefur alla tíð verið á fram­færi hins opin­bera í Danmörku og hefur sam­tals þegið sem sam­svarar tæpum tveimur millj­örðum íslenskra króna til fram­færslu. Til að drýgja tekj­urnar hefur fjöl­skyldan stundað rán og grip­deildir. Sú iðja hefur leitt af sér marga fang­els­is­dóma og sumir úr fjöl­skyld­unni setið inni árum saman, með hléum.

[links] Saga Levakovic fjöl­skyld­unnar, sem ætíð kallar sig Sígauna, verður ekki rakin hér en áður hefur verið um hana fjallað í Kjarn­anum. Í pistli sem hægt er að nálg­ast með að opna hlekk­inn hér til hliðar má lesa ítar­lega umfjöllun um þessa óvenju­legu fjöl­skyldu í Danmörku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár