Fjölmiðlanefnd sektar og skammar hlaðvarpsstjórnendur – og fær bágt fyrir

Árslöngum elt­inga­leik fjöl­miðla­nefndar við nokkra hlað­varps­þætti lauk fyrir helgi með einni sekt­ar­á­kvörðun og tveimur álitum. Sum hlað­vörp eru nú fjöl­miðlar og skráðir sem slíkir en þær raddir heyr­ast að eft­ir­litið með þessum mark­aði sé fram úr hófi.

Fyrsta sektarákvörðun fjölmiðlanefndar sem varðar hlaðvarpsmiðlun var birt í síðustu viku.
Fyrsta sekt­ar­á­kvörðun fjöl­miðla­nefndar sem varðar hlað­varpsmiðlun var birt í síð­ustu viku. Mynd: Pexels

Fjöl­miðla­nefnd hefur sætt nokk­urri gagn­rýni und­an­farna daga, eftir að stofn­unin birti í lok síð­ustu viku ákvarð­anir þar sem, í fyrsta skipti, refsi­vend­inum var beint að hlað­varps­þáttum. Þrír hlað­varps­þættir hafa núna í um það bil eitt ár verið með mál til með­ferðar hjá nefnd­inni vegna ólög­mætra aug­lýs­inga – og nú liggja nið­ur­stöð­urnar ljósar fyrir.

Fót­bolta­spjall­þátt­ur­inn Dr. Football var sektaður um hálfa milljón króna fyrir að sinna ekki skrán­ing­ar­skyldu sinni sem hlað­varp og fyrir að aug­lýsa áfengi, en hlað­varps­þætt­irnir Steve Dagskrá og Fantasy Gandalf, sem síðar fékk nafnið The Mike Show, sluppu við sekt­ar­á­kvarð­anir af hálfu nefnd­ar­innar, þrátt fyrir að hafa fengið ákúrur fyrir veð­mála- og áfeng­is­aug­lýs­ingar.

Í álitum nefnd­ar­innar má lesa að það hafi verið þar sem þátta­stjórn­endur þeirra sýndu fjöl­miðla­nefnd meiri sam­starfsvilja en Dr. Football, sem er haldið úti af Hjörvari Haf­liða­syni, spark­spek­ingi, og hættu að birta þær aug­lýs­ingar sem fjöl­miðla­nefnd taldi í ósam­ræmi við lög.

Árslangur eltingaleikur

Kjarninn fjall­aði um upp­haf elt­inga­leiks fjöl­miðla­nefndar við þessi hlað­vörp síð­asta haust, en þá höfðu for­svars­menn þeirra allra fengið bréf með óskum um að þeir skráðu hlað­varps­þætt­ina sem fjöl­miðla.[links]

Þetta kom ýmsum spánskt fyrir sjónir, enda hefur fjöl­mörgum sjálf­stæðum hlað­varps­þáttum haldið úti hér á landi um hin ýmsu mál­efni og það var alveg nýtt að fjöl­miðla­nefnd væri að leggja þann skiln­ing fram að þau féllu undir lög um fjöl­miðla.

Hvenær verður hlað­varp fjöl­mið­ill, spurði Kjarninn fjöl­miðla­nefnd síð­asta haust, og fékk þau svör að það „væri ekki þannig að öll hlað­vörp myndu telj­ast fjöl­miðlar í skiln­ingi laga um fjöl­miðla“ en að fjöl­miðla­nefnd skoð­aði hvert til­vik fyrir sig.

„Þegar lögin voru sett var ekki hægt að sjá fyrir þá þróun sem orðið hefur á hlað­varps­mark­aðnum með til­komu nýrrar tækni og miðl­un­ar­leiða. Hlað­vörp voru áður fyrr mun minni í sniðum og meira í lík­ingu við blogg­síð­ur. Á síð­ustu árum hafa hlað­vörp hins vegar notið sífellt meiri vin­sælda og stækkað í takt við það. Mörg þeirra hafa nú fjölda kostenda eða aug­lýs­inga og þús­undir hlust­ana á hvern þátt,“ sagði í skrif­legu svari Ant­ons Emils Ingi­mars­son­ar, lög­fræð­ings fjöl­miðla­nefnd­ar, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fyrr á þessu ári setti fjöl­miðla­nefnd síðan upp sér­staka upp­lýs­inga­síðu á vef sínum, þar sem rakið hvað það sé sem geri sum hlað­vörp að fjöl­miðlum og þar má sömu­leiðis finna leið­bein­ingar um skrán­ingu hlað­varpa hjá fjöl­miðla­nefnd.

Á þessum upp­lýs­inga­vef segir að ef hlað­varp upp­fylli skil­yrði laga um fjöl­miðla og ef af því sé fjár­hags­legur ávinn­ingur, sé það „sterk vís­bend­ing um að skrá beri hlað­varpið sem fjöl­miðil hjá fjöl­miðla­nefnd.“

Fjölmiðlanefnd með sitt eigið hlaðvarp – þar sem rætt var um hlaðvörp

Í hlað­varps­þætti á vegum fjöl­miðla­nefndar, sem birt­ist í sept­em­ber­mán­uði, var fjallað um hlað­vörp. Þar ræddi Skúli B. Geirdal starfs­maður nefnd­ar­innar við Halldóru Þor­steins­dóttur hér­aðs­dóm­ara og sér­fræð­ing í fjöl­miðla­rétti um þetta form miðl­unar. Hún sagði að hlað­vörp gætu talist fjöl­miðlar rétt eins og útvarp, en meta þyrfti hvert dæmi fyrir sig.

„Þegar að við erum að skil­greina fjöl­miðla almennt þá er miðað við að þar sé ein­hver til­tekin rit­stjórn og þetta sem felst í þessum áþreif­an­legu dæmum sem við höfum um fjöl­miðla eins og til dæmis frétta­flutn­ingur, stjórn á efn­inu sem er miðlað og það með reglu­legri tíðni, útbreiðslu og dreif­ingu til manna. Ef við getum heim­fært hlað­varp undir þessi skil­yrði þá er hlað­varp ekk­ert minni fjöl­mið­ill en útvarp,“ sagði Halldóra í þætt­inum.

Halldóra ræddi um að þörf væri á því að „mæta þessum nýju miðlum“ eins og hlað­vörp, en einnig sam­fé­lags­miðla, með því að láta til­teknar reglur gilda um þessa nýju miðla. En um þetta eru skiptar skoð­anir.

Mogginn spyr hvenær OnlyFans-stjörnur þurfi að skrá sig

Fjöl­miðla­nefnd hefur und­an­farna daga fengið nokkuð harða gagn­rýni fyrir ákvarð­anir sínar í tengslum við hlað­vörpin.

Andrés Magn­ús­son, blaða­maður á Morg­un­blað­inu og áður fjöl­miðlarýnir á Við­skipta­blað­inu, sagði nefnd­ina vera „fífl“ í færslu á Twitter þar sem hann lét frétt um sekt­ar­á­kvörð­un­ina á Dr. Football fylgja.

„Ógeð­felld eft­ir­lits­stofnun, sem hvorki fram­fylgir né fer sjálf eftir þeim lögum sem hún á að starfa eftir. Það ætti eng­inn ærlegur fjöl­miðla­maður að virða hana svars,“ skrif­aði Andrés.

Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag er einnig vikið að fjöl­miðla­nefnd og því haldið fram að það virð­ist ætlan nefnd­ar­innar að fá öll hlað­vörð lands­ins til þess að skrá­setja sig sem fjöl­miðla, „með til­heyr­andi ómaki, skrif­finnsku og kostn­aði.“ „Er næst á dag­skrá að hinar hold­legu stjörnur OnlyFans skrái sig hjá Fjöl­miðla­nefnd með nákvæmri lýs­ingu á rit­stjórn­ar­stefnu og efn­is­tökum?“ spurði Mogginn.

Úr öðrum áttum heyr­ast síðan þau við­horf að það hafi verið tíma­bært að fjöl­miðla­nefnd stigi inn í sístækk­andi hlað­varps­mark­að­inn og sinnti eft­ir­liti með áfengis- og veð­mála­aug­lýs­ingum, enda er það eftir allt saman vilji stjórn­valda að slíkar aug­lýs­ingar séu bann­aðar.

Telur að fjölmiðlanefnd mætti vera fjölmennari

Skúli Bragi Geirdal, sem er verk­efna­stjóri miðla­læsis hjá fjöl­miðla­nefnd, mætti í Bítið á Bylgj­unni í morgun til þess að útskýra hvenær hlað­varp yrði að fjöl­miðli.

Þátt­ar­stjórn­endur spurðu Skúla meðal ann­ars að því í við­tal­inu hvort það væri nauð­syn­legt að vera með fjöl­miðla­nefnd sem eft­ir­lits­að­ila á fjöl­miðla­mark­aði, en nauð­syn nefnd­ar­innar er stundum dregin í efa af þeim sem finnst eft­ir­litið ganga úr hófi fram.

Skúli svar­aði því ját­andi og sagði okkur skylt að vera með eft­ir­lit með fjöl­miðlum sökum þátt­töku Íslands í EES. Hann gaf til kynna að hann teldi íslensku fjöl­miðla­nefnd­ina jafn­vel þurfa meiri mann­skap til að rækja hlut­verk sitt, miðað við stærð íslenska mark­að­ar­ins.

„Við erum fimm manns hjá fjöl­miðla­nefnd, svipað og hjá Gíbraltar, við mættum gefa meira í,“ sagði Skúli og rakti að hlut­verk nefnd­ar­innar væri ekki ein­ungis að hafa eft­ir­lit með aug­lýs­ingum í fjöl­miðlum, en nefnd­inni er sam­kvæmt fjöl­miðla­lögum ætlað að efla fjöl­miðla­læsi, fjöl­breytni og fjöl­ræði í fjöl­miðlum, standa vörð um tján­ing­ar­frelsi og rétt almenn­ings til upp­lýs­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár