Ríkisendurskoðun vill skýrara orðalag um endurgreiðsluskyldu á brúarlánum

Orða­lagið „að tryggja eftir föngum end­ur­greiðslu“, getur mögu­lega falið í sér að skuld­ari sem fái brú­ar­lán tryggt af hinu opin­bera líti svo á að í lán­veit­ing­unni felist ekki for­taks­laus krafa um end­ur­greiðslu ef greiðslu­fall verður hjá honum.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi skrifar undir umsögn stofnunarinnar.
Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­andi skrifar undir umsögn stofn­un­ar­innar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Rík­is­end­ur­skoðun telur að ákveðið orða­lag í fjár­auka­laga­frum­varpi, sem lagt var fram sem hluti af aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, geti falið í sér að við­tak­endur svo­kall­aðra brú­ar­lána gætu talið að þeir þyrftu ekki að borga þau til baka.

Brú­ar­lánin fela í sér að hið opin­bera gengur í ábyrgð fyrir helm­ing lána sem geta í heild numið allt að 70 millj­örðum króna. Með því að Seðla­bank­inn, fyrir hönd rík­is­ins, gangi í ábyrgð fyrir lán­unum þá er þess vænst að kjörin á þeim verði lægri en áður hafi sést í Íslands­sög­unni.

Í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir um þessi lán: „„Samn­ingur ráð­herra við Seðla­bank­ann skal eftir föngum tryggja end­ur­greiðslu slíkra við­bót­ar­lán­veit­inga og miða við að heild­ar­á­hætta rík­is­sjóðs vegna þeirra geti að hámarki numið 35 ma.kr.“

Rík­is­end­ur­skoðun telur að orða­lagið „að tryggja eftir föngum end­ur­greiðslu", geti mögu­lega falið í sér að skuld­ar­inn líti svo á að í lán­veit­ing­unni felist ekki for­taks­laus krafa um end­ur­greiðslu ef greiðslu­fall verður hjá honum. „Ábyrgðin á end­ur­greiðslu­skyld­unni gæti því verið skýr­ari í ákvæð­inu. Þótt aðstæður hér­lendis eigi sér ekki hlið­stæðu und­an­farna ára­tugi, verður ekki séð að slíkt eigi að fela í sér að fjár­munir rík­is­sjóðs séu ekki að fullu tryggðir þegar rekstr­ar­að­ilum er veitt tíma­bundin lána­fyr­ir­greiðsla,“ segir í umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar.

[adspot]Stofn­unin telur því mik­il­vægt að settar verði hlut­lægar við­mið­anir um hvernig fyr­ir­greiðslu sé háttað. „Þá þarf að vera skýrar orðað að lána­fyr­ir­greiðsla sé ekki heimil, ef rekstr­ar­að­il­inn á þegar í rekstr­ar­vanda vegna ann­arra atvika. Með öðrum orðum vekur Rík­is­end­ur­skoðun athygli á að orða­lagið gæti verið ótví­ræð­ara um ætl­unin sé að end­ur­heimta hlut­að­eig­andi lánsfé.“

Það sé þó mat Rík­is­end­ur­skoð­unar að fyrr­greindar til­lögur séu settar fram sem neyð­ar­ráð­stöfun á ein­stökum tímum og þess vegna sé rétt­læt­an­legt að grípa til þeirra enda sé stefnt að fullri end­ur­greiðslu og að það komi fram í nefnd­ar­á­liti að svo sé.

Umdeild skilyrði

Brú­ar­lána­að­gerðin er ein helsta aðgerðin í pakk­anum sem rík­is­stjórnin kynnti í Hörpu síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Í henni felst að auð­velda við­bót­ar­lán lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta verður gert þannig að ríkið semur við Seðla­banka Íslands um að færa lána­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­ar­lána, sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna yfir­stand­andi aðstæðna.

Seðla­bank­inn mun því veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­bót­ar­lán upp að um 70 millj­arða króna. Aðal­við­skipta­bankar fyr­ir­tækja munu veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin er í heild metin á um 80 millj­arða króna að teknu til­liti til auk­innar útlána­getu banka vegna lækk­unar á banka­skatti, sem mun aukast um tæp­lega 11 millj­arða króna. Hún kemur til við­bótar við svig­rúmið sem Seðla­bank­inn hefur þegar gefið, sem nemur um 350 millj­örðum með lækkum sveiflu­jöfn­un­ar­aukans síð­ast­lið­inn mið­viku­dag.

[links]Til að fá bru­ár­lán þarf fyr­ir­tæki að hafa upp­lifað 40 pró­sent tekju­fall. Þessi skil­yrði hafa verið umdeild. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ræddi skil­yrðin í morg­un­út­varp­inu RÚV í vik­unni. „Þetta er allt saman mats­at­riði. Það má alltaf spyrja sig: hvað með fyr­ir­tæki sem hefur séð 37 pró­sent tekju­fall. Það kemst ekki yfir þrösk­uld­inn. Það er ein­fald­lega um mjög vöndu að ráða.“ 

Stjórn­völd búast við því að allt af helm­ingur af þeim lánum sem þau muni gang­ast í ábyrgðir fyrir muni ekki end­ur­greið­ast.

Við­skipta­ráð hefur í umsögnum sínum um frum­vörpin sem mynda aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar lagt til að í stað lána verði ráð­ist í að veita fyr­ir­tækjum bein fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði sem þau þyrftu ekki að end­ur­greiða. „Takmörk eru fyrir hversu miklar skuldir fyr­ir­tæki geti tekið á sig án þess að það bitni á getu þeirra til að spyrna við fótum. Því gæti líka verið nær­tækara að leggja áherslu á bein rík­is­út­gjöld eða nið­ur­fell­ingu skatta til að hjálpa fyr­ir­tækjum og sam­fé­lag­inu yfir erf­ið­asta hjall­ann, sem aftur kallar á meiri skuld­setn­ingu rík­is­ins til skemmri tíma,“ segir í einni umsögn Við­skipta­ráðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár