Fólk að veikjast viku eftir smit

Skilaboð frá Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni til þjóð­ar­innar: Höldum ró okkar, það skiptir öllu máli að við séum yfir­veguð og látum ekki slá okkur út af lag­inu. Við erum áfalla­þolin þjóð. Hættum ekki að vera til, höldum áfram að hitt­ast og lifa líf­inu.

Tveir ein­stak­lingar með COVID-19 sjúk­dóm­inn eru nú í ein­angrun á Land­spít­al­anum. Í hádeg­inu í dag höfðu tæp­lega 1000 sýni verið rann­sökuð og 109 hafa greinst með veiruna. Lang­flestir hinna smit­uðu voru að koma frá skíða­svæðum í Ölpunum en auk þess hafa bæst við tveir menn sem komu frá Banda­ríkj­unum. Inn­an­lands smit eru orðin 24 og um 900 manns eru í sótt­kví.

„Það er greini­legt að þessi veira er ennþá í vexti sér­stak­lega hjá ein­stak­lingum sem eru að koma hingað inn til lands­ins,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra vegna COVID-19 í dag. „Athygl­is­vert er að fólk er að veikj­ast og grein­ast núna, viku eftir að smit átti sér stað.“

Sagðist hann ekki alveg hafa átt von á nýjum til­fellum frá Banda­ríkj­unum en að það hafi þó ekki komið á óvart þar sem veiran er víða. Enn er verið að rekja ferðir fólks­ins eftir að það kom til lands­ins fyrir nokkrum dögum og setja fólk sem það var í sam­skiptum við í sótt­kví.

Áfallaþolin þjóð

„Höldum ró okkar, það skiptir öllu máli að við séum yfir­veguð og látum þá ekki slá okkur út af lag­inu,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra. „Við erum áfalla­þolin þjóð. Hættum ekki að vera til, höldum áfram að hitt­ast og lifa líf­inu.“

Enn verður haldið áfram sömu var­úð­ar­að­gerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar, þ.e. að ein­angra fólk sem er smitað og þá sem því teng­ist. Einnig eru sam­fé­lags­legar aðgerðir enn mik­il­vægar, þ.e. að fólk skuli gæta ítar­legs hrein­lætis og taka upp ákveðnar sýk­ing­ar­varnir til að verja sig og aðra.

Sótt­varna­læknir brýndi fyrir fólki að miða áfram við að halda um tveggja metra fjar­lægð frá öðru fólki, fara ekki á fjöl­menn manna­mót eða á staði þar sem veik­indi gætu verið fyrir hendi. Sagði hann ánægju­legt að sjá hvað margir ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki hafa tekið þessar ráð­legg­ingar upp og beita ýmsum aðgerðum til að auka sótt­varnir.

Enn ekki tímabært að beita samkomubanni

Hvað sam­komu­bann varðar sagði hann ekki enn tíma­bært að beita slíkum aðgerðum en að það myndi skýr­ast á næstu dögum. Sam­komu­bann væri ein leið til við­bótar við þær aðgerðir sem þegar eru í gangi til að hefta smit. Mjög mis­mun­andi væri hvernig til dæmis Norð­ur­löndin væru að nota slíkt. „Það er engin ein leið til.“

Til sam­komu­banns mun að sögn Víðis koma þegar að ekki verður lengur hægt að rekja smitin sem hér grein­ast. „Þessi tíma­punktur fer kannski að koma,“ sagði Þórólfur. „Þetta er hins vegar við­kvæmt tæki og póli­tískt tæki.“

Miðað við fræðin þá eru sam­fé­lags­legar aðgerðir ein­stak­linga og fyr­ir­tækja til að minnka smit­hættu þær sem skila mestum árangri. „Sá tími fer að koma [að sett verði á sam­komu­bann] en við erum að sjá fleiri smit en ekki mikið af inn­lendum smitum. Við reynum að gera þetta af sann­girni ef að af því verður.“

[links]Þórólfur sagði að nú færi að nálg­ast þann tíma­punkt að velta fyrir sér hvort að til greina komi að setja alla sem koma til Íslands í sótt­kví. Slíkt sé hins vegar mjög flókið í fram­kvæmd.

Spurður hvort til greina kæmi að loka skólum benti hann á að börn væru ekki miklir smit­berar í þessum far­aldri ólíkt því sem verður í hefð­bundnum inflú­ensu­f­ar­öldrum. Hvað aðgerðir sem grípa á til í Banda­ríkj­unum og víðar varðar sagð­ist Þórólfi sýn­ast sem svo að margir væru að grípa til handa­hófs­kenndra aðgerða og örþrifa­ráða en of seint.

Benti hann á að næsta skrefið í bar­átt­unni gegn veirunni sé að beina sjónum að skaða­minnk­andi aðgerðum, efla heil­brigð­is­kerfið enn­frekar og hjálpa veikum ein­stak­lingum. „Við höldum enn að það sé mjög mik­il­vægt að hefta útbreiðslu sem mest með ein­angr­un­ar­að­gerðum sem er verið að beita.“

Hann sagð­ist neita því stað­fast­lega að hér á landi væri minna verið að gera í sótt­vörnum vegna veirunnar en ann­ars staðar. Hér væri verið að gera meira af því að rekja smit og setja fólk í sótt­kví heldur en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum. Sagði hann þessa gagn­rýni ekki sann­gjarna gagn­vart fjölda fólks sem vinnur myrkr­anna á milli við það að hefta útbreiðsl­una.

Ekki dæma aðra

Alma Möller land­læknir hrós­aði öllum þeim sem mest mæðir nú á vegna veirunnar. Hún sagði í sam­fé­lag­inu hafi skap­ast umræða um að heil­brigð­is­starfs­menn hefðu farið í skíða­ferð eftir að veiran greind­ist hér. Benti hún á að öllum hafi verið frjálst að taka slíka ákvörðun, ein­göngu hafi verið biðlað til fólks að sleppa ferða­lögum. „Sjálfri dettur mér ekki í hug að dæma þá sem fóru,“ sagði Alma. „Það hefur mætt mikið á heil­brigð­is­starfs­fólki í vetur og margir orðnir þyrstir í frí.“

Þeir heil­brigð­is­stafs­menn sem fóru erlendis í frí hafi ekki getað séð fyrir hvað áhættu­svæðin breytt­ust hratt. „Við skulum ekki dæma mál sem við höfum ekki for­sendur fyrir heldur hafa yfir­vegun og ein­beitum okkur að deg­inum í dag og næstu dögum. Sýnum umburð­ar­lyndi og stöndum saman.“

Um 180 hafa skráð sig í bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins, þar af 75 sjúkra­liðar, tugir hjúkr­un­ar­fræð­inga og þrjá­tíu læknar. Helm­ingur þessa fólks býðst til að sinna fólki með COVID-19. „Heil­brigð­is­starfs­fólk bregst ekki þegar á reynir.“

Um 128 þús­und manns um heim allan hafa greinst með veiruna. Yfir 4.700 hafa lát­ist af völdum sýk­ing­ar­innar. Utan Kína hafa flestir greinst á Ítalíu og þar hafa tæp­lega 900 manns lát­ist. Gríð­ar­legt álag er á heil­brigð­is­kerfi lands­ins og um 10% heil­brigð­is­starfs­manna í norð­ur­hér­uðum lands­ins eru sýktir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár