Ríkissjóður fær 76 milljarða króna lánaða á 0,625 prósent vöxtum

Nálægt sjöföld umfram­eft­ir­spurn var eftir því að kaupa skulda­bréfa­út­gáfu íslenska rík­is­ins. Af þeim mikla áhuga leiddi til þess að hægt var að fá enn lægri vexti en stefnt hafði verið að.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­sjóður Ísland gaf í dag út skulda­bréf upp á 500 millj­ónir evra, eða 76 millj­arða króna. Mikil eft­ir­spurn var eftir kaupum á bréfum úr útgáf­unni og alls bár­ust til­boð frá yfir 200 aðilum fyrir 3,4 millj­arða evra í hana, eða tæp­lega sjö sinnum það sem var í boði.

Vegna þess­arar miklu umfram­eft­ir­spurnar tókst að fá betri kjör en upp­haf­lega var stefnt að, nánar til­tekið 0,3 pró­sentu­stigum lægri vexti. Skulda­bréfin sem gefin voru út í dag bera 0,625 pró­sent vexti, eru til sex ára og á ávöxt­un­ar­kröf­unni 0,667 pró­sent.

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu vegna þessa kemur fram að kaup­enda­hóp­ur­inn að skulda­bréf­unum sam­an­standi af seðla­bönkum og öðrum fag­fjár­festum, aðal­lega frá Evrópu. Umsjón útgáf­unnar var í höndum Citi, JP Morgan og Morgan Stanley.

[adspot]Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að lán­takan sé stað­fest­ing á greiðum aðgangi rík­is­sjóðs að fjár­magni á alþjóða­mörk­uðum og sýni til­trú fjár­festa á þann við­náms­þrótt sem hafi verið byggður upp á Íslandi á und­an­förnum árum. „Hún eykur getu okkar til að mæta afleið­ingum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru og end­ur­speglar mik­inn styrk og getu til að sigr­ast á efna­hags­legum afleið­ingum hans.“

Hann segir útgáf­una vera í sam­ræmi við stefnu rík­is­sjóðs í lána­málum. Hún auð­veldi aðgengi ann­arra inn­lendra aðila að erlendum láns­fjár­mörk­uðum og stað­festi greiðan aðgang rík­is­sjóðs að stórum og fjöl­breyttum hópi fjár­festa. „Markaðir hafa verið líf­legir að und­an­förnu enda eru mörg ríki í sömu sporum, að tryggja sér fjár­magn til lengri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár